Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ2006 Helgin DV Ólafía Ragnarsdóttir Hefur átt við geðræna sjúkdóma að stríða frá barnsaldri en hefur nú náð undraverðum bata. Hún hefur ásamt fleirum stofnað félagsskapinn Höndina sem hefurþað að markmiði að hjálpa þeim sem Ifða. Ólafía Ragnarsdóttir var ekki nema fjórtán ára þegar hún reyndi aö fremja sjálfsvíg. Eftir það var hún fastagestur í geðheilbrigðis- kerfinu án þess að fá lausn sinna mála. Fyrir ári birti til hjá Ólafíu þegar hún hóf meðferð hjá atferlisfræðingi og náði á nokkrum mánuðum meiri árangri en hún hafði náð með læknunum í áratugi. Nú hefur Ólafía ásamt fleirum stofn- að sjálfshjálparsamtök sem heita Höndin. að kemur í ljós þegar ég hitti Ólafíu að um er að ræða bernskuvinkonu sem ég var meira að segja heimagangur hjá. Ólafía bjó í sama stigagangi og ég í Safamýrinni og hafði þá sérstöðu meðal okkar krakkanna í blokkinni að eiga tvær mæður. Ólafía var skiln- aðarbam og bjó hjá móður sinni og systur hennar. Móðirin vann úti en systirin var heima og annaðist barn- ið. Ólafía var sérstaklega skemmti- legur og harmónískur krakki og við rifjum upp á kaffíhúsinu hvernig við sömdum fjölmörg leikrit sem við ætluðum alltaf að setja upp í garð- inum bak við hús, byggðum alvöru snjóhús á vetrum og horfðum sam- an á Steinaldarmennina. Líka þeg- ar Ólafía fótbrotnaði og var að mínu mati heppnasta barn í heimi því annað eins dekur hafði ég aldrei séð. Ólafía fær ekki að vita fyrr en þarna á kaffihúsinu að ég öfundaði hana brjálæðislega af gifsinu og fór marg- ar ferðir á skauta á Melavöllinn til að freista þess að fótbrotna sjálf. Mér finnst Ólafía ekkert hafa breyst síðan leiðir okkar skildi á sjö- unda áratugnum þegar ég fluttist með foreldrum mínum til útlanda. Hún er enn dökk yfirlitum og stráks- leg með snaggaralegan svip og glimt í augunum. í áratugi örlaði þó ekki á glimti í augum Olafíu. Hún var ekki nema unglingur þegar geðsjúk- dómur náði tökum á henni og meira að segja meðan við lékum okkur áhyggjulausar í Háaleitishverfínu var farið að bera á einkennunum. Ég vissi bara ekkert um það. Ekkert til sem hét geðsjúkt barn „Það var ekkert til í þá daga sem hét geðsjúkt barn," segir ólafía. „Þegar ég hugsa til baka veit ég samt að þetta hófst mjög snemma því mér leið alitaf illa í skólanum og átti erfitt með svefn. Það var ekki nema þeg- ar ég fór með móðursystur minni á Gullfoss þar sem hún rak söluskála á sumrin að mér leið vel. í skólanum var ég alveg ómöguleg. Mér gekk vel að læra en gafst upp fjórtán ára. Þá reyndi ég í fyrsta og eina skipt- ið á ævinni að taka mitt eigið fíf og gleypti fullt af svefntöflum. Það var ekkert annað en ákall á hjálp. Það voru bara engin úrræði, engir skóla- sálfræðingar eða félagsráðgjafar og þetta var bara afgreitt sem tauga- veiklun. Það var allt reynt til að fá mig aftur í skólann en það gekk ekki. Síðar kom í ljós að minn sjúkdómur er áráttu- og þráhyggjusýki." Læknar dældu lyfjum í unglinginn Olafía fékk frá upphafi kolranga meðhöndlun en lagðist þó aldrei inn á geðdeild, heldur gekk til geð- lækna sem gáfu henni ógrynni af lyfjum. „Þegar ég hugsa um það eftir á var ástæðan fyrir því að ég lagðist aldrei inn á geðdeild mínir eigin for- dómar. Ég kom mér alltaf undan því enda hafði ég mömmu til að hugsa um mig en hún var mjög meðvirk í öllum mínum veikindum. Um tví- tugt var búið að dæla látlaust í mig lyfjum frá fjórtán ára aldri og ég var orðin lyfjasérfræðingur. í framhaldi af því fór ég að misnota lyfin og var í læknadópi í sjö ár, eða þangað til ég fór í meðferð á Vífilsstöðum. Meðan ég var í læknadópinu var ég félagslega virk á köflum en datt niður í djúpt þunglyndi þess á milli. Mér leið auðvitað mjög illa og not- aði lyfin til að deyfa mig. Eitt sum- arið var þunglyndið svo slæmt að ég lá algjörlega í rúminu, klæddi mig ekki og gerði ekki nokkurn skapað- an hlut. Mamma kunni engin ráð, var bara meðvirk og snerist í kring- um mig og gerði mér kleift að lifa líf- inu svona." Ólafíu finnst, þegar hún horfir til baka, að læknar hafi sáralítið gert. „Ég man að þeir sögðu mér að drífa mig aftur í skóla eða vinnu, en jafn- vel læknamir skildu ekki að ég var of veik til að geta það. Mig langaði í skóla en var bara alveg ófær um það. Svo notaði ég auðvitað veik- indin líka sem hækju. Ef það var eitthvað sem ég vildi ekki gera eða nennti ekki að gera gat ég alltaf af- sakað mig með veikindunum. Ég held að margir geðsjúklingar noti veikindin sín stundum þannig." Valdi nístandi einmanaleikann Það var Ólafíu mikið áfall þeg- ar móðursystir hennar lést en þá var Ólafía 18 ára. „Þetta hafði að vissu leyti verið flókinn uppvöxtur og mér þótti í rauninni vænna um Duddu móðursystur mína en mína eigin móður. Mamma var aukaper- sóna og ég hafði alltaf sektarkennd yfir þessu. Þegar Dudda lést gerði ég ekkert til að vinna úr sorginni, en ég lærði þó að meta mömmu eftir að Dudda dó." Eftir að Ólafía fór í meðferð á Vífilsstöðum átti hún nokkur góð ár. „Þá byrjaði að rofa til og ég skildi að ég væri orðin fullorðin mann- eskja og yrði að taka ábyrgð á eigin lífi. Ég hafði verið á sífelldum flótta í læknadópinu. Það finnur hver sína flóttaleið, hvort sem það er áfengi, læknadóp eða eitthvað annað. Þarna fór ég fíka að meta mömmu að verðleikum, en fram að þessu hafði hún bara verið mamman sem átti allt að gera fýrir mig. Þarna fór ég að skynja hana sem einstakl- ing með eigin langanir og þrár. Ég sá hvernig ég hafði komið fram við hana og kastað allri ábyrgð á hana. En svo fór að halla undan fæti aftur og ég var trúlega komin með milt þunglyndi sem ég upplifði þó ekki þannig. öll mín hegðun var þó dæmigerð fyrir þunglyndissjúk- linga. Þetta var ekki þunglyndi sem lamaði mig algjörlega og ég gat gert það sem ég nauðsynlega þurfti, en var mjög sinnulaus og hirðulaus og hugsaði ekki um einfalda hluti eins og að fara í bað og þrífa í kring- um mig. Svo fór ég að einangra mig og sleit öll vinatengsl. Það var ekki þannig að vinimir gæfust upp á mér heldur vildi ég frekar þola einmana- leikann, sem var oft mjög nístandi, en vera innan um fólk." Fannst ég algjör aumingi Ólafía og mamma hennar bjuggu á þessu tímabili í húsnæði vesmr í bæ sem Ólafía segir að hafi verið háífgert greni. „Mamma vildi flytja en ég stjórnaði og það varð ekkert úr því lengi vel. Það endaði þó með að við fluttum í ágætis húsnæði þar sem bjó venjulegt fólk. Tveim- ur árum seinna veiktist ég svo mjög alvarlega. Þá var mamma orðin lé- leg sjálf og ekki í neinu standi til að hugsa um sjúkling en milli þess sem hún „kóaði" með mér þurfti ég að fara í hlutverk sterku konunnar og annast hana. Sfðustu árin sem hún lifði var oft eins og hún væri barnið og ég mamman. Sjálfsmatið mitt var bara svo lélegt og sjálfsvirðingin engin að mér fannst ég algjör aumingi. Samt var fólk að segja við mig að enginn væri aumingi sem gerði það sem ég gerði, að hugsa um sjúka gamla konu og heimili." Undur gerast Þegar móðir Ólafíu lést fyrir ári var hún niðurbrotin og vonlaus. Þá komst hún í samband við Eyj- ólf Magnússon Scheving, kennara og atferlisfræðing, og nú formann Handarinnar, sem hún segir að hafi skipt sköpum í lífi hennar. „Það er það besta sem hefur komið fyrir mig í lífinu," segir Ólafía og brosir björtu brosi. „Þá fýrst fór að birta til. Eyjólfur byggði upp hjá mér sjálfstraust og sjálfsvirðingu sem ég var alveg búin að týna. Hann fékk mér ýmis verkefni og leiddi mig smátt og smátt inn á þá braut að ég væri einhvers virði og gæti gert allt mögulegt. Hann gat gert fyrir mig á einu ári það sem enginn geðlækn- ir eða sálfræðingur hafði getað gert í öll þessi ár." Viljum ná til einmana og félagslega einangraðra Hugmyndin að Hendinni vakn- aði svo í samtalsmeðferð Ólafíu hjá Eyjólfi. Ólafía segir að hugmyndin sé fyrst og fremst hugarfóstur Eyj- ólfs en þau hafi verið sammála um að þörfin fyrir svona félgasskap væri brýn. „Þrátt fyrir að margt hafi ver- ið gert í geðheilbrigðisþjónustu á þessum árum sem eru liðin frá því ég veiktist er enn svo langt í land. Við sáum að sárlega vantaði samtök sem leituðust við að vera breiður vettvangur fyrir þá sem líða annað hvort andlega eða líkamlega. Hönd- in er fyrst og fremst sjálfshjálpar- samtök sem vilja styðja við baldð á þeim sem til þeirra leita vegna veik- inda eða ýmissa áfalla. Við viljum aðstoða fólk sem er í þessari stöðu og styðja það fyrstu skrefin út í lífið á ný. Það er svo mikilvægt að auka félagslega fæmi þessa fólks sem oft er orðið mjög félagslega einangrað og einmana og þann vítahring vilj- um við rjúfa. Það er fullt af fólki sem situr eitt heima hjá sér og gruflar í eigin vandamálum en veit ekkert hvert það á að snúa sér og er jafnvel að berjast við eigin fordóma. Það er til þessa fólks sem við viljum ná." Að hjálpa öðrum besta lækningin Ólafía ítrekar að Höndin sé þver- pólitísk, þverfagleg og þvertrúar- leg. „Þetta eru samtök sem hafa þá sérstöðu að vera öllum opin, hvort sem viðkomandi líður andlega eða fíkamlega. Það er heldur ekkert skil- yrði að vera líðandi til að gerast fé- lagi og þess vegna er Höndin kjör- inn vettvangur fyrir þá sem hafa áhuga á tilfinningum og mannleg- um samskiptum og ekki síst fyrir þá sem eru tilbúnir að hjálpa öðr- um. Hugmyndafræði Handarinnar byggist einmitt á að einstaklingur sem hefur losnað út úr eigin erfið- leikum og vanmætti geti farið að rétta öðrum hönd - hjálparhönd. Það er oft besta lækningin, það hef ég sannreynt sjálf." Sjúklingar sendir fárveikir heim Kjörorð Handarinnar er „Á ég að gæta bróður míns?" og Ólafía segir að því svari samtökin að sjálfsögðu játandi. „Okkur finnst mikilvægt að fólk sem leitar til okkar fái hjálp strax en sé ekki sagt að koma eftir viku eða hálfan mánuð eins og gerist svo oft í geðbatteríinu. Ég hef sjálf reynslu af þessu sem geðsjúklingur, að vera send heim jaíhveik og ég kom. Til að sinna þessu höfum við opnað síma þar sem alltaf verður hægt að ná til okkar. Ég svara í síma 568 9399 eða 866 6070 og þangað getur fólk hringt hvenær sem er og við mun- um reyna að vinna í málum þess." í haust ætlar Höndin að hefja átak með að koma á heimsóknar- þjónustu fyrir eldri borgara og nota sumarið til að safna sjálfboðaliðum til að sinna þessu verkefni. Ólafía hvemr alla sem áhuga hafa að hafa samband við sig. „Þess gætir um of í þjóðfélag- inu að einstaklingar séu flokkaðir niður og bundnir á klafa; alkóhól- istinn, geðsjúklingurinn, búlimíu-/ anorexíusjúklingurinn og svo ffam- vegis. Það gleymist að hóparnir samanstanda af gerólíkum ein- staklingum sem eiga rétt á að vera dæmdir út frá eigin forsendum sem persónur en ekki stimplaðir út ffá hópeinkennum. Hver einstakling- ur á rétt á mannsæmandi lífi og að geta virkjað hæfileika sína og getu í þá átt sem hugur hans stendur til, óháð þjóðfélagsstétt eða fötl- un. Fyrir þessu vill Höndin berjast," segir Ólafía. Fordómar á geðdeildum Ólafía segist því miður hafa heyrt ófagrar sögur af viðskiptum fólks við geðheilbrigðisþjónust- una þar sem talað er niður til fólks og því sýnd lítilsvirðing. „Það er að sjálfsögðu með öllu ólíðandi ef það er tilfellið að fordómarnir grasseri inni á stofnununum. Þá spyr mað- ur sjálfan sig hvort það sé nokkuð skrýtið að fordómarnir séu mikl- ir úti í þjóðfélaginu. Ég hef af því reynslu þó ég hafi aldrei legið inni á geðdeild að það sé talað niður til mín innan kerfisins." Ólafía er fíka ómyrk í máli þegar Félagsþjónustuna í Reykjavfk ber á góma og telur að þar þurfi að gera miklar breytingar. „Kerfið er allt of þunglamalegt og biðin eftir þjónusm allt of löng. Ég þurfti að hafa samband við Fé- lagsþjónustuna í Reykjavík vegna ákveðins máls og þurfti að bíða í mánuð, bara eftir að fá viðtal. f mínu tilfelli kom þetta ekki að sök en það er fullt af fólki sem er ekki í stakk búið að bíða heilan mánuð. Þarna þarf að verða breyting á og er ef til vill kjörið verkefni fyrir nýjan borgarstjórnarmeirihluta að láta til sína taka og bæta úr.“ Æskuminningar í lokin Við Ólafía pöntum okkur meira kaffi því við eigum enn ýmislegt órætt frá því í Safamýrinni forð- um. Eins og til dæmis af hverju við nenntum aldrei að leika okkur með dúkkur og fannst meira gam- an í strákaleikjum. Okkur fannst líka strákar komast upp með miklu meira en stelpur og vorum senni- lega orðnar femínistar níu ára án þess að hafa nokkum tíma heyrt það orð. Ólafía er enn jafn skemmtileg og hrífandi og minningarnar koma á færibandi. Ég er stolt af þessari æskuvinkonu minni og yfir mig glöð að hafa hitt hana aftur. Við ætium að halda sambandinu og ég hlakka til að fylgjast með henni vinna nýja sigra og hjálpa öðrum til betra lífs. edda@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.