Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 31

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 31
Niður frá Bergsstöðum í Vestur-Húnavatnssýslu. Ljósm. Gunnar Þórarinsson. í Ólafsfirði voru fáir hrútar dæmdir. Bestur taldist Stubbur 96-123 á Kvíabekk, sonarsonur Kletts 89-930, sem er feikilega öflugur hrútur með ágæt hold á baki, mölum og í lærum. Kjói 96-253 á Bakka er vel gerður hrútur en fremur þroskalítill. A Dalvík voru aðeins dæmdir tveir veturgamlir hrútar og tveir fullorðnir, hlutu þeir allir I. verðlaun. Galsi 96-212 á Hálsi frá Gestsstöðum í Kirkjubóls- hreppi er jafnvaxin, prúð kind og Dalur 95-320 á Hrafnsstöðum frá Hey- dalsá er öflugur hrútur. I Svarfaðardal voru að- eins dæmdir tveir vetur- gamlir hrútar og hlutu báðir I. verðlaun. Busi 96- 350 á Brautarhóli er smá- vaxin en vel gerð kind en vantar þykkri bakvöðva. A Arskógsströnd var Skáli 95-503 í Syðri- Haga, undan Goða 89- 928, bestur af eldri hrútum en hann hefur mjög þykk- an bakvöðva. í Amameshreppi var Roði 96-340 í Litla-Dun- haga, sonarsonur Gosa 91- 945, best gerður en hann hefur ágæt hold á baki, mölum og í læmm. Glaður 96-341 í Litla-Dunhaga er einnig vel gerður og hefur hreinhvíta góða ull. I Skriðuhreppi vakti at- hygli glæsilegur hópur tveggja vetra hrúta á Þúfnavöllum. Bestur var dæmdur Sómi, undan Firði frá Holti í Þistilfirði. Sómi hefur miklar útlögur og ágæta holdfyllingu hvar sem á honum er tekið. Gulur undan Stikli 91-970 er einnig ágætlega gerður og hefur framúrskarandi holdfyllingu á baki. Að venju voru margir glæsi- legir veturgamlir hrútar á Staðarbakka og meðal þeirra allir bestu vetur- gömlu hrútar sveitarinnar. I efsta sæti var settur Þytur 96-736, sonarsonur Fóla 88-911, en hann er bol- langur og með sérlega góð mala- og lærahold. I öðra sæti var Geir 96-731 en hann er smágerður holda- köggull en fullstuttur. I Öxnadal voru fáir hrútar skoðaðir. Bestur þeirra var talinn Örvar 96- 055 á Auðnum en hann er jafn að allri gerð og ágætlega holdfylltur, sér- staklega á baki og mölum. I Glæsibæjarhreppi vom nokkrir ágætir ein- staklingar. Bestir dæmd- ust tveir aðkeyptir hrútar, báðir frá Heydalsá í Kirkjubólshreppi. Voru það Reki 96-120 á Ytri- Bægisá, undan Stera 92- 323, og Bragi 96-144 á Ytri-Bægisá II, undan Hnoðra 95-801. Báðir em þessir hrútar með ágætan afturpart og ekki síst hold- fyllingu í lærum. A Akureyri voru að venju sýndir nokkrir úr- valseinstaklingar. Bestur dæmdist Hnöttur 96-684 Ama Magnússonar en hann er úrvalseinstakling- ur að allri gerð með hrein- hvíta ull. Stigaðist hann upp á 87,0 stig og var þar með í efsta sæti veturgam- alla hrúta á Búnaðarsam- bandssvæðinu á þessu hausti. Hnöttur er dóttur- sonur Goða 89-928 en auk þess standa að honum sterkar ættir úr búi Ama og búi Þórðar G. Sigur- jónssonar. Bakki frá Stað- arbakka, eign Guðrúnar Helgu, sem er flekkóttur, hefur ágæta holdfyllingu á baki, mölum og í læmm. I Eyjafjarðarsveit vom margir ágætir einstakling- ar skoðaðir. Af eldri hrút- um dæmdist Dreki 95-495 á Vatnsenda, undan Goða 89-928, bestur en hann hefur framúrskarandi hold- fyllingu á mölum og í lær- um en er með gallaða ull. Jörvi 95-500 í Leyningi frá Vatnsenda, undan Hörva 92-972, er einnig ágætlega gerður, jafnvax- inn og harðholda. Af vet- urgömlu hrútunum stigað- ist hæst Bjartur 96-501 í Leyningi en hann á ættir sínar að rekja í Vatnsenda Forkur faðir hans er það- an. Bjartur er einstaklega fríð og fönguleg kind, holdþéttur og með hrein- hvíta og mikla ull. Hlaut Bjartur samtals 86,0 stig og var þar með dæmdur annar besti hrútur á Bún- aðarsambandssvæðinu á þessu hausti. Þessi upp- talning á bestu hrútum í Eyjafjarðarsveit er enn ein sönnunin fyrir hinu árang- ursríka kynbótastarfi Sveins á Vatnsenda und- anfama áratugi. Af öðmm bestu hrútum veturgöml- um í Eyjafjarðarsveit má nefna Glanna 96-315 á Akri, sem er rígvænn og holdmikill, Frey 96-066 á Garðsá, sem er holdþéttur og hreinhvítur, og Snæ 96- 615 á Möðruvöllum, sem er mjög smágerður holda- köggull með ágæta ull. Sudur- Þingeyjarsýsla I sýslunni fór skoðun víð- ast fram heima á búum en í Grýtubakkahreppi, Fnjóskadal og vestan Fljóts í Bárðardal vom sýningar. Skoðun fór fram í öllum sveitum í sýslunni. Sam- tals vom sýndir 238 hrút- ar. Af þeim vom 87 sem voru tveggja vetra og eldri en þeir vom að jafnaði 96,1 kg.á fæti og fengu 84 þeirra eða tæp 97% I. verðlaun. Veturgamlir hrútar vom 151 að tölu og voru slétt 80 kg að jafnaði. Freyr 2/98 - 31

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.