Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 25
Vesturland oc Vestfirðir
Cullbringu- og
Kjósarsýsla
Sýningar voru í fimm
sveitarfélögum á þessu
svæði og komu samtals til
skoðunar 43 hrútar. Af
þeim voru 11 eldri hrútar,
sem vógu að jafnaði 94,8
kg, og fengu níu þeirra I.
verðlaun. Veturgömlu
hrútamir voru 32 og voru
80,9 kg að meðaltali. Af
þeim voru 30 með I. verð-
launa viðurkenningu.
Eins og oft áður kom
Sigurbjöm Hjaltason á
Kiðafelli með hóp glæsi-
legra hrúta til sýningar en
13 af 32 sýndum hrútum á
sýningunni í Kjósinni
voru honum fæddir þar af
átta í annarra eigu og ber
það m.a. vott um öfluga
ræktun. Tveir hæst dæmdu
hrútar sýningarinnar voru
Steðji 96-004 og Oddgeir
96-003, undan Glampa
93-984, báðir gríðarlega
öflugir holdahnausar með
frábær bak- og lærahold.
Þá skal nefna Hest 96-005
undan Bút 93-982 en hann
er einnig með mjög góð
bak og lærahold en lakari
ull. Þessir þrír hrútar eru
frá Kiðafelli sem og Kiði á
Þorláksstöðum og Skjöld-
ur á Hrísbrú, báðir afar
jafnvaxnir og þéttholda
hrútar undan Glampa 93-
984 með öflug bakhold
sem aðalsmerki eins og
margra annarra Glampa-
sona. Ohætt er að segja að
framangreindir hrútar hafi
fyllilega verið jafnokar at-
hyglisverðustu hrúta á
starfssvæði Búnaðarsam-
taka Vesturlands í haust.
Hnykkur frá Sauðá í Vest-
ur-Húnavatnssýslu. Ljósm.
Guimar Þórarinsson.
Borgarfjarðar-
sýsla
í sýslunni voru skoðaðir
105 hrútar. Þar af vom
tveir eldri hrútar en hinir
103 veturgamlir. Vetur-
gömlu hrútamir vora 77
kg að meðaltali og af þeim
fengu 93 I. verðlauna við-
urkenningu.
I sýslunni fór skoðun
fram ýmist á sameiginleg-
um sýningum eða heima á
bæjum Þátttaka var mis-
jöfn. Fjárræktin er eins og
víða annars staðar all mis-
jafnlega á vegi stödd en
svo virðist sem betur
mætti gera í þeim efnum
sunnan Skarðsheiðar frek-
| ar en annars staðar, von-
andi stendur það til bóta
með auknu skýrsluhaldi
og kynbótastarfi.
I Innri-Akraneshreppi
vora Leifur 96-200 Álfsson
(90-973) frá Vestri-Reyni
og 96-315 Hnykksson (91-
958) frá Ytra-Hólmi álit-
legastir þeirra fáu hrúta
sem komu til dóms.
I Leirár- og Melasveit
voru bestu hrútamir 96-
634 undan Búa 89-950 og
96-670 undan Sólon 93-
977, báðir frá Skipanesi,
og hrútur nr. 109 á Eystri
Leirárgörðum, allt þokka-
lega gerðir einstaklingar
en enginn afgerandi.
í Skorradalshreppi er
vert að nefna Hinna á
Vatnsenda undan Fenri
92-971, samræmisgóðan
með holdugan afturpart og
Ás 96-202 frá Homi und-
an Sólon 93-977 með góða
ull og ágætan afturpart.
I Lundarreykjadals-
hreppi völdust bestir
Bragur 96-168 frá Skarði,
jafnvaxinn og baksterkur
hrútur undan Hnykk 91-
958, Leki 96-243 frá Gull-
berastöðum en hann er
einn af hinum lærasterku
sonum Dropa 91-975 og
Ótti 96-247 einnig frá
Gullberastöðum undan
Dofra frá Vatnsenda, hann
mældist með afar þykkan
bakvöðva.
I Reykholtsdalshreppi
komu til skoðunar fjórir
hálfbræður undan Möttli
94-258 á Kjalvararstöðum
(frá Vatnsenda), Jörvi og
Þristur á Kjalvararstöðum,
Kirtill á Kópareykjum og
hrútur í Samtúni. Þeir eiga
sammerkt að hafa hörð og
góð bakhold og ágætar út-
lögur. Möttull er sonar-
sonur Gosa 91-945 og
skar sig úr í afkvæmasýn-
ingu í haust fyrir vöðva-
söfnun afkvæmanna.
Dropa (91-975) synimir,
Bjartur í Giljahlíð og Kópi
báðir frá Kópareykjum,
eru virkjamiklir með góð
lærahold, auk þess hefur
Kópi feikigóð bakhold.
Hann er svartflekkóttur og
örugglega athyglisverð-
asti misliti hrúturinn sem
kom til dóms á Vestur-
landi í haust og þó víðar
væri leitað.
Mýrasýsla
í Mýrarsýslu komu til
sýninga 99 hrútar. Af
þeim voru sex eldri hrútar
en 93 veturgamlir. Vetur-
gömlu hrútarnir voru 80,3
kg að meðaltali og 83
þeirra voru með 1. verð-
launa viðurkenningu.
I sýslunni fór skoðun
fram ýmist á sameigin-
legum sýningum eða
heima á bæjum.
I Hvítársíðuhreppi
komu til skoðunar þó-
nokkrir athyglisverðir
hrútar. Fyrstan skal nefna
Gjálf 96-473 á Gilsbakka,
undan Álfi 90-973, jötun-
vænn með frábæran aftur-
part. Kommi 96-478
Hörvason (92-972) og
Varteinn 96-479 Blævars-
son (90-974), báðir frá
Gilsbakka, era álitlegir
hrútar með ágæt bakhold.
Frá Önnu Ketilsdóttur á
Þorgautsstöðum kom Kút-
ur, undan Gný 91-967,
afar athyglisverður hrútur,
Freyr 2/98 - 25