Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Page 40
40 LAUGARDAGUR 13. ÁGÚST2005 Helgarblað DV > - Kviðdómari efast um sak- leysi Michaels Jackson Katharina Carls, einn af kviðdómur- unum í réttarhöldunum yfir Michael Jackson, tjáði sig um dag- inn opinber- lega við fjöl- miðla og w ræddi um afstöðu sína gagnvart Jackson. I til- kynningunni kom fram að hún teldi Michael vera barnanlðing. Hún var fullviss um aðJackson hefði beitt hinn þrettán ára Gavin Arvizo kyn- ferðislegu ofbeldi en Gavin bar vitni I réttarhöldunum.„Ég tel aö það séu um eitt prósentllkur á því að Gavin hafi verið að Ijúga og er því mjög lík- legt að Michael Jackson hafi beitt hann ofbeldi. Fólk mun eflaust velta fyrirsérhver raunverulegi sannleikur- inn er um ókomna tlð,“tók Katharina fram. Það lítur þvl ekki út fyrir að ^ Jackson sleppi með hreint mannorð þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður saklaus. Rassaklíping- um lauk með morði Unglingur að nafni Gary Roper varö gömlum skóla- bróðurslnum, Triston Christ- mas, að bana. Roper var vlst reiður vegna þess að Christ- mas hafði klipið I '*»- rassinn á kærust- unni hans fyrir tveimur árum og ákvað þvl að kýla hann. Það vildi hins vegar svo illa til að Christmas datt aftur fyrir sig og skall höfuð hans á steyptri gangstétt- inni og endaöi árásin því með dauðs- falli. Strákarnir tveir voru víst góðir vinir áður en deilur komu upp á milli þeirra vegna kærustu Ropers. Roper segist ekki vera sekur um morð með köldu blóði en réttarhöldin leiða von bráðar t Ijós hver örlög hans verða. Kyrkjarinn frá w Fulham hlýtur fjóra lífstíðar- dóma o*. Morðinginn Lee Kilty, sem hefurhlot- ið viðurnefnið kyrkjarinn frá Fulham, var fyrir stuttu dæmdur til að sitja af sér fjórfalt lífstlðarfangelsi. Kilty sem starfaði sem leiðbeinandi fatlaðra barna.játaði verknaðinn sem fól Isér skipulagðar kynferðislegar árásir á konur. Kilty réðst á þrjár konur sem voru einar á gangi i Vestur-London. Greip hann konurnar aftan frá og tók þær kverkataki. Dómari málsins sagði Kilty að hann fengi svo þunga refsingu þar sem það væri óásætt- anlegt að gera honum kleift að hann gera fleiri konum mein. Þegar barn er myrt beinist rannsókn lögreglunnar fyrst að fjölskyldu þess. Hinn 14 ára gamli Michael var talinn hafa myrt 12 ára systur sína Stephanie með hjálp tveggja vina sinna. Michael játaði en dró síðan játninguna til baka. Hann segir lögregluna hafa þjarmað svo að sér að hann hafi ekki lengur vitað muninn á sann- leika og tilbúningi. Morðingi innan fjölskyldunnar Stephanie „Mér stáð ógn afStephanie. Hún var mun betri námsmaður og miklu vinsælli en ég Iskól- anum. Ég þoldi hana ekki," sagði Michael eftir að lögreglan hafði þjarm aðað honum Steve Crowe upplifir sömu martröðina á hverri nóttu. Hann heyrir Stephanie dóttur sína biðja hann um hjálp en getur sjálfur ekki komið upp orði. Stundum eru draumarnir svo raunverulegir að hann vekur konuna sína og spyr hvort hún hafi heyrt í Stephanie. Martraðimar hófust eftir þann 21. janúar 1998. Sá dagur var eins og aðrir dagar á heimili Crowe-fjöl- skyldunnar í litla bænum rétt fyrir utan San Diago. Cheryl Crowe hafði steikt hamborgara og franskar og Michael hjálpað Stephanie systur sinni með lærdóminn svo hún gæti Sakamál eytt lengri tíma í að spjalla við vini sína í símann. Stephanie var 12 ára og hafði fengið eigin símalínu í jóla- gjöf frá foreldmm sínum. Um klukk- an hálftíu fór hún í rúmið eftir að hafa kysst foreldra sína og ömmu góða nótt. Stuttu síðar var öll fjöl- skyldan í fasta svefni. Systkinin Michael Imiðjuinni, Stephanie til vinstri og litla systir þeirra, Shannon, til hægri. Fjölskyldan undir grun June Kennedy, amma Stephanie, var fyrst til að fara á fætur daginn eftir. Þegar hún ætlaði að vekja dótt- urdóttur sína varð hún fyrir áfalli. Stephanie lá á gólfinu, augu hennar voru opin en líflaus. Hún hafði verið stungin í bijóstið og axlirnar. Lögreglumaðurinn Ralph Clayl- or, með 23 ára starfsreynslu, var settur í málið. Hann og félagar hans töldu við fyrstu athugun að þar sem allar dyr og gluggar hefðu verið lok- uð hlyti morðinginn að vera fjöl- skyldumeðlimur. Fæstum sem þekktu til lögreglustarfa kom niður- staða Claylors á óvart því samkvæmt FBI liggja foreldrar alltaf fyrstir und- ir gmn þegar barn er myrt, því næst systkini og aðrir sem búa í húsinu og þeir sem eiga samskipti við bamið. Michael grunsamlegur Eftir að kmfning leiddi í ljós að Steve hefði ekki misnotað dóttur sína beindust augu lögreglunnar að Michael, 14 ára bróður hennar. Þeg- ar Claylor ræddi fyrst við fjölskyld- una tók hann eftir að Michael var óvenjulega rólegur þrátt fyrir að- stæður. Á meðan fjölskylda hans hélst í hendur og grét sat hann á gólfinu og spilaði tölvuleik. Michael sagðist hafa farið á fætur um hálf- fimm til að fá sér verkjatöflu þar sem hann hafði verið með höfuðverk. Claylor fannst undarlegt að hann hefði ekki rekið augun í lík systur sinnar þar sem herbergi hans var ská á móti herbergi hennar. Þrír ungir drengir handteknir Meðlimir Crowe-fjölskyldunnar fengu ekki að talast við á lögreglu- stöðinni. Þeir vom yfirheyrðir einn og einn í einu og afklæddir fyrir framan myndavélar í leit að skrám- um eða rispum. Þremur dögum síðar fékk Steve sfmtal frá Caylor. „Við vitum hver myrti dóttur þína. Michael sonur þinn er morðinginn." Michael hafði játað við yfir- heyrslur. „Mér stóð ógn af Steph- anie. Hún var mun betri námsmað- ur og miklu vinsælli í skólanum en ég. Ég þoldi hana ekki," sagði Mich- ael. Claylor var viss um að Michael hefði ekki verið einn að verki og handtók tvo vini hans. Strákamir þrír eyddum flestum stundum við að spila ofbeldisfulla tölvuleiki og Claylor var nokkuð viss um að þeir hefðu fengið hugmyndina að morð- inu úr einum leikjanna. Josh Tread- way var einn hinna handteknu. Eftir langa og stranga yfirheyrslu sagði hann lögreglunni frá undirbúningn- um. Hann sagði að Michael hefði haft ástæðuna, en að vinur þeirra Aaron Hauser hefði skipulagt morð- ið. Lögreglumennirnir voru vissir um að þeir hefðu leyst málið. Játningarnar dregnar til baka Stuttu síðar drógu þremenning- arnir játningar sínar til baka. Lög- fræðingar sögðu lögregluna hafa neytt út úr þeim játningu. „Þeir rifu okkur í sig,“ sagði Michael. „Ég vissi ekki lengur hvað var sannleikur og hvað ekki." Lögfræðingarnir voru sannfærðir um að einhver annar hefði framið hinn hryllilega glæp. Eftir að hafa rætt við nágranna Crowe-fjölskyldunnar kom í ljós að undarlegur maður hafði sést í göt- unni lcvöldið örlagaríka. Claylor kannaðist við manninn enda góð- vinur lögreglunnar. Richard Tuite var 28 ára með langan sakaferil og alvarlega geðsjúkur. Tuite hafði ver- ið gómaður við að gægjast inn um glugga nokkurra húsa í götunni. Þegar lögreglan handtók hann við- urkenndi Taite að hafa verið í ná- grenninu. Claylor og félagar hans höfðu litla trú á að Tuite hefði framið morðið enda engin sönnun- argögn á vettvangi. „Tuite hefði ekki tekist svona vel upp með þetta þótt hann hefði reynt sitt besta." Málið sett í bið En lögfræðingur Michaels var ekki jafn sannfærður. Hann krafðist þess að öll föt Taite yrðu send í DNA-rannsókn. Á skyrtunni hans fundust blóðblettir úr Stephanie. Réttarhald yfir drengjunum þremur var sett í biðstöðu á meðan lögregl- an rannsakaði málið frekar. Sex vik- um síðar var drengjunum sleppt úr haldi. Michael hafði setið inni í sex mánuði og hafði ekki fengið að mæta í jarðarför systur sinnar. Þrátt fyrir blóðsletturnar á skyrtunni vildi lögreglan ekki kæra Tuite fyrir morðið. Fimm árum síðar var skipaður nýr yfirmaður í lögregluna og fyrir- skipaði hann að málið yrði tekið upp að nýju. Taite var handtekinn og ákærður. Lögmaður hans útskýrði blóðið á skyrtunni með því að lög- reglan hefði mengað fötin óviljandi í rannsókninni. Sterkasti rökstuðn- ingur hans voru þó drengimir þrír. Sex árum eftir að systir hans var myrt lá Michael enn undir gmn. Eft- ir átta daga umhugsun komst kvið- dómur að niðurstöðu. Taite var morðinginn og var sendur í 13 ára fangelsi. Stephanie átti betra skilið Michael Crowe er í dag giftur fjöl- skyldumaður. Hann flutti langt í burt frá heimabæ sínum í von um að gleyma fortíðinni. „Ég vil réttlæti og það felst í að ég verði beðinn afsök- unar af þeim sem hafa pínt mig síð- ustu árin. Stephanie átti betra skilið. Ég vona bara að réttlætið nái fram að ganga þar sem hún er núna." Morðingi RichardTuite var28 ára með langan sakaferil og alvarlega geðsjúkur. Þrefalt morð í aftökustíl Þrefalt morð var framið í íbúð í Norður- London fyrir stuttu. Fómarlömbin em systum- ar Loma og Connie Morrison sem vom 34 og 27 ára og kærasti móður þeirra, hinn 62 ára Noel Patterson. Lögreglan óttast að þremenningam- ir hafi verið saklaus fómarlömb vegna ættar- deilna eða vegna deilna á milli götugengja sem ættingi gæti mögulega verið meðlimur í. Krufn- ing lfkanna leiddi í ljós að Noel var skotinn í höfuðið og andlitið þrisvar, Connie var skotin tvisvar í höfúðið og Loma oftar en hin tvö sam- anlagt. Lögreglan segir morðin hafa verið í af- tökustíl. Til viðbótar við líkin fann lögreglan níu mánaða gamlan son Lomu í íbúðinni. Farið var með hann á sjúkrahús en sem betur fer amaði ekkert að honum. Aðeins eitt lík hefur verið fjarlægt úr íbúðinni og segir lögreglan það vera vegna þess hve erfitt er að rannsaka morðvett- vanginn. Nauðsynlegt er að rannsaka allt áður en íbúðin er hreinsuð. Vegna málsins hefur lögreglan hafið allsherjar leit að þremur ungum blökku- mönnum. Vitni sáu mennina koma inn í íbúðarhúsnæðið seint að kvöldi, daginn áður en líkin fundust. Talið er að mennirnir hafi keyrt dágóða vegalengd til þess að leita uppi fómarlömb sín. Þeir töluðu meira að segja við nágranna til að finna rétta heimilisfangið. „Ég lá á sófanum mínum þegar það var bankað á hurðina hjá mér. Fyrir utan stóðu þrír blökku- menn. Þegar ég opnaði sögðust þeir vera að leita að einhverjum að nafni Carly, Kally eða eitthvað svoleiðis. Ég sagði engan með því nafni búa hér. Þeir fóm þá og stuttu seinna heyrði ég skothvelli," sagði Nellam Hussain, einn af nágrönnum fórnar- lambanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.