Freyr

Árgangur

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 19

Freyr - 15.05.1999, Blaðsíða 19
60 Ekkert K 27.sept. 6. maí 24. maí Áburðartími - meðaltal Mynd 3. Tilraun nr. 385-74 á Hvanneyri. Dreifingartími á kalíáburði (KCl). Þurrefni hkg/ha, meðaltal,, ára. rigndi eftir áburðardreifmgu. Þá geta köfnunarefni og kalí skolast út ef sáðgresið er ekki orðið nógu öflugt til að taka við áburðinum. Það fer eftir sáningartima og veð- urfari hve mikil uppskeran er fyrsta árið, en oftast er hún ffemur lítil. Flestir bændur munu nú sá fræi og áburði saman. Þessar tilraunir benda ekki til annars en að það sé óhætt. Menn ættu þó að hafa það í huga að tilbúinn áburður getur minnkað spírunarhæfni fræs. Þess vegna er öruggast að sá blöndu af grasffæi og áburði strax eftir blönd- un en geyma hana ekki. Dreifingartími á kalíáburði Árin 1974-1980 var gerð tilraun með dreifingartíma á kalíáburði á tún á Hvanneyri, en þar er hentugur staður fyrir slíka tilraun vegna þess að kalíþörf túnsins er mikil, eins og kemur fram á mynd 3. Tilraunin var gerð á framræstri mýri. Dreifingartími fyrst í maí gaf öll árin mesta uppskeru. Uppskeran var 8% lakari þegar kalí var dreift að hausti, en þegar dreift var um„. maí og 15%lakari þegar dreift var um 24. maí í stað þess að dreifa áburðinum,,. maí. Þetta sýnir að það hefur töluvert að segja hvenær kalí er borið á. Tvö fyrstu ár tilraunarinnar var uppskera á liðnum, sem fékk ekki kalí, að meðaltali 19,3 hkg/ha af þurrefni. Fjögur síðari árin var uppskeran aðeins 3,2 hkg/ha af þurrefni að meðaltali. Borið var á 50 kg/ha af kalí, sem líklega hefur verið of lítill áburður ef marka má efnamagnið í grasinu. Það var á árunum 1975-1980 í fyrri slætti og 1976-1977 í seinni slætti, gefið upp sem hundraðshlutar af þurrefni, sjá töflu 2. Þegar borið var á að hausti komu„8% af ábornu kalí í uppskeru. Þegar borið var á„. maí komu 90% af ábornu kalí í uppskeru og við áburðartímann 24. maí 87%. Samkvæmt þessum tölum er líklegt að meira af því kalíi, sem borið var á að hausti, hafi skolast út, en af því sem borið var á að vorinu. Það hefur komið fram hjá fræðimönnum að kalí bindist laust við lífrænar agnir og skolist því auðveldlega úr lífrænum jarðvegi. Þetta er rétt að hafa í huga þegar búfjáráburður er borinn á, að i þvagi er mikið af kalíi. Uppskeran var mest þegar borið var á fyrst í maí og þá var hlutfalls- lega minnst af fosfór, kalsíum og magníum í uppskerunni eins og mynd 4 sýnir. Það stingur í augu hvað hlutfallslega er mikið af fosfór og magníum í grasi tilrauna- liðarins sem fékk ekki kalí. Þegar uppskeran var lítil vegna skorts á kalí, eins og sjá má á mynd 3, þá hafa grösin haft úr nógum fosfór að moða og þess vegna varð fosfór í uppskeru mikill, enda var borið á 29,5 kg/ha af P árlega. „Réttur“dreifingartími Tilraunimar með áburðartíma á nýrækt benda ekki til að það sé til bóta að dreifa köfnunarefni á öðr- um tíma en fosfór og kalí. Það virð- ist heldur ekki skipta máli hvort til- búnum áburði var dreift um leið og grasfræinu var sáð eða nokkm seinna. Þó að það komi þeim tilraunum, sem hér er fjallað um, aðeins óbeint við er rétt að minna á að í köldum ámm getur verið óvarlegt að slá nýræktir seint að hausti. Um það er dæmi úr tilraun sem gerð var á Hvanneyri. í ársbyrjun 1962 kom kuldakast, sem olli víða kali í tún- um, m.a. á Hvanneyri. Þá var ný- hafin tilraun með sláttutíma og beitartíma á nýrækt, sem sáð var í vorið 1961. Sumir reitimir vom slegnir 8. september og fengust þá 17 hestburðir af töðu af hektara. Aðrir reitir vom slegnir 20 dögum seinna, en þá var uppskeran af hekt- ara orðin 33 hestburðir af heyi. Það munaði því minnstu að heymagnið af hektara ykist um einn hestburð á dag á þessu tímabili. Gróðurinn á reitunum, sem slegnir vora seinna (28. september), grisjaðist veturinn sem á eftir fór, þannig að sumarið Tafla 2. Ekkert kalí borið á Kalí borið á að hausti Kalí borið á„. maí Kalí borið á 24. maí 0,52% K í fyrri slætti og 0,32% K í seinni slætti 0,72% K í fyrri slætti og 0,62% K í seinni slætti 0,98% K í fyrri slætti og 0,72% K í seinni slætti 1,14% K í fyrra slætti og 0,88% K í seinni slætti. FREYR 7/99 - 19

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.