Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 28

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 28
96-431 frá Árbæ og Flötur 96-423 frá Gautsdal báðir á Mávavatni eru einnig at- hyglisverðir hrútar. Flóki 96-063 frá Árbæ, Bliki 96-062 og Prins 96-064 allir á Stað eru jafnvaxnir, bakbreiðir og ullargóðir hrútar. Jaki 96-030 í Arbæ en frá Smáhömrum er ágætlega jafnvaxinn og þéttholda. í Gufudalssveit voru eftirtektarverðustu ein- staklingarnir Skjannasynir (92-968) tveir frá Skála- nesi þeir Prins 96-210 og Seifur 96-206, ásamt Fjarka frá Fremri-Gufu- dal, allt ágætlega gerðir einstaklingar með góða ull. f Vesturbyggð voru bestu hrútar sem sýndir voru hjá Árna Sigurjóns- syni á Krossi en hann sýndi fjóra góða vetur- gamla hrúta. Efstur þeirra var 96-128 sem er mjög jafnvaxinn og fönguleg kind með breitt og þykkt bak, góð læri og góða ull. ísafjarðarsýslur í ísafjarðarsýslum voru samtals sýndir 59 hrútar og voru átta fullorðnir hrútar í þeirri tölu. Veturgömlu hrútamir voru 76,7 kg að jafnaði og fengu 34 þeirra I. verðlaun eða réttir tveir þriðju hlutar. Veturgömlu hrútarnir eru talsvert færri en haustið áður, vænleiki þeirra mjög áþekkur en flokkun talsvert mikið betri. Af hyrndum hrútum í ísafjarðarbæ stóð efstur Trítill í Birkihlíð í Súg- andafirði, klettþungur hrútur með miklar útlögur og feikna mikil bak, mala- og lærahold. Næstur hon- um stóð Brattur á Kirkju- bóli í Dýrafirði, lágfættur, þéttholda og jafnvaxinn. Ágætar kindur voru einnig Lítill í Birkihlíð og 96- 250 á Mýrum. Af kollótt- um hrútum bar af Snær á Kirkjubóli í Valþjófsdal, öflugur og jafnvaxinn hrútur með góða ull. í Bolungarvík voru tveir athyglisverðir hrútar; Palli í Minni-Hlíð er mjög þróttmikill og jafnvaxinn en Nagli á Geirastöðum mældist bakþykkastur hrúta í sýslunum. Strandasýsla Eins og ávallt var mikil þátttaka í sýningarhaldi í Strandasýslu. Samtals mættu til dóms 229 hrútar og voru af þeim 16 eldri hrútar. Veturgömlu hrút- amir, 213 að tölu, vom að meðaltali 82,5 kg að þyngd og dæmdist 171 þeirra í I. verðlaun eða rúm 80% þeirra. Þetta em talsvert fleiri veturgamlir hrútar til sýningar en haustið 1996, en vænleiki þeirra og flokkun er örlítið slakari nú en þá. í Ámeshreppi var sýndur mjög föngulegur hópur af veturgömlum hrútum. Besti hrútur í þeim hópi var Strútur 96- 008, Hjalta í Bæ, frá Bassastöðum. Strútur er ákaflega jafnvaxinn, bol- langur með feikilega góða holdfyllingu á baki, í möl- um og læmm. Hlynur 96- 013 og Stormur 96-014 hjá Kristjáni á Melum em báðir miklir glæsigripir, einkum Hlynur sem er feikilega þroskamikill og metfé að gerð. Báðir em þeir synir Bassa 95-796, sem efstur stóð á sýningu haustið 1996. Þá var Krossi 96-020 hjá Ágústi í Steinstúni ákaflega prúð og vel gerð kind, en hann er sonur Brimils 93-728. í Kaldrananeshreppi var besti hrútur sem sýndur var Dalur 96-303 á Bassa- stöðum, sem er ágætlega holdsamur hrútur, rýmis- mikill með mikil lærahold. Hann er frá Hafnardal. í Hólmavíkurhreppi vom bestu hrútar í Hafnar- dal, sem voru allir rígvæn- ar kindur með mikil læra- hold. Athyglisverðasti hrútur þar var Jötunn 96- 532. Innan girðingar í Steingrímsfirði var Olli 96-347 á Stað bestur, ágætlega jafnvaxin holda- kind. Hann er frá Hafnar- dal. Utan girðingar báru Svansson 96-355 og Hnykill 96-356 hjá Nönnu á Hólmavík af. Þeir eru báðir hymdir, þéttvaxnar holdakindur með ágæt lærahold og hvítir á ull. í Kirkjubólshreppi var að vanda mikið hrútaval, en þeim hrútum er ætíð ástæða til að veita sérstaka athygli vegna þess að lfk- lega er þar að finna ein- hverja af sæðingarstöðv- arhrútum næstu ára. Hrúta- hópurinn á Smáhömrum samanstóð að þessu sinni af fádæma vænum og þroskamiklum einstak- lingum. Þeirra bestur var Eir 96-466 sem er fádæma metfé að allri gerð, vænn, útlögugóður, bollangur með frábær lærahold. Þessi hrútur fékk einnig mjög góða útkomu í af- kvæmarannsókn síðar um haustið. Hann er sonur Kóps 95-426. Hnoðri 96- 469 er einnig feikilega vel gerð kind. Einnig voru þar þrír hymdir hrútar, Ofsi 96-673 var þeirra bestur, feikilega samanrekinn holdakögull en hann er sonur Dropa 91-975. Einnig er ástæða til að nefna Adam 94-410 sem þama var sýndur. Þessi hrútur er einstakt metfé, með fádæma útlögur og mikil hold. Á Heydalsá var einnig hrútaval. Hjá Braga voru bestir Svali 96-475 og Spaði 96-478, helst að aðeins skorti á fyllingu í lærum hjá Svala. Hjá Halldóru var athygli- verðastur Búálfur 96-479, en hann er hymdur, sam- anrekinn holdaköggull, 28 - Freyr 2/98

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.