Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Side 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Side 36
* 36 LAUGADAGUR 13. ÁGÚST2005 Helgarblað DV Albert prins á Svalbarða Dfana dnegilliim Á meðan flestir meðlimir kon- ungsfjölskyldnanna kepptust við að eyða sumarfríinu í afslöppun í heitara loftslagi leitaði Albert prins að ævintýralegri upplif- un.Alberteyddi nokkrum dögum á Svalbarða sem ligg- ur á milli Noregs og norður- pólsins. Með ferðalaginu fetaði hann í fótspor langa- langalangafa síns sem hafði mikinn áhuga á land- svæðinu og heim- sótti það árið 1906. Al- bert var sam- ferða vísinda- mönnum sem voru í leiðangri til að rann- saka mengun á svæð- inu. Nýfæddur prins nýtur athyglinnar Grfska prinsessan Alexía hefur verið dugleg við að sýna Carlos, nýfædda drenginn sinn. Hún lét nýlega sjá sig rétt utan við Barcelona þar sem Carlos fædd- ist fýrir fjórum dögum. Með henni í för var stór hluti af grísku konungsfjölskyld- unni og var nokkuð Ijóst að enginn gat litið af litla krílinu. Að vera miðpunktur alheimsins virtist þó ekki trufla Carlos mikið og var hann mestallan tímann rólegur í fangi móður sinnar. Vilhjálmur á leið í hnappheld- una? Kunningjar Vilhjálms prins og kær- ustu hans, Kate Middleton, telja að parið muni fljótlega ganga í það heil- aga en Vilhjálmur og Kate munu hefja sambúð innan skamms. f kjölfarið hafa umræður um Kate sprottið upp í Bret- landi en margir efast um að um tilvilj- un hafi verið að ræða að þau hittust í háskóla. Sumir fjölmiðlar ganga svo langt að segja móður Kate hafa skráð dóttur sína í St. Andrews-háskólann í von um að hún kynntist prinsinum. Karli Bretaprins og drottningunni er talið líka mun betur við Kate en kærustu Harrys en Chelsy Davy er lýst sem „reykjandi drykkjusjúklingi sem vilji bara djamma." Karl krónprins með kollu Mikið er nú rætt um hárið á Karli Bretaprins.Talið er augljóst að hár- prýði prinsins hafi auk- ist upp á sfðkastið en hann var nánast kom- inn með skalla áður en hann og Camilla Parker-Bowles gengu í það heilaga.Sumir telja að Karl hafi sett upp kollu á meðan aðrirtelja að hann hafi gengist undir hárígræðslu.Flestir eru þó sammála um að kórónan sem hann mun væntanlega taka við af móður sinni eigi eftir að sitja betur á þykku hárinu.Talsmaður prinsins neitar að tjá sig um málið. Harry til hjálpar bróður sínum Harry prins mun hjálpa Vilhjálmi bróður sínum í undirbúningi fyrir inn- tökuprófin í Surrey-herháskólann. „Vilhjálmur hefur alltaf verið sá klárari af þeim tveimur svo þessi staða er afar óvenjuleg," sagði félagi prins- anna. Harry lýkur bráðlega fyrsta ár- inu f Sandhurst-herskólanum og hefur þvf reynslu sem mun nýtast Vilhjálmi til að komast inn í skólann. „Harry er staðráðinn í að gera allt sem í hans valdi stendur til að koma bróð- ursfnum inn." Fallegar systur í brúðkaupi Sænsku prinsessusysturnar Viktor- fa og Madeleine voru einkar glæsileg- ar er þær mættu (brúðkaup önnu zu Sayn-Wittgen- stein-Berleburg prinsessu og Manuels von Bayern prins um síðustu helgi. Anna er skyld prins Richards sem er giftur Benedikte prins- essu Danmerkur en hún er systir Margrétar drottning- ar.dóttur Ingiríðar prinsessu Svfa. Madeleine og Viktoría krónprinsessa mættu f fallegum bláum og bleikum kjólum með litlar kórónur á höfði. Hákon krónprins Noregs og olíu- og orkumálaráðherra landsins fengu ekki að votta konungsfjölskyldunni í Sádi-Arabíu samúð sína vegna andláts Fahds konungs. Norðmenn eru forviða yfir ákvörðuninni en Fahd konungur lést fyrir tveimur vikum. Hákon seotíop heloi frá Sátíí-Mío Norðmenn eru forviða yflr að Hákoni krónprins og olíu- og orku- málaráðherra Noregs var meinað að votta Sádi-Aröbum samúð sína vegna andláts Fahds konungs. Krón- prinsinn og ráðherrann voru nýlent- ir í Sádí-Arabíu þegar þeir fengu að vita að þeir væru of seinir og gætu því allt eins snúið við heim til Nor- egs, sem þeir og gerðu. Konungurinn var borinn til graf- ar daginn eftir andlátið samkvæmt hefðum í Sádi-Arabíu. Næsta dag gerðu kóngar og forsætisráðherrar margra landa sér ferð til að votta samúð sína og því kom öllum á óvart að norsku sendinefndinni hefði ekki verið hleypt að konungsfjölskyld- unni. „Ég skil ekki hvað er í gangi," sagði Kari Vogt prófessor í málefn- um Miðausturlanda og múslima. „Ég veit ekki um neinar trúarlegar ástæður fyrir framkomunni og það eru engar reglur í landinu sem takmarka ijölda samúðarkveðja. Konungsijölskyldan vissi af komu krónprinsins og ráðherrans svo þetta er mér hulin ráðgáta." Vitað er að fleiri landshöfðingjar fengu ekki að votta fjölskyldunni samúð sína en langflestum var hleypt inn í höllina. Flugvél krón- prinsins var nýlent þegar forsætis- ráðherrann fékk símhringinu og honum sagt að ef nefndin frá Nor- egi yrði ekki komin fyrir ákveðinn tíma yrði henni meinuð innganga. Fahd konungur hafði ríkt yfir landinu frá 1982 en hann var 84 ára þegar hann lést. Ríkissjónvarpið í Sádi-Arabíu tilkynnti stuttu eftir andlát hans að Abdullah krón- prins, hálfbróðir kóngsins, hefði verið valinn sem eftirmaður. Konungur- inn sálugi hafði verið veikur síðan hann fékk heilablóðfall árið 1995. Nýi kóngurinn lofaði að stjórna landinu með réttlæti í huga þegar hann var vígð- ur við hátíðlega at höfn. Fahd konungur Hafði rlkt yfir landinu frá 1982 en hann var 84 ára þegar hann lést. Hakon krónprins Ríkiserf- inginn neyddist til að snúa flugvélinni heim á við strax eftir lendingu í Sádi-Arablu. Mary krónprinsessa ætlar ekki að ráða fóstrur til að ala upp börnin Upp á kant við tengdó Mary prinsessa í Danmörku lenti í fyrsta skiptið upp á kant við tengdaforeldra sína í vikunni. Krónprinsessan, sem er gift Friðriki krónprins, hefur ákveðið, gegn vilja drottningarinnar, að ala börnin sfn upp sjálf. Mary segist ekki ætla að ráða neinar barnapíur til að hjálpa sér við uppeldi þeirra en hún er komin sex mánuði á leið af þeirra fyrsta bami. Mary segist ekki ætla að láta börnin sfn upplifa sömu angist og Friðrik og bróðir hans upplifðu er þeir vom börn. En prinsamir hittu foreldra sína afar sjaldan í æsku og Friðrik hefur við- urkennt að hafa aldrei jafnað sig almennilega á þeirri lífsreynslu. „Fóstmrnar sáu alfarið um okkur og því vomm við oft mjög einmana sem börn." Mary segist einnig ætla að kynna tilvonandi börn þeirra fyrir Ástralíu, heimalandi hennar og hafa hjóna- kornin þegar skipulagt heimsókn með frumburðinn á næsta ári. „Ég ætla að vera 100% móðir. Bömin mín verða ekki alin upp af fóstrum," segir Mary ákveðin. „Líf mitt er ekki ævintýri. Líf mitt er afar raunvemlegt." Mary krónprinsessa Prinsessan á von á fyrsta barni slnu og Friðriks krón- prins I október.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.