Freyr

Volume

Freyr - 01.03.1998, Page 30

Freyr - 01.03.1998, Page 30
hrútar Pálma Jónssonar á Akri af. Þeir eru vel þroskaðir, jafnvaxnir með frábær bak-, mala og læra- hold. Jökull 92-455 á þar þrjá syni og sýnir það að hann er ágætur hrútafaðir. Jökull er frá Mávahlíð á Snæfellsnesi. I sauðfjárræktarfélagi Svínavatnshrepps var besti hrúturinn 96-587 og er hann í eigu Péturs Pét- urssonar, Hólabæ. Hann er vel gerð kind með ágæt læri en slaka ull. Kollóttu hrútamir voru fremur slakir. Af hrútum sýndum utan fjárræktarfélaganna voru veturgamlir hrútar í eigu Einars Svavarssonar á Hjallalandi best gerðir, þroskamiklir og jafnvaxnir. Skagafjarðarsýsla Skoðun á fullorðnum og veturgömlum hrútum í Skagafirði haustið 1997 fór fram jafnhliða lamba- skoðun. Skoðun fór alfar- ið fram heima á búunum eins og undanfarin ár. Alls voru skoðaðir 102 hrútar, 24 fullorðnir og 78 vetur- gamlir, og er þetta mikið færri hrútar en haustið 1996. Astæða þessa litla fjölda er fyrst og fremst sú að 1996 árgangurinn var ekki sæðingaárgangur og flestir hrútar fæddir 1995 voru sýndir veturgamlir haustið 1996. Af fullorðnu hrútunum fengur 17 I. verðlaun og af þeim vet- urgömlu 55 I. verðlaun eða70%. Veturgömlu hrút- arnir vógu að meðaltali 81 kg á fæti. I fullorðnu hrútunum var ekki mikið um glæsi- hrúta, þó báru þnr þeirra af hinum. Bestu þeirra var Ófeigur 94-340 í Stóru- Gröf-Ytri. Hann er frá Mávahlíð, sonur Fóstra 90-943 frá Hjarðafelli. Hann hefur til að bera flesta þá kosti sem finna má í Mávahlíðar- og Hjarðarfellsfénu. Næstur kom Illur 95-363 á Ytri- Hofdölum. Hann er gríð- arvænn með einstaklega breitt bak og sérlega hold- grónar malir og mikinn og þykkan lærvöðva og þriðji í röðinni er Kollur, Núma á Reykjarhóli. Kollur er mjög vænn með sérlega mikla frambyggingu, breitt bak og langvaxinn, en læri mættu vera betri. Að lokum er rétt að nefna háfbræðuma Goða 95-456 á Þorbjargastöðum og Dofra 95-387 í Ríp, syni Goða 89-928. I veturgömlu hrútunum var um heldur meira úrval að ræða. Fyrstan skal nefna Hnall 96-285 Sigmars í Sólheimum. Hann er kollóttur og met- fé að allri gerð og með sérlega sterk lærahold en mætti vera lengri. Annar í röð var Öngull 96-641 á Minni-Ökrum. Öngull er hreinhvítur kollóttur, katt- lágfættur og með frábæra frambyggingu og góð læri. Þá kemur Riddari 96- 481 í Keldudal, aðals- merki hans er mikil bak-, mala- og lærahold. Nagli 96-433 á Syðra-Skörðugil er skemmtilega gerður með áberandi þykkan bak- vöðva, en bæði hann og Riddari í Keldudal em sonarsynir Hörva 92-972. Bósi 96-026 í Ketu er sonarsonur Gosa 91-945. Hann er kattlágfættur, samanrekinn með mikla frambyggingu, breitt og vöðvamikið bak og sér- lega ræktarleg . kind. Kollóttu hrútarnir Hnykill 96-123 í Ökmm og Skær 96-076 á Deplum eru báðir mjög athyglisverðar kindur af hreinu Stranda- kyni, hreinhvítir, lágfættir og jafnir að gerð með mik- il lærahold. Rétt er að nefna nokkra hrúta sem hafa áberandi sterka vöðvasöfnunareiginleika samkvæmt ómsjánni: Frissi 96-201 Keflavík sem auk þess hefur góða ull, Hjarði 96-395 á Hlíð- arenda, keyptur frá Hjarð- arfelli undan Hörva 92- 972, Landi 96-665 á Þor- steinsstöðum, keyptur frá Hagalandi Þistilfírði, Smári 96-324, Óslandi sem er hreinn Þistilfirð- ingur og að síðustu Gosi 96-051, Lágmúla, sem er frábær holdakind en stór- gallaður í fótum. I Skagafirði hafa átt sér stað fjárskipti á all mörg- um bæjum síðastliðin 12 ár. Fjárskiptaféð hefur komið úr Þistilfirði, af Ströndum, úr Reykhóla- hreppi og af Snæfellsnesi, auk þess sem keyptir hafa verið kynbótahrútar frá þessum svæðum á seinni ámm. Með tilkomu óm- sjárinnar hefur verið hægt að gera sér nokkra grein fyrir mismuni í kjötsöfn- unareiginleikum hjá þess- um fjárkynjum við svip- aðar aðstæður. Hingað til hafa heimaræktaðir hrútar af nokkuð hreinu Hest- kyni komið best út úr óm- sjármælingunum, enda væri annað kannski óeðli- legt. Einn og einn hymdur hrútur hefur komið úr Kirkjubólshreppi og hafa þeir flestir staðið sig vel. Kollóttu hrútarnir úr Ár- neshreppi í Strandasýslu hafa margir komið vel út þó að hætt sé við fitusöfn- un ef ekki er að gáð. Þarna er fjárstofn sem gaman er fyrir góða ræktunarmenn að vinna úr. Af Snæfells- nesi hafa komið þónokkuð að góðum einstaklingum, þó hættir því fé um of til fitusöfnunar. Kollótta féð úr Kirkjubóls- og Brodda- neshreppum er yfirhöfuð fitulítið en bakvöðvi mætti vera þykkri. Markviss blöndun við Ámeshrepps- fé hefur oft skilað góðum árangri. Hrútamir úr Þist- ilfirðinum hafa llestir komið fremur illa út í óm- sjánni, en eru að öðru leyti vel gerðir. Alltaf kemur þó fram einn og einn mjög athyglisverður hrútur úr þeim hópi sem stendur Hesthrútunum þó ekki á sporði hvað þessa eigin- leika varða. Dæmi um slíka hrúta mátti sjá í haust. Eyjafjarðarsýsla I Eyjafjarðarsýslu voru hrútar dæmdir heima á bæjunum þetta haustið. Þátttaka í sýningunum var fremur lítil enda vetur- gamlir hrútar þetta árið ekki tilkomnir við sæð- ingar en það hefur mikil áhrif á fjölda sýndra hrúta hvort um sæðingahrútaár- gang er að ræða eða ekki. í sýslunni vom sýndir sam- tals 119 hrútar þar af 87 veturgamlir sem vógu að meðaltali 84,4 kg á fæti og fengu 72 þeirra eða um 83% I. verðlaun. 30- Freyr 2/98

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.