Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 16

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 16
Tafla 3. Bú með mest kjötmagn eftir skýrslufærða á haustið 1996, þar sem 100 eða fleiri ær voru skýrslufærðar Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr. á 1 Andrés Kristinsson Kvíabekk Ólafsfjarðar 101 173 37,7 2 Indriði Aðalsteinsson Skjaldfönn Blævur 205 190 37,2 3 Hjálmar og Guðlaug Bergsstöðum Kirkjuhvammshrepps 260 201 36,0 4 Aðalsteinn Jónsson Klausturseli Jökull 278 189 35,1 5 Þorsteinn Kristjánsson Jökulsá Borgarfjarðar 228 182 34,8 6 Egill A. Freysteinsson Vagnbrekku Mývetninga 125 192 34,7 7 Heimir Agústsson Sauðadalsá Kirkjuhvammshrepps 273 205 34,4 8 Halldóra Guðjónsdóttir Heydalsá Kirkjubólshrepps 144 186 34,4 9 Félagsbúið Lundi Vallahreppi 264 183 34,4 10 Bjöm og Guðbrandur Smáhömrum Kirkjubólshrepps 251 181 34,1 11 Sigurgeir Jónasson Vogum 11 Austri 209 187 34,1 12 Tryggvi Eggertsson Gröf Kirkjuhvammshepps 239 192 33,9 13 Nanna Magnúsdóttir Kálfanesi II Hólmavíkurhrepps 106 185 33,5 14 Guðjón Jónsson Gestsstöðum Kirkjubólshrepps 120 189 33,3 15 Reynir og Ólöf Hafnardal Blævur 254 188 33,1 nytja að hausti. Hér er um að ræða örfáar ær sem eftir urðu af bústofni Sigurjóns þegar hann lét af fjárbú- skap að mestu fyrir nokkrum árum, en í þessu búi var mjög mikið af fé með Þokugen, hinn stórvirka erfða- vísi fyrir frjósemi, og æmar í þessari litlu hjörð eru af þeim meiði. Af búum þar sem eru 100 ær eða fleiri skýrslufærðar voru 175 bú sem náðu því marki að framleiða 28 kg af dilkakjöti eða meira eftir hverja á haustið 1996. í töflu 3 er gefið yfirlit um þau 15 bú sem raðast efst í þeim lista. Allt eru þetta bú sem löngu eru landsþekkt fyrir einstakar afurðir og mörg þeirra hafa skipt með sér sæt- um á þessum lista um langt árabil. Að þessu sinni er þar efstur á blaði Andres Kristinsson á Kvíabekk í Olafsfirði. Hjá honum var ÍOI ær á skýrslu og skila þær að meðaltali 37,7 kg af kjöti haustið 1996. Nú hefur Andres hafið lífræna fram- leiðslu í sauðfjárrækt og verður vafalítið fróðlegt að fylgjast með hon- um á þeim vettvangi á næstu árum. Indriði Aðalsteinsson á Skjaldfönn er þarna í öðru sæti en hann fær að jafnaði 37,2 kg af kjöti eftir 205 ær. í Frey á síðasta ári er ítarlegt viðtal við Indriða um fjárrækt og fjárbú- skap hans sem ástæða er til að benda öllum á sem ekki hafa þegar lesið það. í þriðja sæti er síðan bú þeirra Hjálmars og Guðlaugar á Bergsstöð- um á Vatnsnesi sem löngu er lands- þekkt fyrir einstakar afurðir. Reikn- að kjötmagn hjá þeim var haustið 1996 36,0 kg eftir hverja á. í næstu tvö sætin skipa sér síðan stjórnar- menn LS, þeir Aðalsteinn Jónsson í Klausturseli og Þorsteinn Kristjáns- son á Jökulsá. Það hlýtur að vera stéttinni styrkur að forystumenn hennar sýni á jafn ótvíræðan hátt frábæra kunnáttu sína til búskapar og raun ber vitni. Það skal áréttað að framleiðslu- magn eftir hverja kind er í ljósi breyttra og breytilegra framleiðslu- hátta ekki jafn einhlítur mælikvarði um búrekstur og það var fyrir einum til tveim áratugum. Það skal að vísu undirstrikað að árangri eins og að framan er gerð grein fyrir ná ekki aðrir en þeir sem hafa til að bera mikla kunnáttu í búskap, búa við af- urðasaman fjárstofn og góðar fram- leiðsluaðstæður. Gæðamat falla I skýrslunum er að finna upplýsingar um gæðamat á 211.485 föllum dilka úr fjárræktarfélögunum hausti 1996. A mynd 4 er sýnt á hvern hátt þetta mat skiptist á gæðaflokka. Líklega Flokkun falla 1996 83,76 □ DIÚ ■ DIA □ Dll □ Dlll ■ DIB □ DIC Mynd 4. hefur matið í félögunum aldrei verið hagstæðara en að þessu sinni. Ann- markar á notkun á þessum upplýs- ingum hafa hins vegar ætíð verið þeir að nokkuð virðist hafa skort á að æskilegt samræmi væri fyrir hendi í matinu. Þá takmarkar það einnig verulega nýtingu á þessum upplýsingum að meginhluti af öllu kjötinu, eða í þessu tilfelli tæp 84% af öllum föllum, fara í einn og sama gæðaflokk. Með nýju gæðamati sem taka á í notkun haustið 1998 fást vonandi miklu marktækari upplýs- ingar fyrir gæðasamanburð. Raunhæfasti samanburður sem 16 - Freyr 2/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.