Freyr - 01.09.2001, Page 5
í fiskeldisfræði“. Þar erum við nú á
lokastigi um samning við Háskóla
íslands um að viðurkenna námið
hér inn í líffræðinám við HI. Fisk-
eldisnámið verður þá nám á há-
skólastigi.
Fiskeldisbrautin var stofnuð árið
1984. A vegum hennar hafa frá
upphafi verið stundaðar umfangs-
mestu rannsóknimar hér við skól-
ann, einkum á bleikju, og þar er
enn mikið verk að vinna. Þannig
hefur á undanfömum áratug verið
lokið við á þriðja tug námsverkefna
og á annan tug starfsmanna hefur
unnið við rannsóknimar.
Þessar rannsóknir hafa verið
styrktar hérlendis af sjóðum eins og
Framleiðnisjóði landbúnaðarins og
Rannsóknaráði Islands og svo einn-
ig af erlendum aðilum eins og
Evrópusambandinu. Mikið sam-
starf er við erlenda háskóla í þess-
um efnum og að sjálfsögðu einnig
við innlendar stofnanir og fyrir-
tæki. Þessir styrkir hafa numið allt
að 150 millj. kr. á síðustu 11 árum.
Fiskeldi hér á landi hefur hins
vegar lifað bæði súrt og sætt og að-
sókn að deildinni hefur sveiflast
mikið. Um 1990 var lægð í grein-
inni og lítil aðsókn í námið. Þá tók
skólinn þá stefnumarkandi ákvörð-
un að láta ekki deigan síga og halda
brautinni gangandi. Eins og kunn-
ugt er er nú mikill vöxtur í fiskeldi
og við höfum þegar orðið vör við
það í aukinni aðsókn að náminu.
Nú er reyndar líka þannig ástatt að
Hólaskóli er eini skólinn á landinu
sem býður upp á þetta nám. Brautin
býður m.a. upp á endurmenntunar-
námskeið í fiskeldi víða um land. A
næstu ámm er stefnt að því að
lengja námið um eitt ár.
Ferðamálabraut
Ferðamálabraut var stofnuð við
skólann árið 1996. Samkvæmt nú-
gildandi námskrá er nám í ferða-
málafræði og rannsóknir á því sviði
á háskólastigi og námið metið inn í
nám við Háskólann á Akureyri og
Háskóla Islands. Námið hér er eins
árs nám og við útskrift fá nemendur
Séð heim að Hólum.
gráðuna „Diploma í ferðamála-
fræðum“.
Við ferðamálabrautina er í gangi
mikið þróunarstarf, annars vegar
um gæðastaðla á ferðaþjónustubæj-
um og hins vegar varðandi menn-
ingar- og náttúrutengda ferðaþjón-
ustu. Við það starf höfum við náið
samstarf við Ferðaþjónustu bænda,
Félag ferðaþjónustubænda og
Hestamiðstöð Islands.
Það er frá því gengið að næsta
vetur munum við halda námskeið
fyrir Háskóla Islands um menning-
artengda ferðaþjónustu. Kennslan
fer fram með hjálp fjarfundarbún-
aðar, auk þess sem nemendur munu
koma hingað að Hólum.
Við vorum að prófa okkur áfram
síðasta vetur með fjarkennslu.
Nemendur sitja þá í kennslustofum
sínum víða um land og fylgjast
með og taka þátt í kennslunni,
stundum með hjálp tölvu.
Við kenndum þannig þrjú nám-
skeið og sett var upp heimasíða á
Netinu fyrir hvert þeirra til stuðn-
ings. Þessi kennsla mun verða þró-
uð áfram enda töluverð eftirspum
eftir námi af þessu tagi.
Byggðafræði
Við leggjum áherslu á það að
þessar þrjár námsbrautir Hólaskóla
hafa landbúnað í útvíkkaðri mynd
að viðfangsefni. Raunar má segja
Hesthúsið á Hólum.
pR€YR 10/2001 - 5