Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 16
Mynd 5. Reiknað magn af dilkakjöti eftir hverja veturgamla á eftir héruðum
haustið 2000.
mun á milli sýslna í afurðum ánna
haustið 2000. Þessi munur er eins
og oft mikill. Það sem mesta at-
hygli vekur að þessu sinni eru nán-
ast ótrúlegar afurðir ánna í Stranda-
sýslu. Þama eru á annan tug þús-
unda ær, sem skýrslur eru um, og
þar er tvílemban að skila að jafnaði
35,3 kg af dilkakjöti, eftir hverja á
með lambi fást 32 kg af kjöti og
eftir hverja skýrslufærða á 31 kg.
Ég nefni þetta ótrúlegar afurðir því
að hefði fyrir áratug síðan því verið
haldið fram að þessum árangri
mætti ná fyrir þennan fjölda fjár
hefðu líklega flestir talið slíkt fjar-
stæðu. Afurðir em einnig feikilega
miklar, eins og myndin sýnir, í
Vestur-Húnavatnssýslu og Barða-
strandarsýslum. Myndin sýnir að
haustið 2000 vom afurðir lakastar á
suðvesturhluta landsins sem að all-
stómm hluta má rekja til heldur
minni frjósemi ánna þar en í öðmm
landshlutum, eins og áður er bent á.
Einnig blasir við á myndinni að svo
virðist sem Austur-Húnvetningar
hefðu nokkuð að vinna í fjárrækt-
inni með því að líta upp til og læra
af nágrönnum sínum í vestursýsl-
unni.
í samtals 19 félögum er fram-
leiðsla eftir hverja á yfir 30 kg af
dilkakjöti en fyrir allnokkrum ár-
um þótti það mikill árangur hjá
einstökum búum hvað þá í heilum
félögum. Þessu marki ná öll félög-
in í Strandasýslu nema eitt. I ein-
stökum félögum eru afurðir mestar
í Sf. Norðfjarðar en þar eru
skýrslufærðar ær að vísu ekki
nema 65 en þær ná þeim mikla
árangri að skila 37,6 kg af dilka-
kjöti að meðaltali. Hjá 126 ám í
Sf. Eskifjarðar er framleiðsla 33,7
kg að meðaltali en þá koma stóru
félögin til skjalanna, í Sf. Kirkju-
hvammshrepps fást 33,4 kg eftir
ána og í Sf. Blævur 33,3 kg.
Við metafurðir fjölgar eðlilega
mikið búum sem eru að ná mjög
miklum afurðum. Samtals voru
253 aðilar, sem náðu 30 kg
mörkunum, eða fleiri en nokkru
sinni áður. I töflu 2 er yfirlit um
þau fimm bú sem eru á toppi þessa
lista haustið 2000. Þrátt fyrir
miklar afurðir eru þarna ekki
slegin nein eldri met. Efsta sætið
skipar Lárus G. Birgisson í Miðdal
í Bolungarvík, en 16 ær hans skila
að meðaltali 41,3 kg af dilkakjöti.
Lárus hefur oft hin síðari ár verið
ofarlega á þessum lista. Sjálfur
sinnir hann þessum fjárbúskap
aðeins að takmörkuðu leyti eftir að
hann tók að sér að leiðbeina bænd-
um á Vesturlandi um sauðfjárrækt.
Ljóst er af því, sem að framan hef-
ur komið fram, að þar á hann
óplægðan drjúgan akur áður en
bændur á því svæði fara í stórum
stíl að mæla sig við hann.
I 3. töflu er gefið yfirlit um þau
17 bú, með 100 skýrslufærðar ær
eða fleiri, sem höfðu mesta fram-
leiðslu haustið 2000. Það voru 276
bú úr þessum stærðarflokki sem
náðu að framleiða 28 kg af dilka-
kjöti eða meira haustið 2000. Eins
og síðustu ár er þama í efsta sæti
bú þeirra Indriða og Lóu á
Skjaldfönn. Hjá þeim eru 220 ær
skýrslufærðar og þær skila að
jafnaði 1,84 lömbum til nytja að
hausti og reiknuð dilkakjötsfram-
leiðsla er 39,5 kg eftir ána. Hér er
um einstakan og frábæran árangur
að ræða. Indriði hafði lýst því í
viðtali í Frey fyrir nokkru árum að
40 kg markinu ætlaði hann að ná í
síðasta lagi árið 2000. Þó að því
marki hafi ekki verið náð er árang-
urinn frábær og enn ein staðfesting
um þann einstaka fjárbúskap sem
þar er stundaður. Eins og á síðasta
ári þá kemur bú þeirrar Hjámars
og Guðlaugar á Bergsstöðum í
öðru sæti. Frjósemi ánna er þar
enn meiri en á Skjaldfönn því að
1,97 lömb fást til nytja að
meðaltali eftir hverja á og reiknað
kjötmagn er 38,8 kg eftir ána.
Næstur þeim kemur nágranni
þeirra, Ellert Gunnlaugsson á
Sauðá, með 36,8 kg eftir ána.
Þessum aðilum og raunar öllum
þeim sem sjá má í töflu 3 er
ástæða til að óska til hamingju
Tafla 2. Bú með mest kjötmaqn eftir skýrslufærða á haustið 2000.
Nafn Heimili Félag Tala áa Lömb til nytja Kg pr./á
Lárgus G. Birgisson Miðdal Skutulsfjarðar 16 219 41,3
Sigurður Viðarsson Brakanda Skriðuhrepps 12 183 40,9
Steinar R. Jónasson Mjólkárvirkjun Vestur-Isfirðinga 13 185 40,0
Guðjón Jóhannesson Syðri-Knarrartungu Breiðuvíkurhrepps 22 209 39,6
Eiríkur Helgason Ytra-Gili Hrafnagilshrepps 15 200 39,6
16 - FréIYR 10/2001