Freyr - 01.05.1999, Síða 52
Tafla 8. Vaxtarlags- og kjötgæóaælingar og eftir fituflokkum við jafnan fall-
þunga 15,81 kg. Fallþungi í hverjum fituflokki er sýndur óleiðréttur
Ómsjármæling Stig Útvortismál, mm
Fitu- Síðu- Fita Fall,
flokkur- Tala fita % Vöðvi Vöðvi Fita Lögun Læri Framp T V TH V/TH kg
1 19 4,9 19,7 63,1 24,5 2,6 3,4 3,35 3,68 196 167 258 0,647 13,28
2 117 7,1 22,1 61,8 24,3 2,9 3,5 3,79 3,80 194 170 258 0,659 15,39
3 34 9,3 24,9 59,6 23,7 3,3 3,6 3,93 4,01 190 173 259 0,668 17,69
3+ 7 12,3 27,9 57,5 23,0 3,1 3,5 4,41 4,24 187 177 250 0,708 19,67
4 1 14,5 30,8 54,9 22,4 3,7 4,6 4,15 4,35 185 172 257 0,669 20,80
og mælingamar bundnar við eina
hjörð og eitt sláturhús. Rétt er þó að
geta þess að það var samdóma álit
aðstandenda afkvæmarannsóknar-
innar og nokkurra forkólfa að þessu
nýja kjötmati, þar á rneðal John Heal
sérfæðings í EUROP-mati, að matið
á Hvammstanga hafí tekist vel og [
því má lita á niðurstöðurnar sem
góða vísbendingu um vaxtarlagsein-
kenni flokkanna.
í stutttu máli sýna útvortismálin
ásamt holdastigunum greinilegan
og hámarktækan vaxtarlagsmun
milli flokka sem fellst fyrst og
fremst í vaxandi holdfyllingu
(hærri holdastig, hærra hlutfall
V/TH, þykkri vöðvar og fíta, styttri
bein), með betri flokkun (frá P til
E). Flokkamunur rnilli hinna þátt-
anna; síðufitu, ómsjármælinga og
vefjahlutfalla, er ekki marktækur
sem eðlilegt er, þar sem ekki er
metið eftir þeim, en engu að siður
kemur þar fram tilhneiging til meiri
kjötgæða með betri flokkun
í töflu 8 eru mælingamar sýndar
eftir fítuflokkum.
Niðurstöðurnar sýna greinilegan
og raunhæfan mun á fítuþykkt og
fítuinnhaldi milli fituflokka enda
auðveldara um vik að flokka, þar
sem öll föllin em fítuþykktarmæld
á síðu og ákveðin fítumörk fylgja
hverjum flokki. Jafnframt sýna þær
að þéttvöxnu skrokkamir falla í
feitari flokkana, enda vel þekkt úr
vaxtarlífeðlisfræðinni að styttri
beinum fylgir meiri þykktarvöxtur
fitu og vöðva, eins og oft hefur ver-
ið minnst á. Hins vegar er það ferli
ekki óbrigðult, eins og fram kemur
í afkvæmarannsóknunum hér að
framan (t.d. afkvæmi Kjóa og
Mola), og verður enn lögð rík
áhersla á það að til þess að fram-
leiða hágæða lambakjöt verður úr-
valið að beinast gegn óhóflegri fítu-
söfnun miðað við beinalengd. Þetta
nýja kjötmat er tvímælalaust öflugt
tæki til að stuðla að slíku úrvali, þar
sem samræming vaxtarlags- og
fituflokkunar veitir tækifæri til að
velja þá hrúta til undaneldis sem
mestu kjötgæði hafa. En þetta tæki-
færi glatast ef ekki er rétt metið og
fullkomins samræmis gæti í matinu
milli sláturhúsa sem nokkur mis-
brestur virðist vera á.
IVlolar
Frestun á
viöurkenningu á
erfðabreyttum
matvælum í Evrópu
Fyrir einu ári leit út fyrir að
erfðabreyttur maís, sykurrófur
og fleiri jurtir væru að leggja
undir sig heimsmarkað nreð
þessar vörur og matvæli úr þeirn.
Fremstir í flokki í þeim sókn
voru bandarískir bændur.
í Bretalandi áttu sér stað fyrr á
árinu harðar deilur um erfða-
breytt matvæli sem lauk með því
að ákveðið var að fresta um eitt
ár að leyfa viðskipti með þau.
Siðan hafa ýnris lönd inna ESB
lagst á sömu sveif varðandi rækt-
un og sölu á erfðabreyttum jurt-
um og afurðum þeirra. Þannig
hefur verið hætt í Grikklandi til-
raunaræktun með þessar jurtir og
sölu afurðanna. Frakkland og
Ítalía hafa lýst fylgi sínu við
frestunina og hreyfíng er í sömu
átt í Hollandi.
Embættismannanefnd ESB
hefur hins vegar lagst gegn þess-
ari frestun, þar sem sambandið
væri þá stefnulaust í rnálinu.
Matvælamarkaðurinn hefur nú
tekið málið upp og sjö stórar
keðjur smásöluverslana i Evrópu
hafa ákveðið að nota ekki erfða-
breytt hráefni í vörur sem þær
selja undir eigin vörumerkjum.
í Bandaríkjunum ráða jafnt
ríkisstjómin og erfðatækniiðnað-
urinn ráðum sínum urn það
hvemig bregðast skuli við þess-
um fregnum frá Evrópu. Annars
vegar hefur hægagangur í viður-
kenningu á erfðabreyttunr afurð-
um í Evrópu verið fordæmdur
nreð hótunum urn kærur til
WTO. A hinn bóginn hefur
landbúnaðarráðherra USA,
Glichman, nýlega bent á að til
lítils sé að fá viðurkenningu á
þessum vömm, ef engir fást þar
til að kaupa þær. í framhaldi af
því hafa samtök bænda nú kornið
þeim skilaboðum til félags-
manna sinna að þeir verði að
halda erfðabreyttri og ekki erfða-
breyttri framleiðslu aðskilinni,
annars geti þeir átt á hættu að
geta ekki selt neitt af uppskem
sinni til Evrópu.
(lnernationella Perspektiv nr. 14/1999).
52- FREYR 5-6/99