Freyr - 01.10.1987, Síða 70
sonar og félaga hans í Sexmanna-
nefnd.
í dag hefir ekkert það komið
fram er bendir til þess að ákvörð-
un fulltrúa framleiðenda í Sex-
mannanefnd hafi verið röng.
Leiða má getum að því að þessi
ákvörðun hafi átt sinn þátt í að
gera að veruleika þann magn-
samning sem bændur búa nú við
og gildir til 1992, þó að vafalaust
finnist mörgum fullvirðisréttur
sinn naumur. Hvernig hefðu þá
skerðingarmál komið út, ef magn-
ið væri minna?
Fyrir fundinum liggur skýrsla
starfshóps er skipaður var af land-
búnaðarráðherra sl. haust. Skýrsl-
an fjallar um sauðfjárrækt á Is-
landi, stöðu og stefnur.
Vafalaust sýnist sitt hverjum
um skýrslu þessa. Mest umræða
hefir orðið um svæðaskiptingu, en
þá sleppt ýmsum öðrum þáttum er
málinu tengjast. Vegna þessa er
rétt að víkja að skýrslunni nokkr-
um orðum.
Á síðasta aðalfundi voru sam-
þykktar margar tillögur um hin
margvíslegu hagsmunamál sauð-
fjárbænda. Tillögum þessum var
ýmist beint til stjórnar samtak-
anna eða hins opinbera. Stjórnin
hefir leitast við að þoka þessum
DRÁTTARVÉLAR:
Úrval af beislis og tengibúnaöi á dráttarvélar
fyrirliggjandi.
Dráttartengi
Ofan drlfs:
Kr. 13.600.-
Dráttarbeisli
Venjuleg stærð:
Kr. 15.720.-
Yfirstærð:
Kr. 18.560.-
Dráttarkrókar
Lyftutengdir: Kr. 18.560.-
Einníg
fyrirliggjandi:
Frambretti
Þyngdarklossar
Vökvakistur og
stjórnventlar
KAUPFÉLÖGIN OG
/S BUNABARDEILD
^ SAMBAHDSINS
ARMULA3 REVKJAVIK SlMI 38900
798 Freyr
málum áfram eftir því sem geta
okkar hefir leyft, en margt hefði
þurft að gera betur.
Ekki verður hér gerð nánari
grein fyrir framgangi þessara mála
en margt af því mun koma fram
hér í starfsnefndum fundarins.
Góðir fulltrúar!
Fyrir þessum fundi liggja marg-
vísleg mál sem stjórnin leggur
áherslu á að fái ýtarlega umfjöllun
og afgreiðslu. Má þar meðal ann-
ars nefna:
1. Reglugerð um stjórn sauð-
fjárframleiðslu á verðlagsár-
inu 1988-1989.
2. Fækkunarsamninga nú í
haust, er geri þeim bændum
kleift að fækka, sem telja sig
þurfa þess.
3. Leiðir til að koma í veg fyrir
framhjásölu kindakjöts.
4. Verðlagning sauðfjárafurða
og verðhlutföll milli flokka.
5. Verðlagning á ull. Verð liggi
fyrir starx að hausti.
Skýrsla Inga Tryggvasonar.
Frh. afbls. 788.
oft einhverjir til að blása í glæður
sérhyggju og sundurþykkju. Þótt
aðstaða bænda sé um margt ólík
eftir ýmsum aðstæðum eru
heildarhagsmunir þeirra sameigin-
legir og skilningur á að svo sé
6. Tryggja að bændur geti slátr-
að á lengi tíma.
7. Kjötmarkaður í eign L.S. og
e.t.v. fleiri búgreinafélaga er
geti verið leiðandi um smá-
söluverð.
8. Stöðlun á kjöti til geymslu.
9 .Breytingar á sjóðagjöldum
þannig að L.S. fái ákveðinn
tekjustofn til markaðsstarfa.
10. Hugsanleg efling Lífeyrissjóðs
bænda er geri fullorðnum
bændum kleift að draga
saman í búskap, án þess að
rýra rétt jarðarinnar.
Að lokum þetta:
Það er von okkar í stjórn L.S.
að hér á eftir fari fram hrein-
skilnar og málefnalegar umræður
og umfram allt að menn láti skoð-
anir sínar í ljósi á þessum fundi.
Vona ég svo að þessi fundur skili
okkur vel fram á veginn.
nauðsynlegur til varnar stéttinni
og byggðum sveitanna.
21. ágúst 1987
Ingi Tryggvason
Skýrsla þessi var send Stéttarsam-
bandsfulltrúum nokkru fyrir aðal-
fund, en útdráttur úr henni fluttur
á aðalfundi með breytingum og
viðbótarupplýsingum.
Graskögglar
Fóöur og Fræframleiðslan í Gunnarsholti annast nú
sölu á graskögglabirgðum Stórólfsvallabúsins í Hvol-
hreppi.
Til sölu eru graskögglar framleiddir sumrin 1985 og
1986, bæði sekkjaðir og í lausri vigt.
Hagstæð kjör og greiðsluskilmálar.
Fóðurog Fræframleiðslan
Gunnarsholti.
Símar 99-5089 og 91 -29711.