Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Blaðsíða 50
50 LAUCARDAGUR 13. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Ur bloggheimum
„Er R-listinn sprunginn? Ég
veit ekki með ykkur, en ég ;
mun ekki gráta mig lengi
f svefn yfir þvf.
Nú fær Samfylkingin vonandi
tækifæri til aö koma sinni
stefnu I borgarmátunum á framfæri og
fara út I markvissa kosningabaráttu, m.a.
til aö opna augu manna fyrirþeim afleið-
ingum sem afþvf hlytust fengi Sjálfstæð-
* ’ isflokkurinn aftur meirihluta f borginni. R-
listinn hefur unniö gott starfá þessum
árum, og hefur hann sinnt upprunalegu
hlutverki sínu velframan af...“
Arndís Anna Gunnarsdóttir - arndis.is
Sjáið mig
„Ég fór í bæinn f gær og náöi I bráöa-
Jsirgðaökuleyfi vegna þess aö ég
k varö skyndilega ökuréttinda-
| laus fyrir skömmu.Eftir það
ákvaö ég aö skoöa mig um f
Apple búöinni en gekk út úr
henni meö Power Book fartölvu.
Ég hefþá eitthvað aö gera í skólanum I
vetur milli tlma. Ég á eflaust eftir aö fylla
tölvuna afklámi og falla I skólanum.
Þaðerþess viröi. “
Arni Theodór Long - gaffli.blog-
spot.com
'Jó
„Eins og ekkert hafi I skorist,
þá segi ég hér með frá þvf
aö ég hefveriö f danstfm-
um I allan morgun aö læra
djöflavalsa fyrir Galdraskytt-
una. Þetta hefur mér þótt ein-
staklega skemmtilegt.
Eins langar mig aö taka það fram aö Ijós-
myndun og matreiösla er tvennt ólfkt,
þótt stundum fari þaö saman.“
Bragi Bergþórsson - blogg.bragur.com
Næringarfræði Blöndals
Já, hei, ég haföi alveg heila pólitíska
skoöun hérna um daginn þegar ég las til-
^vitnanir í Pétur Blöndal þar sem
i hann notaöi offituvandamál
| sem rök gegn því aö lækka
skatt á matvælum. Skoöunin
var þessi: Vá, maðurinn er hálf-
viti! Aðdáendur skynsama og rök-
fasta Blöndalsins hljóta aö hafa skamm-
ast sln onl tær þegar þeir lásu þetta
kjaftæöi..."
Bjarni Rúnar Einarsson - bre.kiaki.net
Heim frá (talfu.
„...Þá veröur spennandi aö
starfa I borgarstjórnar-
flokknum sfðustu mánuöi
fram aö kosningum, en nú
hafa tvær skoöanakannanir
sýnt Sjálfstæöisflokkinn meö sterkari
* stöðu en R-listann...“
Björn Bjarnason - bjorn.is
Fidel Castro fæðist
Byltingarmaðurinn og einræðis-
herrann Fidel Castro fæddist á þess-
um degi árið 1926. Sem ungur dreng-
ur vann hann á sykurreyrsekrum og
gekk í skóla hjá jesúítum og fór síðan
í Belén-framhaldsskólann í Havana,
höfuðborg Kúbu. Árið 1945 hóf hann
háskólanám og lauk laganámi 1950.
Á háskólaárunum tók Castro meðal
annars þátt í byltingu í Dóminíska
Lýðveldinu og í óeirðum í Bogota i
Kólumbíu.
Árið 1952 bauð Castro sig fram til
kúbverska þingsins en þáverandi
einræðisherra Kúbu, Fulgencio
Batista, aflýsti kosningunum. Þann
26. júh' 1953 gerði Castro, ásamt
bróður sínum Raúl og fleirum, sína
fyrstu byltingartilraun þegar hann
gerði misheppnaða árás á herstöðina
í Santiago. Eftir útlegð gerði Castro
aðra byltingartilraun árið 1956.
Hann, Emesto „Che“ Guevara og
fleiri skæruliðar sigldu frá Mexíkó á
skútunni Granma. Flestir mannanna
féllu reyndar eða vom handteknir, en
eftir rúmlega tveggja ára skæruliða-
baráttu Castros og fylgismanna hans
lagði einræðisherra Kúbu, Fulgencio
Batista, niður völd þann 1. janúar
Einræðisherrann Fidel Castro fæddist á
þessum degi. Um 33 árum sföar komst hann
til valda á Kúbu.
1959 og flúði land. Manuel Urrutia
var skipaður forseti hinnar nýju
stjómar en Castro varð yfirmaður
hersins.
Aðeins um mánuði síðar varð
Castro einnig forsætisráðherra og í
júh' ýtti hann Urrutia út úr stjóminni.
í dag
árið 1987 opnaði
verlunarmiðstöðin
Kringlan. Um fjörutíu
þúsund manns komu í
húsið fyrsta daginn.
Kringlan var þá 28 þúsund
fermetrar og þar voru 70
verslanir og
þj ónustufyr irtæki.
Þar með var Castro orðinn óum-
deildur leiðtogi Kúbu og hefur hann
haldið þeirri stöðu síðan. Castro
gekkst fyrir róttækum breytingum á
efiiahagslffi landsins og vöktu þær
harða andstöðu Bandaríkjamanna.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum andi stundar.
Lögreglan Gengur
hart fram aö mati
bréfritara.
1 1 II m
~ Ii
ttc
1 'iTcjiíBÁt M\ v \\
Þiöstui Halldórsson skrífar
Hvernig stendur á því að við ís-
lendingar hugsum ekki eins og aðrar
þjóðir í kringum okkur? Hvað er
svona sérstakt við okkur hér á Fróni
að við getum hagað öllu eins og okk-
ur lystir. Nú em þessir mótmælend-
ur orðnir að „Most wanted“ lista lög-
reglunnar. Við höfum svo fjöldann
allan af lögreglumönnum að við
sendum heila hersveit heim til mót-
mælanda til að klippa númeraplöt-
una af bílnum hans.
Aiveg er ég viss um að þeir í lög-
reglunni flissa á kaffistofunni sinni
og halda að þeir hafi unnið ein-
hverja orrustuna. Það gengur sú
saga fjöllunum hærra að margir
hafa ekki tilskilin leyfi til að aka
þessum stóm tmkkum, rútum og
öðrum meiraprófsbílum upp á
Lesendur
Kárahnjúkum en ekki hefur lögregl-
an áhyggjur af því, eltandi mótmæl-
endur um allt hálendið. Annars er
ég ekki að verja þær aðgerðir mót-
mælenda ogmargt má betmmbæta
í þeirri krossferð. Og ekki heldur er
ég að setja út á þá lögreglumenn
sem fylgja einungis skipunum yfir-
manna sinna. Það eru nú nokkrir
öfgamenn við stjórnvölin í okkar
ágætis lögregluembætti og ekki síst
í dómsmálaráðaneytinu. Einn vill
setja tölvukubb í alla bíla lands-
manna til að njósna um hraðamörk
þeirra og hinn vill heilt herlið til að
halda mómælendum og Falun
Gong-meðlimum í skefjum.
Ég gæti alveg ímyndað mér sam-
tal þeirra Björns Bjamasonar og hr.
Friðriks Sófasonar og Landsvirkjun-
armafi'unnar yfir hádegismat. Og án
efa hefur hann ekkert annað en
gaman af því að hafa sent heilu
sveitirnar upp á hálendi í sitt
einkastríð. Þessir blessaðir mótmæl-
endur em stimplaðir hryðjuverka-
menn, en það er einungis af því að
lögreglan hefur aldrei séð slíkan
mann. Eins og greyið ftalinn í vetur
sem teiknaði mynd af alþingi úti í ís-
lenskri veðráttu og nokkuð vel
klæddur. Tekinn í yfirheyrslu af sér-
sveit Bjöm Bjarnasonar sem storm-
ar yfir Island leitandi að öllum þeim
sem klæða sig of vel í frostinu. Ég er
farinn að skilja að sömu mennirnir
ganga um götur Reykjavíkur berj-
andi fólk og selja eiturlyf og ganga
alltaf lausir.
Það er ekki eins mikilvægt að elta
þessa menn og koma þeim bakvið
lás og slá þegar allt lögregluliðið er
að njósna um þessa mótmælendur.
Og biðjið fyrir ykkur ef einn Falun
Gong asnaðist til að koma hingað í
frí. Þá fengi Bjöm Bjarnason maga-
sár og myndi eflaust hringja í Gogga
Bush eftir liðsstyrk. Við íslendingar
emm svo duglegir að apa eftir vin-
um okkar í vestri og ættum við að
taka upp svipaða aðferð og þeir. Þeir
sem hafa komið til Bandaríkjana
hafa allir lent í því að fylla út blað
sem er svo skilað til yfirvalda við
komu. Þetta blað er með aUs konar
spurningum t.d. hvort maður sé
hryðjuverkamaður, glæpamaður
eða eitthvað verra. Nú beini ég
þessu til þeirra sem mest ráða. Ég
legg til að við gemm það sama. Allir
ferðamenn fylla svona blað út en við
ætlum aðeins að breyta forgangs-
röðinni. Lítur út einhvern veginn
eins og þetta!
1) Ert þú Falung Gong-meðlimur.
2) Ætlar þú að mótmæla Friðriki
Sófa og Kárahnjúkum.
3) Ætlar þú að mála mynd af al-
þingishúsinu okkar.
4) Ert þú vinur Jóns Ásgeirs í
Baugi?
5) Ert þú nokkuð að smygla sæl-
gæti yfir þremur kg.
100) Ertu nokkuð félagi í hryðju-
verkasamtökum?
Alveg er ég viss um að eftir að
þetta fyrirkomulag er komið til að
vera þá getum við sett lögregluna í
ótímabundið sumarfrí því við höfum
ekkert að gera við lögregluna t.d. í
bænum um helgar og meira sýnilega
í umferðinni. Þegar lögreglan sendir
10 manns til að klippa númeraplötu
af bfl mótmælanda þá er skiljanlegt
að þeir séu fáliðaðir til að sinna þeim
skyldum sem almenningur vill að
hún sé að gera.
Sylvía Dögg
Halldórsdóttir
„Allirsem málstaö-
inn aöhyllast ættu
að sameina krafta
sína.“
Myndlistarneminn segir
Úráróðri að
veruleika!
Kllfrað í krana Sylvla
segir málstaö mótmæl-
enda góöan en ekki aö-
feröafræöina.
Ég var á Reyðarfirði „Cify" þeg-
ar mótmælendur Kárahnjúkavirkj-
unar færðu krafta sína þangað
ofan af hálendinu eftir brottrekst-
urinn milda. Málstaðurinn er góð-
ur - ekki spuming! Aðferðafræði
mótmælendanna er það því miður
ekki. Vera þeirra á Kárahnjúkum -
og bara veran ein - minnti fólkið í
landinu á sjónarmiðið sem var gott
ogjafnframt
nauðsynlegt.
Fram-
kvæmdir við
virkjuninar
em löngu
hafiiar og
ekki aftur
snúið með
þær héðan af
- það er deg-
inum ljósara.
Þarafleið-
andi þýðir ekki að reyna að stöðva
þær. Gjörðir eins og að spreyja á
skúr og klifra upp í krana vekja at-
hygli en ekkert meira en það. Svo
ekki sé minnst á að það skemmir
aðeins fyrir íslenskum verktökum
sem hafa lifibrauð sitt af fram-
kvæmdinni og hafa raunverulega
ekkert með málið að gera!
Þegar lögreglan þarf að hafa af-
skipti af skemmdarvörgum sem
gæti leitt til brottreksturs þeirra úr
sjálfu landinu em aðferðimar
orðnar frekar glataðar. öllu mikil-
vægara er að sætta sig við að þessi
virkjun verður ekki bakfærð. Aftur
á móti ættu þeir og allir sem mál-
staðinn aðhyllast að sameina
krafta sína og koma í veg fyrir að
önnur hver jökulá á landinu verði •
nýtt á sama veg. Það gemm við
með raunhæfum úrlausnum til að
leysa stóriðjuhugsjónina endan-
lega af hólmi.
Ekki bara að benda á og tala um
- heldur gera að veruleika!
18 ára í viðræðunefnd R-listans
Maður dagsins
„Ég er varaformaður Ungra vinstri
grænna í Reykjavík og var valinn af stjórn
VG í Reykjavík til að vera í þessari viðræðu-
nefnd," segir Dagur Snær Sævarsson, yngsti
meðlimur í viðræðunefiid R-lista flokkanna
sem lauk störfum í fyrradag. Þrátt fyrir ung-
an aldur hefur Dagur getið sér gott orð í
Vinstri-grænum sem endurspeglast meðal
annars í setu hans í viðræðuneftidinni.
Dagur segir að vel hafi farið á með full-
trúa flokkanna í nefndinni, þrátt fyrir að
endanleg niðurstaða hafi ekki fengist. „Okk-
ur hefur samið alveg rosalega vel. Þetta
strandaði náttúrulega á grundvallaratriði að
því er okkur fannst. Það er jafnræði milli
flokkanna, en málefnin og sjónarmiðin em
nokkurn veginn þau sömu. Við eigum eftir
að eiga gott samband við þessa flokka að
loknum kosningum, það er að segja ef R-
listinn heldur ekki áffarn," segir hann.
„Ég er búinn að vera núna í tvö ár í
Vinstri grænum. Þetta er flokkur sem í raun-
inni passar best við mínar skoðanir sem em
friðarhyggja, jafnréttishyggja og umhverfis-
sjónarmið. Þama em mannúðar- og réttlæt-
issjónarmið sem ráða ferðinni," segir Dag-
ur. Hann ætlar að beita sér í flokknum í
komandi kosningabaráttu, en eftir það tek-
ur skólinn við.
„Ég mun væntanlega bjóða mig ffam til
formennsku í UVG Reykjavík á aðalfúndi
sem verður haldinn þann 27. Ungt fólk er
öflugt innan Vinstri grænna, ekki síst í
Reykjavík. Þetta er annar aðalfundurinn
okkar, en Reykjavíkurdeild UVG var stofnuð
í fyrra. Ég held að fólk sé spennt yfir þessu,"
segir hann.
„Ég er búinn að vera núna
í tvö ár í Vinstri grænum."
Dagur stundar nám við náttúmfræði-
braut Menntaskólans í Reykjavik. Eftir það
ætlar hann í læknisfræði. „f sumar var ég að
vinna á hjúkmnarheimilinu Eir í Grafarvogi.
Þar var ég að hugsa um eldra fólk, það er
ágætis undirbúningur fyrir læknisffæðina,"
segir Dagur.
Fyrir utan pólitíkina á rokk og ról hug
hans og hjarta. „Ég spila á gítar, en er ekki í
hljómsveit eins og er. Ég er búinn að vera
einn að semja og spila glysrokk," segir Dag-
ur Snær.
SííLnur* * formennsku (Reykjavíkurfélagi Ungra vinstri grænna.
agur!