Freyr - 01.10.1987, Page 35
Sigurður Baldursson flutti 5. til-
lögu framleiðslunefndar I.
,Aðalfundur Stéttarsamband
bœnda 1987 beinir því til landbún-
aðarráðuneytis að það láti nú þeg-
ar athuga hvort ástœða sé til að
hanna sérstakan stimpil sem not-
aður verði til stimplunar á kinda-
kjöti sem framleiðendur taka heim
úr sláturhúsi.
Jafnframt verði hertar reglur um
lágmarksgœði kjöts affullorðnu fé
sem tekið er til sölumeðferðar“.
Til máls tóku Einar E. Gísla-
son, Gunnar Guðbjartsson, Árni
Bjarnason og Sigurður Bald-
ursson.
Tillagan var borin undir at-
kvæði í tvennu lagi.
Fyrri hluti tillögunnar var samþ.
með 24:1 atkv.
Síðari hlutinn var samþykktur
með 15:2 atkv.
8. Tillaga sláturhúsanefndar.
Gunnar Sæmundsson flutti til-
löguna og talaði fyrir henni.
Hún var þannig:
„Aðalfundur Stéttarsambands
bœnda 1987 ályktar eftirfarandi
um hagrœðingu í rekstri slátur-
húsa.
Fundurinn tekur undir það
stjónarmið að auka þurfi hagrœð-
ingu í rekstri sláturhúsa og að í
ýmsum tilfellum sé rétt að fœkka
þeim.
Fundurinn telur ekki rétt að gera
þetta með valdboði, heldur verði
reynt að koma slíkri breytingu á
með samkomulagi hlutaðeigandi
sláturleyfishafa.
Fundurinn telur óeðlilegt að
allgóð eða lögild hús verði lögð
niður. Einnig er óeðlilegt að ekki
sé gert ráð fyrir sláturhúsi í heilum
byggðarlögum enda er Ijóst að slíkt
leiðir til stórhœkkunar á flutnings-
kostnaði sláturfjár.
Mikil fækkun sláturhúsa kemur
í veg fyrir að bœndur og þeirra fólk
geti stundað sláturhússtörf. Er það
mikil þversögn nú þegar talað er
um að auka og efla atvinnu í
sveitum. Einnig getur reynst vand-
kvæðum háð að fá fólk til starfa í
stórum húsum. Pá má benda á að
miklir annmarkar eru á að opna
stór hús vegna slátrunar utan hefð-
bundins sláturtíma".
Umræður urðu miklar um þessa
tillögu. Hallór Þóðarson og fleiri
studdu tillöguna en Bergur Páls-
son og fleiri töldu eðlilegt að
fækka sláturhúsum verulega.
Auk framsögumanns, Hallórs
og Bergs tóku þessir til máls:
Guðmundur Stefánsson, Björn
Benediktsson, Þorfinnur
Þórarinsson, Jóhannes G. Gísla-
son, Guðmundur Lárusson, Emil
Sigurjónsson, Skúli Kristjónsson
og Einar Þorsteinsson.
Síðan var afgreiðslu tillögunnar
frestað og hún fór til nefndarinnar
til nánari athugunar.
9. Tillaga frá verðlagsnefnd:
Guðrún Aradóttir flutti endur-
skoðaða tillögu nefndarinnar.
Aðalfundur Stéttarsamband
bœnda 1987 varar við útsölu á
kindakjöti rétt fyrir sláturtíð.
Fundurinn leggur áherslu á að
útvegað verði fjármagn til þess að
koma eldri birgðum kindakjöts út
af markaði þannig að eingöngu sé
selt nýtt kindakjöt eftir að sláturtíð
hefst hverju sinni“.
Samþykkt samhljóða.
10. Tillaga frá allsherjamefnd.
Þá kom fram endurskoðuð 5.
tillaga allsherjarnefndar. Emil
Sigurjónsson flutti hana. Til máls
tóku Haukur Halldórsson og Ein-
ar E. Gíslason, en afgreiðslu til-
lögunnar var frestað.
11. Tillögur framleiðslunefndar
n.
Helgi Jónasson flutti fyrstu til-
lögu nefndarinnar og skýrði hana.
„Tillögur varðandi reglugerð
um fullvirðisrétt til framleiðslu
sauðfjárafurða verðlagsárið 1988-
1989.
1. Reglugerðin verði að stofni til
byggð á reglugerð nr. 445/1986 og
reglugerð nr. 157/1987 um
breytingu á þeirri fyrrnefndu með
þeim breytingum sem nauðsyn-
legar eru til samræmis við samning
ríkisstjórnar íslands og Stéttarsam-
bands bænda dags. 20. mars 1987
og þeim breytingum öðrum sem
eftirfarandi samþykktir leiða til.
2. Framleiðendum á lögbýlum
verði reiknaður sami fullvirðis-
réttur og þeim er úthlutað samkv.
6.-9. grein reglugerðar fyrir verð-
lagsárið 1987-1988 með þeim fyrir-
vara að búnaðarsamböndunum
skal heimilt að innkalla til endurút-
hlutunar allan eða hluta þess
fullvirðisréttar sem þau ráðstöfuðu
samkv. 9. grein reglugerðar nr.
445/1986 og úthluta á ný eftir hlið-
stæðri grein í nýrri reglugerð. Óski
búnaðarsamböndin eftir að nota
þennan rétt skal það tilkynnt
Framleiðsluráði fyrir 20. sept.
1988.
3. Inn í 4. grein komi sá fyrirvari
að heimilt verði að sameina bú-
markssvœði innan hvers búnaðar-
Moksturstæki
$TRIMÁ
• Nýtist með eða án jafnstöðuarma - sama tækið!
• Fljóttengd - tvívirk lyfta - tvívirk skófla og hraðlosun.
• Losunarhæð við skóflutengi 3.4 metrar.
• Lyftigeta frá ca. 100 í yfir 2000 kg.
• Á allar gerðir dráttarvéla.
• Einn lipur stjórnarmur.
• Fljóttenging skóflu og tækja.
$TRIMA
™ Berosio Trimt AB
KAUPFÉLÖGIN OG
« BÚNADARDEILD
’SAMBANDSINS
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900
Freyr 763