Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 8

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 8
skapur með hundruð þúsunda fjár án þess að nýta aðkeyptan áburð tekur beint af landinu og skilar því litlu til baka. Fyrir lífræna framleiðslu þarf mun hærra verð og markaðurinn virðist einfaldlega ekki taka við nema takmörkuðu magni. Lífrænn búskapur getur gengið upp í smáum stíl og ekkert nema gott um það að segja en að breyta sauðfjárræktinni að stórum hluta gengur tæplega upp. Fer landvernd og sauðf járbúskap- ur saman? Já, það getur vel farið saman með skynsamlegri nýtingu byggðri á þekkingu. Mér finnst alltof mikil al- hæfing hjá mörgum þeirra sem fjalla um gróðureyðingu í landinu að kenna eingöngu búfé um hana. Nátt- úruöflin eiga stærstan þátt og síðan búsetan sem slík. Forfeður okkar notuðu skóginn til eldiviðar og í byggingar. Maðurinn sjálfur hefur átt stóran þátt í eyðingu skóganna með þeim búskap er var stundaður. Til þess að fólkið lifði, þurfti að nýta landið eins og mögulegt var til að fá afurðir búfjárins. Nýlegasta dæmið um alhæfingar er nýársávarp forseta Islands þar sem hann sagði beint að hross og sauðfé hefðu eytt gróðri í landinu. Hann minntist ekki á mann- skepnuna sjálfa eða náttúruöflin. Hérna á heiðunum eru bæði sauð- fé og hreindýr, keppa þau ekki um beitina? Sauðfé hefur fækkað á þessu svæði það mikið að nóg rými er fyrir hvoru tveggja. Ég býst við að þar sem hreindýrin ganga yfir sumarið sjáist að þau séu í beinni samkeppni við sauðkindina en fjárfjöldinn er orðinn það lítill að ég tel ekki vera hættu á ofbeit. Hins vegar er ekki skynsam- legt að fjölga hreindýrum að neinu ráði. Það býður heim hættunni á að í erfiðum árum falli hluti stofnsins. Það hefur aldrei þótt góð latína að setja á guð og gaddinn. Heppilega stofnstærð tel ég vera í kringum 2.000 hreindýr og með veiðum er hægt að stjórna henni nokkuð nákvæmlega Skipt var um fé á Jökuldal vegna riðu fyrir nokkrum árum, hver er helsti munur á þessum stofnum? Skorið var niður á stóru svæði árið 1990 vegna riðu og fé tekið aftur tveimur árum seinna. Einhverra hluta vegna hefur afurðasemi fjár- skiptafjárins verið mun meiri heldur en stofnsins sem var áður. Það eru líklega margar ástæður fyrir því. Við fengum mjög vel ræktað fé úr Ör- æfum, af Ströndum og úr Reykhóla- sveit. Bændur þar voru komnir lengra í ræktunarstarfi en almennt gerðist á Austurlandi. Einnig er meðferðin á nýja fénu mun betri en áður gerðist. Síðast en ekki síst sáu bændur glöggt þessi tvö ár sem var fjárlaust að gróðurfar stórbatnaði á jörðunum. Nýja féð fær því betri haga og fjölbreyttari gróður. Hversu fljótt landið tók við sér sýnir að landið var í nokkuð góðu ásigkomu- lagi þar sem grávíðir og fleiri teg- undir komu svo fljótt upp. Ullarflokkun á Austurlandi hefur batnað mikið, hvað veldur? Bændur eru farnir að hirða ullina miklu betur en áður var og ég þakka það að mestum hluta matsmönnun- um. Þeir hafa verið mjög liprir og farið til bænda og metið ullina við rúning og kennt hvemig ullin þarf að vera til þess að flokkast vel. Mats- mennimir eiga sérstakan heiður skil- ið fyrir starf sitt. Síðan er það veður- farið, héma er þurrviðrasamara en víðast annars staðar á landinu sem þýðir að ullin þófnar síður. Hvað er sérstakt við féð á Freys- hólum? Féð á Freyshólum er gamla Skriðu- klaustursféð en sérstakt leyfi fékkst til að halda eftir 50 kindum þegar annað fé var skorið niður vegna riðuveiki á svæðinu. Ullarlagið er einstakt, togið fíngert og þelið mikið og mjúkt. Fénu var haldið í einangr- un á Freyshólum til ársins 1996 en þá komu tveir hrútar þaðan inn á sæðingarstöðina á Möðruvöllum. Ræktun þessa stofns hefur byggst að mestu á ull og frjósemi fremur en byggingarlagi. Það horfir vonandi til bóta því að í vetur voru allar æmar sæddar með hreinhvítum hrútum sem vom á sæðingarstöðvunum í Laugardælum og í Borgamesi. Rúm- lega helmingur ánna hélt og vonir eru bundnar við að fá góða einstak- linga, bæði hvað varðar ull og kjöt- gæði. Það er mjög slæmt að ekki hafi verið unnið samhliða í ræktun á ull og kjötgæðum. Við höfum ein- faldlega ekki efni á því að sleppa öðrum hvorum þættinum. Viltu segja í örfáum orðum frá sauðfjárbúskap þínum? Sauðburður hefst um mánaðamótin apríl-maí og við þurfum að geta tek- ið við öllum sauðburðinum á húsi. Til eru grindur til að hólfa mestöll húsin niður en ég byggi samt mikið á að hafa æmar eftir burð í hólfum með aðgang að húsi. Auk þess er vélageymslan notuð fyrir sauðburð á vorin og nú eru gemlingamir þar til að rýmka á hinu fénu. Gemlingamir hafa alltaf frjálsan aðgang að fiski- mjöli. Húsin og hlaðan eru að stofni til frá 1965 en hlaðan var stækkuð og steypt í gólfið árið 1991. Síðan hefur heyið eingöngu verið verkað í rúllur og hægt er að geyma flestar rúllumar inni. Gólfið í hlöðunni, fóðurgöngum og görðum er allt í sömu hæð, þá er auðvelt að keyra fóðurvagninn og hver sem er getur séð um gjöfina. Fjárhúsin vom upp- haflega taðhús en árið 1985 var mokað út úr þeim og þau lengd um þrjá metra. Fremst em steyptar þrær og fleytiflórar inn eftir húsunum en þeir hafa ekki virkað nógu vel, sauðataðið er svo þurrt. Haugdæla er notuð til að hræra upp í þrónum og gengur það vel. Féð er sett á fjall eins snemma og mögulegt er og því er gefið með beitinni eins lengi og það étur. Eftir aðra smölum um miðjan október er féð tekið í girðingu og síðan er haust- rúið í lok október og fer féð ekkert út aftur fyrr en að vori. Með því að rýja féð snemma fæst mjög góð flokkun á haustrúninginn og snoðið verður nógu langt til að fara í 1. flokk. Fénu er helst aldrei gefið inni fyrir haust- rúning. Að meðaltali fer öll ullin í 1. flokk, það fer álíka mikið í úrval og 8 - Freyr 2/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.