Freyr - 01.09.2001, Page 8
Auðunarstofa í byggingu.
Hóladómkirkja
Kirkjan, og allt sem tengist
henni, gegnir hér veigamiklu hlut-
verki og samband skóla og kirkju á
þessum sögustað er afar náið. Þá
hefur vígslubiskup Hólastiftis að-
setur hér og það gefur staðnum enn
aukið vægi.
Nú er jafnframt verið að endur-
byggja Auðunarstofu í upphaflegri
mynd og á hún að þjóna kirkjunni
og starfsemi á vegum hennar. Auð-
unn biskup Þorbergsson, kallaður
hinn rauði, lét byggja Auðunar-
stofu hér árið 1315 úr viði sem
hann flutti frá Noregi og hún stóð
allt til ársins 1810 að hún var rifin
og timbrið selt, og sagt ófúið. Auð-
unarstofa hin nýja er unnin af mik-
illi snilld, og er í raun mikið lista-
verk og mikilvægt innlegg í bygg-
ingarsögu Islands.
Nýtir kirkjan sér mikið aðstöð-
una hér á Hólum til fundahalda og
námskeiða ?
Já, hún gerir það umtalsvert og
það er þónokkuð af verkefnum sem
eru beint samstarf kirkju og skóla.
Oftast eru þau tengd svokallaðri
Hólanefnd sem hefur með málefni
kirkjunnar hér á staðnum að gera.
Formaður hennar er vígslubiskup
en auk hans eru í nefndinni
prófastur Skagafjarðarprófasts-
dæmis, formaður sóknarnefndar
Hólakirkju og skólameistari Hóla-
skóla. Þá hefur nefndin fram-
kvæmdastjóra.
Hlutverk Hólanefndar er m.a. að
skipuleggja ýmsa starfsemi þar sem
kirkjan kemur við sögu, sem bæði
fer fram í kirkjunni sjálfri, svo sem
messuhald á sumrin og tónleika-
hald, og fundi og ráðstefnuhald á
staðnum.
Það er svo tengt þessu að í sam-
bandi við Kristnihátíð, í tilefni af
þúsund ára afmæli kristni á Islandi,
ákvað Alþingi að stofna svokallað-
an Kristnihátíðarsjóð og veita til
hans kr. 100 milljónum á ári í fimm
ár, alls 500 milljónum króna. Þar er
mælt svo fyrir að meðal verkefna
sem sjóðurinn styrkir séu fomleifa-
rannsóknir á Hólum, í Skálholti og
á Þingvöllum.
Núna er þetta eitt mest spennandi
verkefni hér á staðnum, þ.e. að
skipuleggja þessar rannsóknir og
hrinda þeim af stað. Hólaskóli kem-
ur beint að því ásamt kirkjuyfir-
völdum og með fulltingi Þjóðminja-
safnsins. Hér verður um víðtækt
samstarfsverkefni að ræða sem mun
án efa skipta staðinn og þjóðina alla
mjög miklu máli. Hólaskóli,
Byggðasafn Skagfirðinga og Hér-
aðsskjalasafn Skagfirðinga standa
saman að stöðu sagnfræðings á Hól-
um. Þessi fræðimaður mun koma
mikið að þessum rannsóknum.
Hvemig sérðu fyrir þér þróun
Hóla á nœstu árum?
Ég hef þegar nefnt aðild skólans
að byggðaþróun. Við hlið þess og
sem þátt í því vildi ég nefna um-
hverfismál og sjálfbæra þróun, þ.e.
að þróun í ferðaþjónustu í dreifbýli,
fiskeldi og í hestamennsku verði
þannig að umhverfíð beri ekki tjón
af. Ég tel að markaðssetning og
ímyndarsköpun verði í æ ríkari
mæli háð því að fullt tillit sé tekið
til umhverfisins. Augu almennings
eru sífellt meira að opnast fyrir
umhverfismálum.
Þess vegna erum við að kenna
mikla umhverfisfræði. Hún kemur
við sögu á öllum brautum og er að
aukast. Til dæmis er kennt sérstakt
námskeið í umhverfisfræði á ferða-
málabraut og umhverfisvæn ferða-
þjónusta hefur nú þegar mikinn
hljómgrunn.
Hvað varðar Hólastað þá viljum
við vera í fararbroddi hér í Skaga-
firði í þessum efnum og eigum nú í
viðræðum við sveitarfélagið
Skagafjörð um að unnið verði til-
raunaverkefni í anda Staðardag-
skrár 21 að Hólum, svo sem í sam-
bandi við meðferð sorps o.fl. Hér
búa að jafnaði um 100 manns og
þetta er því þéttbýli sem hefur
nokkuð umleikis.
í þessu sambandi er einnig vert
að átta sig á þeim miklu breyting-
um sem orðið hafa á stöðu Hóla nú
á fáum árum. Á síðustu 10 árum
hefur straumur ferðamanna hingað
margfaldast. Vegakerfið hefur stór-
batnað og ferðalög íslenskra sem
erlendra ferðamanna hafa aukist
hreint ótrúlega. Þá hefur Alnetið og
upplýsingabyltingin sem henni
fylgir komið Hólum miklu meira
inn á kortið en áður.
Þetta er líka skýringin á því hve
auðvelt er að fá hingað gott starfs-
fólk, fólk sem áttar sig á því að hér
býr það við óskaaðstæður og nýtur
allra þeirra þæginda sem það sækir
eftir, stutt í verslun og aðra þjónustu
8 - FR€VR 10/2001