Freyr - 01.03.1998, Blaðsíða 38
Afkvœma sýn inga r
hrúta haustið 1997
Haustið 1993 var
tekið upp nýtt
sýningarform í
sauðfjárrækt
þar sem voru afkvæma-
sýningar á hrútum sem
byggðar voru á notkun
ómsjármælinga. Settar
voru ákveðnar reglur um
framkvæmd á þessum sýn-
ingum. Með hverju ári
hefur umfang þessara sýn-
inga aukist verulega.
Haustið 1996 var formi
sýninganna breytt þannig
að bændur gátu valið hvort
þeir vildu byggja þessar
sýningar á mælingum á
hrútlömbum eða gimbr-
arlömbum undan hrút-
unum sem komu til dóms.
Við það jókst umfang
sýninganna umtalsvert.
Reynslan sýnir að fyrir
marga bændur er miklu
viðráðanlegra að standa að
skipulegum mælingum á
gimbrarlömbum, en
hrútlömbum. A mörgum
búum fara hrútlömbin í
sláturhús strax og þau
koma af fjalli þannig að
tími til að standa að
mælingu á þeim og
dómum er hverfandi lítill.
Haustið 1997 varð enn
umtalsverð aukning í
þessum sýningum. Sam-
tals var skráður dómur
fyrir 858 hópa. Þessa
miklu aukningu má fyrst
og fremst rekja til þess að
hjá nokkrum búnaðarsam-
böndurn fóru fram um-
fangsmiklar mælingar á
gimbrum sem um leið
voru byggðar upp sem af-
kvæmarannsóknir.
Það veldur vonbrigð-
um að sjá dæmi þess að
sömu hrútar komi til dóms
tvö ár í röð og í bæði
skiptin með afleitan dóm.
Yfirleitt hefði það gagnast
fjárrækt á viðkomandi búi
betur að þessir hrútar
hefðu verið teknir úr notk-
un eftir fyrra árið. Sýning-
amar eru til þess að
hreinsa stofninn af slíkum
gripum. Aðeins þannig
næst árangur í ræktuninni.
Hér á eftir verður í
stuttu máli fjallað um af-
kvæmasýningamar í
hverju héraði og gerð
grein fyrir nokkrum allra
athyglisverðustu hópun-
urn sem fram komu við
þessa sýningar.
Borgarfjörður
í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu fóm afkvæmasýn-
ingar fram á 10 búum og
komu þar til dóms samtals
49 hópar. A sex búum
voru mæld hrútlömb en á
fjómm þeirra gimbrar.
A Kjalvararstöðum í
Reykholtsdal voru dæmd-
ir þrír hópar og þar bar
Möttull 94-258 mikið af
hrútum, með mjög þykkan
bakvöðva, góð lærahold
og góða ull hjá sonum sín-
um. Fékk hann 127 í eink-
unn. Þessi hrútur er frá
Vatnsenda í Skorradal,
sonarsonur Gosa 91-945.
Við sýningu á Skarði í
Lundarreykjadal bar Spak-
ur 96-167 mikið af hinum
hrútunum og fékk 133 í
einkunn en þessi hrútur er
sonur Hnykks 91-958.
Á Gilsbakka í Hvítár-
síðu bar Högni 96-475 af í
hópi tíu hrúta sem þar
Fimm vœnir lirútar á Freyshólum. Ljósm. Þórariim Lárusson.
38 - Freyr 2/98