Freyr - 01.12.1946, Side 53
FRE YR
383
Ekki get ég fundið neitt athugavert við
það, þó að afgreiddar séu einhæfar áburð-
artegundir í garða í stað blandaðra, ef
blandaðar tegundir eru af skornum
skammti. Verður að hlýta því úrræði, að-
eins að séð sé fyrir nægilegu magni af öll-
nauðsynlegum næringarefnum.
Hinsvegar má telja, að þau héruð sem
eiga erfiðast með flutninga ættu að
ganga fyrir með blandaðan áburð, því að
hin, sem næst eru höfnum, geta sér að
skaðlitlu notað áburðartegundir, sem eru
dýrari í flutningi.
Ekki virðist það vera sanngjarnt að úti-
loka neinn, sem jarðrækt stundar, frá not-
um tilbúins áburðar. Þó að framleiðsla sé
lítil skiptir oft miklu að geta bætt upp,
t. d. búfjáráburð við garðrækt, bæði með
fosforsýru í Superfosfati og köfnunarefni
í Saltpétri eða öðrum tegundum köfnunar-
efnisáburðar eftir því sem ætla má í hvert
skipti að með þurfi.
Klemenz Kr. Kristjánsson.
TIL ALMENNINGS
ÞAÐ ER ÓSK og von allra íslendinga,
hvar í flokki sem þeir standa, að allir
landsmenn hafi atvinnu, og að fram-
leiðslan sé rekin með stórvirkum at-
vinnutækjum, þannig, að mikil afköst
hafi í för með sér almenna velmegun og
öryggi um lífsafkomu.
Bœta þarf við hraðfrystihúsum.
SJÁVARÚTVEGURINN er höfuðstoð at-
vinnulífsins. Án hins erlenda gjaldeyris,
sem sjávarafurðirnar færa þjóðarbúinu,
eru allar tilraunir til að ná þessu marki
dauðadæmdar. Á undanförnum árum
hefir því verið unnið að því af kappi að
endurnýja og auka fiskiskipaflota lands-
manna. Um það bil tvö hundruð nýir
bátar og skip af ýmsum stærðum hafa
þegar bætzt flotanum eða bætast við
hann á næsta ári. Fé til þessarar aukn-
ingar hefir að mestu verið tekið af hin-
um erlendu innstæðum vorum.
En þessi stórfellda aukning flotans er
aðeins annað sporið, sem stíga þarf, til
þess að sjávarútvegurinn færist í ný-
tízkuhorf. Hitt sporið er að auka og end-
urbæta stórlega aðbúnað útgerðarinnar
í landi.
HÉR ER ÞÖRF stórfelldra hafnargerða,
bæta þarf við hraðfrystihúsum, er geta
veitt móttöku afla hinna nýju báta,
reisa þarf stórar niðursuðuverksmiðjur,
bæta þarf aðstöðu sjómanna með því að
byggja nýjar mannsæmandi verbúðir,