Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 23
Sýningarstörf
haustið 1997
Dómar á sauðfé haustið 1997 voru unnir af
ráðunautum hjá viðkomandi búnaðarsam-
böndum á hverju svæði. Hjá Búnaðarsam-
tökum Vesturlands voru þau störf unnin af
Lárusi G. Birgissyni, Friðrik Jónssyni og Guðmundi
Sigurðssyni. Þeir önnuðust einnig hluta af sýningar-
haldi í Kjósarsýslu, en Sigurjón Bláfeld mætti þar
einnig á nokkrar sýningar. Einnig önnuðust þeir Vest-
lendingar þessi störf í Austur-Barðastrandasýslu en að
öðru leyti voru þau á svæði Búnaðarsambands Vest-
fjarða unnin af Þorvaldi Þórðarsyni, bónda á Stað í
Súgandafirði. í Strandasýslu annaðist Brynjólfur Sæ-
mundsson dómsstörf, Gunnar Þórarinsson í Vestur-
Húnavatnssýslu og Guðbjartur Gunnarsson í Austur-
Húnavatnssýslu. Jóhannes Ríkharðsson vann að skoð-
un í Skagafirði og Olafur G. Vagnsson í Eyjafirði. I
Þingeyjarsýslum var vinnan í höndum Ara Teitssonar
og Maríu S. Jónsdóttur auk þess sem Ólafur G. Vagns-
son var á hrútasýningum í Norður-Þingeyjarsýslu. I
Múlasýslum hvíldi vinnan á herðum Þórarins Lárus-
sonar en í Autur-Skaftafellssýslu voru Guðmundur Jó-
hannesson og Halla Eygló Sveinsdóttir að störfum. A
Suðurlandi voru dómstörf á höndum Jóns Vilmundar-
sonar og Fanneyjar Ólafar Lárusdóttur.
Frá B.I. var Jón Viðar Jónmundsson við dómstörf á
eftirtöldum svæðum; í Strandasýslu, í Þingeyjarsýsl-
um, í Múlasýslum og Austur-Skaftafellssýslu og auk
þess við dóma á afkvæamahópum í Austur-Barða-
strandasýslu og á einu búi í Dalasýslu.
Skrif um sýningar, bæði á hrútum og afkvæmahóp-
um, hér í blaðinu eru unnin af þeim aðilum sem komu
að dómstörfum á hverju svæði en Jón Viðar hefur yfir-
farið og samræmt texta að nokkru leyti.
I Suðursveit eru
vœnir lirútar eins
og sjá má þessari
mynd. Hér heldur
Sigurbjörn (lengst
til vinstri) í Bjarka
frá Smyrlabjörgum,
Jón í Kalsa frá
Lœkjarhiísum og
Isleifur í Fleyg
frá Smyrlabjörgum.
Ljósm. Halla Eygló
Sveinsdóttir.
Freyr 2/98 - 23