Freyr

Volume

Freyr - 01.03.1998, Page 24

Freyr - 01.03.1998, Page 24
Hrútasýningar haustið 1997 Fagráð í sauðfjárrækt gerði um það tillögur að fyrir- komulagi sýninga í sauð- fjárrækt yrði breytt. Haustið 1997 tók sú breyting gildi. Miðað er við það að sýningar á fullorðnum hrútum verði fyrst og fremst fyrir veturgamla hrúta. Um leið verða öll ár jafngild í sýningarhaldi þannig að ekki verður lengur aðgreining í aðal- sýningar og aukasýningar. Þess í stað verða hrútasýningar fyrir vetur- gamla hrúta um allt land á hverju ári. A meðan verið er að framkvæma breytinguna verða eldri ódæmdir hrútar teknir til dóms ásamt vetur- gömlu hrútunum. Hér er fjallað um sýningarhaldið um allt land haustið 1997. Samtals komu til dóms 2617 hrútar á landinu. Af þeim voru 434 eldri en veturgamlir. Hlutu 392 þeirra I. verðlaun eða um 90%. Meðalþungi fullorðnu hrútanna var 96,9 kg. Veturgömlu hrútamir voru samtals 2183 og fengu 1877 þeirra eða um 86% I. verðlaun. Meðal- þungi allra veturgamalla hrúta var 80,4 kg. Eftir að tekinn var upp sam- rekstur hjá sæðingarstöðvunum, þannig að sæðingar eru svæða- bundnar að hluta, hefur ásetningur hrúta mikið breyst. Þau ár sem ekki eru sæðingar er lítill hrútaásetningur en hitt árið þegar lömb eru úr sæð- ingu verður mikill ásetningur lamb- hrúta. Þetta birtist því haustið 1997 í mjög mikilli þátttöku í sýningunum á Vesturlandi en fremur lítilli á Norðurlandi. Hér á eftir er í gefið yfirlit um sýningarhald í hverri sýslu. Um leið er getið áhugaverðustu einstaklinga sem þar komu til dóms, vikið að þró- un í fjárrækt og þáttum sem áhrif hafa þar á. Athygli er vakin á því að hefð- bundnar sýningartöflur er mögulegt að fá frá BI eins og auglýst er á öðrum stað í ritinu. Kisifrá Jaðri í Staðarhreppi í Vestur-Húnavatnassýslu er sonur Gosa á sama bœ. Ljósm. Gunnar Þórarinsson. 24 - Freyr 2/98

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.