Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 9. JÚNl2006
Fréttir DV
Hjón hafa höfðað mál á hendur bæjaryfirvöldum vegna þess að þau fengu ekki lóð á Kópavogstúni. Hjónin eiga
tvö börn. Fæddist annað þeirra fótalaust fyrir neðan hné. Bæjarfulltrúinn Flosi Eiríksson fékk aðra lóðina
sem hjónin sóttu um og fyrrum samstarfsfélagi Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra hina. Gunnar segir regl-
um samviskusamlega fylgt.
Fyrirmenni tekin fram yfir
fjölskyldu með fótalaust barn
Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra hefur verið stefnt fyrir Héraðs-
dóm Reykjaness vegna lóðaúthlutunar í desember í fyrra. Gunn-
ar segir reglur um úthlutun lóða í Kópavogi góðar. Margir fái ekki
lóð og að það sé skiljanlegt að einhverjir séu sárir.
o
I
JX
í
nærri 700 um
^ sóknir
Bk. um í®
Sjávarlóöir á Kópavogs-
bakka. Tekið yfir voginn frá
Arnarnesi. Framkvæmdir við
gatnagerð eru hafnar
Fjögurra manna fjölskylda sem
fékk hvoruga umbeðna sjávarlóð í
Kópavogstúni telur bæjaryfirvöld
hafa brotíð stjómsýslulög, jafnræð-
isreglu og úthlutunarreglur bæjarins
við úthlutun lóðanna.
Umræddar tvær lóðir féllu annars
vegar í skaut Flosa Eiríkssyni, odd-
vita Samfylkingar í bæjarstjórn, og
hins vegar Bimi Inga Sveinssyni, nú-
verandi forstjóra fjárfestíngafélags
verktakanna Gunnars og Gylfa og
áður samstarfsmann Gunnars bæj-
arstjóra tíl sjö ára í verktakafyrirtæk-
inu Klæðningu. Lóðirnar eru númer
sex og átta á Kópavogsbakka.
Fótalaus frá fæðingu
Hjónin eiga tæplega fjögurra ára
dóttur og sjö mánaða gamlan son.
Fæddist hann í október með enga
fætur fyrir neðan hné. Munu tilvik
eins og hans vera gríðarlega sjald-
gæf; aðeins eitt af hverjum tíu millj-
ón börnum fæðist með sams konar
galla.
Hjónin eru um þrítugt. Síðustu
árin hafa þau búið í Reykjavík en
áður hafði maðurinn búið íKópavogi
frá fæðingu og meðal annars starfað
þar ötullega að íþróttamálum. Þau
báðust undan þvf að tjá sig um málið
og því að vera nafngreind en lesa má
um sjónarmið þeirra í málinu í stefn-
unni gegn Kópavogsbæ.
Áttu að fá lóðina
Lögmaður hjónanna, Halldór
Birgisson, vimar í stefnu sinni til út-
hlutunarreglna sem samþykktar
voru í Kópavogi í septemb-
er í fyrra. Það sem hafi
átt að ráða samkvæmt
skilmálunum hafi ver-
ið fjölskyldustærð,
þáverandi húsnæð-
isaðstaða, hvort við-
komandi hafi áður sótt
um lóð í Kópavogi og
það hvort umsækjand-
inn hefði möguleika á
að ljúka framkvæmdum á
tilsettum tíma. Hann segir
hjónin hafa staðið framar
þeim Flosa og Birni Inga
semumsækjend-
ur. í það
r/Svo fær maður alls
konar glósur á sig og
sendingar. Þetta er
mjög dapurt."
minnsta hafi þau staðið Flosa og
Birni Inga jafnfætís. Þau hafi haft
nauðsynlegt fjárhagslegt bolmagn.
Aðstæður hjónanna séu þannig að
meira aðkallandi væri að þau fengju
lóð. Þau hafi búið í fjölbýlishúsi og
þurft stærra húsnæði:
„Ber þar fyrst að geta að stefn-
endur (hjónin) hafa tvö ung börn
á heimilinu og annað þeirra fatlað.
Nánar tiltekið fæddist bamið fóta-
laust fyrir neðan hné," segir í stefnu
Halldórs Birgissonar hæstaréttarlög-
manns.
Hjónin gátu reyndar ekki fötlunar
sonar síns í sjálfri lóðaumsókninni.
Lögmaður þeirra segir hins vegar að
æðstu yfirmenn bæjarins hafi vitað
um ástand drengsins:
„Þá var stefndi (Kópavogsbær)
upplýstur um aðstæður stefnenda
(hjónanna) bæði í viðtali við bæj-
arstjóra Kópavogsbæjar og nánar í
bréfi lögmanns stefhenda til bæjar-
stjórnar áður en ákvörðun var tekin
um úthlutun."
Logandi deilur
Miklar deilur hafa risið í kjöl-
far þess að bæjaryfirvöld í Kópavogi
samþykktu lóðaúthlutunina á Kópa-
vogstúni í desember. Segja margir
lóðaumsækjendur á sér brot-
ið með því að þeir
þóttu ekki koma
til greina við
úthlutun-
inaþóttþeir
sjálfir teldu
sig uppfylla
öllsettskil-
yrði. Þau
skil-
yrði er að finna í nýjum úthlutun-
arreglum sem bæjarstjórn Kópa-
vogs samþykktí í fyrrahaust í kjölfar
harðrar gagnrýni á meinta hentí-
stefnu bæjarfulltrúa í lóðaúthlutun-
um.
Löðrungurfrá ráðuneyti
Auk þess að hafa verið stefnt fyr-
ir héraðsdóm hefur félagsmálaráðu-
neytíð þegar úrskurðað Kópavogsbæ
í óhag vegna einnar af fjórum stjórn-
sýslukærum sem þangað hafa verið
sendar. Eins og ffam kom í síðasta
tölublaði DV sagði félagsmálaráðu-
neytíð í afar harðorðri niðurstöðu
sinni að málsmeðferð Kópavogsbæj-
ar væri bæði ólögleg og óforsvaran-
leg. Reglur bæjarins gera ráð
fyrir að dregið sé á milli ef
fleiri en einn lóðaum-
sækjandi telst hæfur.
Aðeins var dregið um
átta lóðir af yfir 30
einbýlis- og parhúsa-
lóðum á Kópavog-
stúni. Afganginum var
úthlutað beint til hand-
valins fólks. Alls bárust
Bæjarstjóri
segir
lóðimar. Þar af sóttu um
100 um sjávarlóðirnar
sem eru fimm við Kópa-
vogsbakka. Ellefu sóttu
um lóð númer sex, sem
Flosi fékk, og tólf sóttu
um lóð númer átta, sem
var úthlutað tíl Björns
Inga. Aðeins var dregið á
milli umsækj enda vegna
tveggja sjávarlóða.
Bæjaryfirvöld hafa sagt um öll
þessi deilumál að málefnaleg sjón-
armið hafi ráðið við úthlutun lóð-
Meintur stórgróði
Hjónin gera þá kröfu fyrir hér-
aðsdómi að viðurkennt verði að út-
hlutun lóðanna á Kópavogsbakka
númer sex og átta hafi verið ólög-
mæt og að viðurkennt verði að þau
eigi rétt á skaðabótum vegna þessa.
í því samhengi kemur fram í stefnu
hjónanna að það sé mat fasteigna-
sala að sjávarlóðimar sem þau fengu
ekki á Kópavogsbakka séu 30 millj-
óna króna virði hvor. Bærinn hafi
hins vegar innheimt 17
milljónir fyrir lóðirn-
ar. Mismunurinn,
13 milljónir króna,
séu því verðmætí
sem þau hafi misst
möguleikann á
að fá vegna ólög-
/ mætrar stjórn-
J sýslu bæjarins.
Flosi Eiríksson Oddviti Samfylkingarinnar
I Kópavogi þótti sá eini hæfi til að fá eina af
eftirsóttustu tóðunum á Kópavogstúni,
Kópavogsbakka 6.
Gunnar I. Birgisson ,Ég get skilið að þau
séu sár en það voru margir sem sóttu um
og fengu ekki einsog verið hefur hjá akkutf
segir bæjarstjórinn.
Björn Ingi Sveinsson Fyrrverandi samstarfsmaður
Gunnars Birgissonar I verktakafyrirtækinu Kiæðningu
og núverandi forstjóri Fjárfestingafélags á vegum
....anna Gunnars og Gyifa fékk lóðina á
Kópavogsbakka 8. Björn Ingi varelttsinn borgarverk-
ur oq slöar sparisjóðsstjóri I Hafnarflrðl.
■
farið að reglum
„Ég get skilið að þau séu sár en það
voru margir sem sóttu um og fengu
ekki eins og verið hefur hjá oldoir. En
við erum að fara eftír reglunum og
erum að gera það mjög samvisku-
lega. Svo fær maður alls konar glós-
ur á sig og sendingar. Þetta er mjög
dapurt," segir Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri um mál hjónanna.
Gunnar segir að í Kópavogi hafi
menn lengi stuðst við svipaðar reglur
sem hafi verið betrumbættar í gegn
um tíðina. Þetta séu betri reglur en
þær sem stuðst sé við hjá mörgum
öðrum sveitarfélögum og gangi ann-
ars vegar út á að halda uppboð á lóð-
um og hins vegar að setja alla um-
sækjendur í einn pott og draga svo
úr. Með fyrri aðferðinni séu það að-
eins þeir ríkustu sem eigi möguleika
og með seinni aðferðinni hámarki
þeir möguleika sína sem mesta elju
hafi í að safna kennitölum.
„Við erum að taka tillit til svo
margra þátta, tíl fjölskyldustærðar,
stærðar íbúðar sem menn eru í og
hvort þeir hafi sótt um áður," segir
Gunnar. „Við höfum verið gagnrýnd-
ir fyrir að taka tillit tíl fjárhagsstöðu.
Og ekld getum við farið að gefa það
síðan upp um einstaklinga að fjár-
málin séu ekki í lagi."
Flosi segist ekkert vita
Aðspurður segist Flosi Ei-
ríksson ekki þekkja mál hjón-
anna sem voru meðal þeirra
sem sóttu um Kópavogs-
bakka 6 á móti honum.
„Ég þekki þessa stefnu
ekki. Ég sótti einfaldlega
1 um þessa lóð eins og hver
1 annar og hef á engu stígi
þessa máls setíð nokkra
fundi eða skoðað nokkur
gögn sem tengjast þessari
lóðaúthlutun," segir Flosi.
gar@dv.is
'VAD -PuK\n-AQ