Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 10

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 10
Fjárrœktarfélögin árið 1996 Grundvöllur að öllu nútíma ræktunarstarfi í búfjárrækt er traust og öflugt skýrsluhald um stofninn. Þetta á ekki síður við í sauðfjárrækt en annarri búíjárrækt þar sem leitast er við í ræktunarstarfinu að kynbæta fleiri eiginleika samtímis. Suma af þessum eiginleikum má meta á gripunum sjálfum en aðrir eru metn- ir á grundvelli ættemisupplýsinga þar sem upplýsingar úr traustu skýrslu- haldi em lykilatrið. Þetta á við um mikilvægustu eiginleika í sauðfjár- rækt eins og fijósemi og afurðasemi ánna og að nokkm leyti marga fleiri eiginleika. Nú á allra síðustu misserum er skýrsluhaldið að fá nýtt hlutverk og þar með enn meira vægi en áður. Með aukinni gæðavitund neytenda þróast nú hratt margvísleg vottuð framleiðsla. Einn hornsteinn slíkra framleiðslukerfa er traust skýrslu- hald um bústofn þar sem afurða- skýrsluhaldið er hinn sjálfsagði gmnnur. Þess vegna bendir allt til að skýrsluhald um sauðfé muni fá enn aukið vægi á komandi árum og meiri eftir Jón Viðar Jón- mundsson fW$ ^ Bændasam- tökum íslands og almennari þátttaka bænda í því sé mikilvægt markmið. Hér á eftir er gerð grein fyrir nokkmm meginniðurstöðum úr skýrsluhaldi fjárræktarfélaganna ár- ið 1996.1 töflu eru birtar allar helstu fjölda- og meðaltalstölur fyrir ein- stök félög. Síðan er í texta og mynd- urn hér á eftir gerð nánari grein fyrir ýmsum niðurstöðum. Rétt er að taka fram að þegar fjallað er um fjölda- tölur er miðað við sýslumörk, en í umræðu um meðalafurðir er Sf. Blævur talið með Norður-ísafjarðar- sýslu, þó að búin í því félagi séu nú í Hólmavíkurhreppi, og skipti á milli Eyjafjarðar og Suður-Þingeyjarsýslu eru búnaðarsambandssvæðin, þann- ig að tveir vestustu hreppar Suður- Þingeyjarsýslu teljast í þeim saman- burði til Eyjafjarðar. Pátttaka í starfinu Öll fjárræktarfélög sem skiluðu skýrslum árið 1995 gerðu það einnig árið 1996 og skýring þess að í yfir- litstöflu um félögin kemur fram einu félagi færra en árið 1995 er að tvö félög, Sf. Neisti í Öxnadal og Sf. Glæsibæjarhrepps, voru sameinuð í eitt félag sem kemur fram undir nafni Sf. Neista. Það hlýtur að vera umhugsunarefni fyrir bændur í þessu starfi hvort ekki beri að stefna að sameiningu félaga með það að markmiði að gera þeim mögulegt að vera virkar einingar í faglegu starfi í greininni. Það er sauðfjárræktinni mikil nauðsyn að blásið verðu nýju lífi í faglegt starf í greininni. Þróun hefur góðu heilli síðustu misseri verið í átt að virkara faglegu starfi en verið hafði um langt árabil á meðan greinin mótaðist af hlekkjum fram- leiðslutakmarkana. Önnur nálgun að slíku mætti hugsanlega gerast með því að fjárræktarfélög á hverju sauð- fjárbændafélagssvæði/búnaðarsam- bandssvæði mynduðu sauðfjárrækt- arsambönd sem stæðu að slíku sam- eiginlegu faglegu starfi. Fyrir árið 1996 komu til uppgjörs skýrslur fyrir 956 (943) bú. í þessari grein eru allar svigatölur sambæri- legar tölur fyrir árið 1995 sem eru birtar til samanburðar. Þessu til við- bótar eru örfá bú sem að afstöðnum fjárskiptum eru aðeins með vetur- gamlar ær skýrslufærðar. Fullorðnar ærvoru samtals 143.399 (144.341) og veturgömlu æmar 27.014 (29.891) eða samtals 170.413 (174.232) ær. Þannig fækkar skýrslufærðum ám Hlutfallsleg þátttaka 1996 70 60 50 40 30 20 10 0 Mynd 1. 10-Freyr 2/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.