Freyr

Árgangur

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 41

Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 41
sýndi Gosi 95-396 mikla yfirburði með 130 í eink- unn en þetta er einn af hin- um mörgu sonum Gosa 91-945. Þetta er ákaflega kynfastur hrútur sem gef- ur frábær bak- og lærahold og litla fitu. Við mat á fimm hópum í Syðri-Hofdölum í Við- víkursveit sýndi Nabbi 95-385 algera yfirburði með 120 í einkunn, hann gefur afkvæmi með frábær bak- og lærahold. Hann er sonur Goða 89-928. A Oslandi í Óslands- hlið voru dæmdir fimm hópar flestir undan fjár- skiptahrútum, og sýndi Gústi 93-366 frá Sauða- nesi þar mikla yfirburði með 128 í einkunn. A Brúnastöðum í Fljót- um sló Hnoðri 95-566 aðra hrúta út í samanburði topphrútanna úr afkvæma- rannsókninni haustið 1996 og fékk 119 í einkunn en hann hefur feikilega sterk bakhold. Hnoðri er sonur Fóstra 90-943. A Deplum í Fljótum vakti afkvæmahópur und- an Kára 95-558 verð- skuldaða athygli eins og haustið áður. Fékk hann eins og þá 125 í einkunn. Hann gefur feikilega bak- þykk afkvæmi en fitulítil en þau eru eins og hann sjálfur fremur smávaxin. Eyjafjarðarsýsla Þar í sýslu voru mældir hópar undan 34 hrútum á samtals átta búum og voru eingöngu gimbrar mældar í þessum hópum. Á Syðri-Bægisá í Öxna- dal var Gussi 95-092 með 128 í einkunn en dætur hans höfðu mjög litla fitu og góða ull. Þessi hrútur er sonur Hörva 92-972. Mjaldur frá Tóftum við Stokkseyri. Ljósm. Sveinn Sigur- | mundsson. í Garðshomi á Þela- mörk bar af einkar sam- stæður hópur undan Glanna 95-173 sem fékk 134 í einkunn. Glanni er sonur Gosa 91-945. Á Hríshóli í Eyjafjarð- arsveit vakti mikla athygli glæsilegur gimbrahópur undan Mosa 95-538 sem fékk 125 í einkunn. Mosi er sonur Gosa 91-945. I Samkomugerði I í Eyjafjarðarsveit voru átta hópar metnir og bar þar af Leggur 96-701 með 118 í einkunn en næstur stóð föðurfaðir hans, Utgeisli 93-585, sem staðfesti góð- an dóm frá haustinu áður nú með 115 í einkunn. Suður- Pingeyjarsýsla I afkvæmasýningum fengu dóm 27 hópar á fimm bú- um og voru dæmdar gimbrar í öllum þessum hópum. Tvö af búunum vom í Grýtubakkahreppi á svæði Bsb. Eyjafjarðar. í Hriflu í Ljósavatns- hreppi staðfesti Þorri 95- 576 dóm sinn frá fyrra ári þar sem hann sló alveg út hópa undan þrem vetur- gömlum hrútum sem kepptu við hann. Hann fékk nú 117 í einkunn fyrir mjög samstæðan hóp en Þorri er sonur Gosa 91- 945. í Víðikeri í Bárðardal bám mjög af hópar undan tveim hrútum, Sopa 95- 362 með 133 í einkunn og Hlunk 95-363 með 141 í einkunn, en þessir hrútar eru báðir synir Gosa 91- 945. Á Héðinshöfða á Tjör- nesi sýndi Gulur 95-412 feikilega yfirburði meðal átta hópa sem metnir vom þó að dætur hans væm gallaðar á ull. Gulur fékk 144 í einkunn en hann er eins og aðrir topphrútar í sýslunni í þessum sýning- um sonur Gosa 91-945. IMorður- Þingeyjarsýsla Þar var mikil aukning í þátttöku þar sem mældir vom 97 hópar á 16 búum. I öllum þessum hópum vom eingöngu gimbrar og þessi skoðun fór öll fram sem skoðun á mögulegum ásetningsgimbmm á við- komandi búum, þannig að margir hópar em undan fullorðnum hrútum, en ekki skipulegar mælingar á afkvæmum yngstu hrút- anna. I byrjun getur slíkt hins vegar verið mjög gott til að hreinsa út lakari hluta hrútastofnsins. Hættan við þessa aðferð er að hópamir sé missterkt valdir sem getur auðveld- lega leitt af sér skekkju í endanlegu mati. í Lóni II í Kelduhverfi bar af hópur undan Kóngi 95-582 sem hann fékk 119 í einkunn fyrir. Kóngur er sonur Gosa 91-945. í Garði í Kelduhverfi skipaði Lurkur 93-536 sér í efsta sæti meðal sex hrúta sem fengu dóm. Einkunn hans var 120. Lurkur er sonur Fóla 88- 9n. Á Bjarnastöðum í Öx- arfírði stóð efstur Naggur 95-412 með 119 í einkunn en hann er sonur Gosa 91 - 945; Á Ærlæk í Öxarfirði vom átta hópar mældir og var þar efstur Stjúpi 95- 392 með 122 í einkunn sem er í nokkru ósamræmi við fremur slakan dóm sem hann fékk við sams konar mælingar haustið 1996. Stjúpi er sonur Fóstra 90-943. I Leirhöfn á Sléttu voru mældir fleiri afkvæma- hópar en á nokkmm öðr- um stað eða 13. Þar stað- festi Skari 94-280 góðan dóm frá fyrra ári með 126 í einkunn nú. Skari er son- ur íss 92-251. Ari 94-283 fékk einnig mjög góðan dóm eða 125 í einkunn en hann er sonarsonur Fóla 88-911. í Presthólum í Núpa- sveit stóð efstur Fjalar 95- 301 með 120 í einkunn en hann er frá Hjarðarási. Á Snartarstöðum í Núpasveit fékk hæsta einkunn Gosi 95-293 með 118 í einkunn en hann er sonur Gosa 91-945. I Sveinungsvík í Þistil- firði skar sig feikilega úr hrútur 96-691 með 137 í Freyr 2/98 - 41

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.