Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 8

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 8
Unnið að ýmsum framfaramálum „I stjóm Búnaðar- og ræktunar- sambandsins voru á þessum tíma áhugasamir menn sem vildu láta gott af sér leiða fyrir héraðið. Ég minnist þess ekki að þeir hafi nokkru sinni lagst gegn þeim hug- myndum sem komu ffá mér sem framkvæmdastjóra og ráðunauti. A þessum árum voru teknar upp naut- gripa- og sauðijársæðingar sem hafa haft mikil áhrif á kyn- bótastarfið. Hrossaræktarfélag var stofnað sem hefúr skilað miklum árangri. Þá var stofnað til húsagerðarsam- þykktar og keypt byggingamót, bæði til íbúðar- og útihúsa. Á nokkrum árum voru byggðar 150- 160 byggingar og tókst með því að lækka byggingarkostnað verulega og um leið bæta húsakostinn. Það er víða vel hýst á Snæfellsnesi. í byggingarflokkunum voru aðallega menn úr sveitunum, vaskir bænda- synir sem hlífðu sér hvergi. Þessi þáttur var ekki ómerkur í starfi sambandsins. Ræktunarsambandið, sem var undir sömu stjóm, sinnti ræktunar- ffamkvæmdum, ffamræslu og jarð- vinnu. Reynt var að lána bændum vélavinnuna þar til framlög komu frá því opinbera og greiða með því fyrir aukinni ræktun. þetta tókst ótrúlega vel, sambandið varð ekki fyrir tapi og stóð fjárhagslega vel þegar ég hætti. Sama má segja um Búnaðarsambandið. það var fyrst og fremst vegna þess að bændur héraðsins stóðu vel að sínum sam- tökum.“ Langaði ekki í pólitíkina - Þú ferð fljótlega að sinna fé- lagsmálum þegar á Snœfellsnes kemur. „Já, menn lenda í ýmsu þegar þeir fara að skipta sér af hlutun- um óumbeðið. Það er lítil ástæða til að telja það upp. Ég lenti í kaupfélagsstjórn, var viðriðinn sveitarstjórn í Stykkishólmi í tólf ár, þar af tvö ár sem oddviti, og sinnti ýmsum félagsmálum sem tengjast landbúnaði, sat á Búnað- arþingi og var formaður skóla- nefndar Bændaskólans á Hvann- eyri um tíma.“ - Þú varst kjörinn í sveitarstjórn jyrir Framsóknarjlokkinn, veltirðu aldrei jyrir þér að leggja jyrir þig pólitík? „Nei, þó að ég hafi áhuga á þjóð- málum þá hvarflaði aldrei að mér að leggja það fyrir mig. Ég taldi það ekki eftirsóknarvert. Það þarf mikla snillinga til að sækja og verja það sem er rétt og rangt. Og sannast sagna var ég lengst af ofhlaðinn störfum. Bæjarmálin tóku líka Hjónin Leifur og María á tröppum sumarhúss sem Snœfellingafélagið á en það stendur rétt ofan við höfnina á Arnarstapa. mikinn tíma, ekki síst meðan ég var oddviti,og þá var ég upptekinn við þau öll kvöld og helgar. Ég man að dætur mínar fengu oft að heyra það að ég væri að fara á fund og spurðu mömmu sína hvað væri fundur. Svo stóð þannig á að það var haldinn fundur heima hjá okkur og þá sagði mamma þeirra að nú skyldu þær fylgjast með. En þegar til kom fannst þeim þetta ekkert sérlega merkilegt. En sveitarstjómarmálin geta ver- ið skemmtileg og fýrst eftir að ég hætti fannst mér ég ekki geta fylgst nógu vel með í minni heimabyggð því að starf mitt fór að mestu fram í sveitunum. En það leið hjá.“ - En þessi störf þin, bœði sem ráðunautur og í félagsmálunum, þau hafa væntanlega orðið til þess að þú þekktir hvern mann á Snœ- fellsnesi. „Já, ég þekkti alla í sveitunum að sjálfsögðu og nokkuð í kauptúnun- um.“ - Og ertu sammála séra Arna Þórarinssyni um að þetta sé vont fólk? „Nei, það er ég ekki enda höfum við aldrei tekið þetta bókstaflega. Ég held að fólki hafi þótt vænt um hann. Það er mikið af sómafólki á Snæfellsnesi eins og í öðmm hér- uðum. Meðfram ráðunautastarfinu vann ég töluvert fyrir Búnaðarfélag ís- lands og fór á hrútasýningar um allt land. Það eru ekkert óskaplega margir hreppar sem ég hef ekki komið í. Á þessum ferðum kynntist ég fjölda fólks og hefði ekki viljað missa af þeim kynnum, þær voru skemmtilegar. Það var Halldór Pálsson, þáverandi sauðfjárræktar- ráðunautur, sem fékk okkur héraðs- ráðunautana til að hjálpa sér því að hann komst ekki yfir að mæta á allar sýningar. Auk þess byrjaði ég árið 1957 að fara á hrossasýningar og sinnti dómsstörfum á fjórðungs- og lands- mótum í þrjátíu ár, ýmist á vegum Búnaðarfélagsins eða hrossaræktar- félaganna.“ 8 - FREYR 7/99

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.