Freyr

Volume

Freyr - 15.05.1999, Page 32

Freyr - 15.05.1999, Page 32
fólks starfí hætta af neyslu erfða- breyttra matvæla. Ekki er að efa að reynt verður að tryggja að engar óæskilegar verkanir verði af neyslu hinna nýju matvæla. Þrátt fyrir það er hugsanlegt að t.d. litningabútur af ákveðinni lengd, sem stýrir til- teknum eftirsóttum eiginleika, geti um leið borið skipanir um aðrar og óþekktar breytingar. Mistök í þessu efni geta augljóslega verið afdrifa- rík ef þau uppgötvast ekki fyrr en um seinan. Siðferöilegur vandi og kröfur neytenda Gen sem auka frostþol plantna hafa verið flutt úr lúðu í matjurtir eins og kartöflur og tómatplöntur. í silunga- og laxeldi eru notuð gen úr mönnum til að auka vaxtarhraðann. Þegar hefur verið minnst á litninga úr bakteríum. Slíkur flutningur erfða- efnis milli ólikra lífsforma er mörg- um lítt að skapi og vekur upp sið- ferðilegar spumingar sem erfitt er að svara. Sum trúarbrögð leggja blátt bann við neyslu vissra dýrategunda svo ekki sé minnst á afurðir úr mönnum! Þeir sem neyta eingöngu grænmetis gætu á sama hátt þurft að „kyngja“ því að hluti af erfðamengi grænmetisins sé frá dýrum komið. í ljósi þess að erfðabreyttar mat- jurtir eru komnar á alþjóðlegan markað óska margir neytendur þess að það sé tekið fram á umbúðum hvort varan hafi að geyma erfða- breyttar lífverur og/eða afurðir þeirra. Stjómvöld þurfa að taka afstöðu til þess hvort það eigi að koma upp eftirliti með því að öll matvara sé rétt merkt og að auki hvort yfirleitt eigi að koma á þvílík- um reglum og eftirliti. Kannski verður reynt að finna einhvers kon- ar málamiðlun milli þeirra sem styðja hagnýtingu erfðabreyttra matjurta og hinna sem em því and- vígir. Þá þarf löggjafinn að taka af- stöðu til þess hversu langt skal leyfa líftæknifyrirtækjunum að ganga í framleiðslunni. Hvar á að setja mörkinþ Vilja menn útiloka flutning erfðaefnis úr dýrum eða mönnum í matjurtir, eða á að ganga lengra og hindra notkun erfðaefnis úr veiram og bakteríumþ Hvað um skrautjurtir, vefnaðarjurtir og annan nytjagróður eins og trjáviðþ Tortímingargenið Enn er ónefnt eitt atriði sem kann að orka tvímælis frá sjónarhóli bænda og er í þróun vestanhafs. Verið er að hanna aðferð með að- stoð erfðatækni til að koma í veg fyrir að nota megi fræ sem skorið er upp til að hefja nýja ræktun. Fræ sem vex upp af sáðkominu er með öðram orðum ófrjótt en að allri annarri náttúru sinni sem annað fræ. Bóndi sem áður varðveitti hluta af uppskeranni til sáningar á næsta ræktunartíma verður í þeim tilvikum að kaupa nýtt fræ af fræ- framleiðendum á hverju ári. Auð- velt er að sjá hversu illa það getur komið sér fyrir bændur í fátækari heimshlutum og aðra þá sem eiga undir högg að sækja. Tækni þessi felur sem slík ekki i sér endurbætur á gagnsemi yrkja en tryggir aðeins einkarétt ffæfyrirtækja sem ráða yf- ir nauðsynlegri erfðatækni. Sumir telja ástæðu til að óttast að með þessu geti stórfyrirtæki komist til óeðlilegra áhrifa á markaði með að- fong til landbúnaðar og garðyrkju. Framleiðendur benda hins vegar á að nú þegar era í notkun ijölda- rnörg yrki nytjajurta um allan heirn sem ekki er hægt að nota til fram- haldsræktunar og vísa til að mynda í hin svokölluðu Fi-yrki og einka- leyfi á fjölgun ýmissa skrautblóma. Eðlismunurinn er hins vegar sá, að áliti efasemdarmanna, að þau yrki fela í sér eftirsótta eiginleika sem menn era fúsir til að greiða fyrir, en það er ekki nauðsynlega raunin með hin nýju geld-afbrigði sem innihalda það sem hefur verið kall- að „Tortímingargen“. Óttinn er vonandi þarflaus, ætli tilgangurinn sé ekki fremur að tryggja fram- leiðslurétt á nýjum eftirsóttum yrkjum en að ná heimsyfirráðum með því að læsa aðgang að erfða- efni heilla tegunda. Erfðabreyttar matjurtir og ísland Hér á landi era í gildi lög sem banna framleiðslu, sölu og dreif- ingu á erfðabreyttum lífverum og vöra sem inniheldur þær. Þannig er t.d. óleyfilegt að selja erfðabreytta tómata eða kartöflur. Hins vegar ná lögin ekki yfir unnar afurðir eins og jurtaoliu, barnamat, tóbak, tómat- sósu eða kartöfluflögur svo að nokkur dæmi séu nefnd um algeng- ar neysluvörur. I íslenskum mat- vöruverslunum era á boðstólum vörar sem innihalda jurtafeiti eða sterkju úr erfðabreyttum lífveram. Á sama hátt era ekki í gildi reglur um merkingar á umræddri vöra. Þannig er erfitt fyrir neytendur að gera upp á milli unninna matvæla eftir því hvort í þeim era afurðir erfðabreyttra lífvera eða ekki. Mörg Evrópulönd hafa sett reglur um merkingar á erfðabreyttri vöru en hvorki í Bandaríkjunum né Kanada era í gildi slíkar reglur og erfða- breytt matvara sem þaðan kemur skal þess vegna ekki vera auðkennd í verslunum. Lokaorð Öll ræktunarmenning stendur á tímamótum nú um árþúsundaskipt- in. Aldrei fyrr hefur verið hægt að breyta eiginleikum lífvera á svo stórfelldan hátt sem nú hillir undir. Kynbætur hafa allt fram á síðustu ár verið stundaðar með kynblöndun og úrvali einstaklinga innan teg- undar eða meðal mjög náskyldra tegunda. Flest það, sem lýst er í þessari grein, er enn skammt á veg komið. Þegar verið er að stíga ný skref verður hins vegar að taka af- stöðu til margra erfiðra álitamála. Að þeirri umræðu getur komið fólk úr ólíkum áttum, bændur og rækt- unarfólk, fulltrúar trúarhópa, nátt- úruverndarfólk, sérfræðingar á ýmsum sviðum líffræði og erfða- verkfræði og síðast en ekki sist stjórnvöld en þeirra bíður það vandasama verkefni að taka hinar endanlegu, stefhumarkandi ákvarð- anir. 32 - FREYR 7/99

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.