Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Síða 21

Freyr - 01.09.2001, Síða 21
Alyktanir aðalfundar Landssamtaka sauðfjárbænda 2001 Aðalfundur Landssamtaka sauðfjárbænda var hald- inn á Selfossi dagana 28. og 29. júní 2001. Hér á eftir fara heistu ályktanir fundarins en fundargerðin ásamt öllum ályktunum fundarins er birt á heima- síðu Bændasamtakanna, www.bondi.is Mat á landnýtingu vegna gæðastýringar „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 krefst þess að stað- ið verði við viljayfirlýsingu vegna mats á landnýtingu sem fylgdi sauð- fjársamningi. Jafnframt að mat á landi liggi fyrir sem fyrst. Þá skorar fundurinn á Alþingi að ganga frá lagasetningu varðandi gæðastýringu í sauðfjárrækt þegar á haustþingi svo að hægt verði að fara í síðari áfanga gæðastýringamámskeiða.“ Fækkun refa og minka „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 skorar á stjómvöld að auka vemlega fjárveitingar til eyðingar refa og minka þar sem ljóst er að fjölgun þessara meindýra hefur haft mjög skaðleg áhrif á líf- ríkið. Jafnframt bendir fundurinn á að endurgreiðsla á virðisaukaskatti til sveitarfélaga af meindýraeyð- ingu hefur ekki fengist, sem er þó sjálfsögð réttlætiskrafa.“ Flutningskostnaður á sláturfé „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til slátur- leyfishafa að flutningskostnaður verði reiknaður á stykkið en ekki á kíló.“ Ullarmat „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til ull- armatsnefndar að tekinn verði upp lambsullarflokkur í staðinn fyrir úr- valsflokk." Lausnar verði leitað vegna vandamála Goða hf. „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóma Landssamtaka sauðfjárbænda og Bændasamtaka Islands að þær leiti lausnar á þeim vanda sem hefur skapast varðandi slátmn á vegum Goða hf. á komandi hausti. Mark- miðið verði að tryggja bændum slátmn og fullar greiðslur fyrir af- urðir á eðlilegum tíma.“ Miðlun á dilkakjöti milli sláturleyfishafa „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar Landssamtaka sauðfjárbænda að hún beiti sér fyrir því að dilkakjöti verði miðlað milli sláturleyfishafa þannig að vöntun eins hamli aldrei sölu.“ Útflutningsskylda á dilkakjöti „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 leggur til að út- flutningsskylda verði 10% frá 10.- 31. ágúst, 20% í september og október, nema nýjustu sölutölur gefi tilefni til breytinga, og 12% frá 1 .-20. nóvember." Ein útflutningsprósenta fyrir hvert ár „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar Landssamtaka sauðfjárbænda að hún taki til ítarlegrar athugunar fyr- ir næsta ár að aðeins ein útflutn- ingsprósenta gildi fyrir hvert ár.“ „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 leggur til að leitað verði allra ráða til að auka tekjur samtakanna, t.d. með því að auka hlut Landssamtaka sauðfjárbænda í búnaðargjaldi.“ Lækkun tryggingagjalds og verðs á raforku „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar LS að beita sér fyrir því að trygg- ingargjald og raforka lækki til land- búnaðar. Greinargerð: Raforku ætti að vera hægt að lækka til íslenskrar atvinnustarf- semi (landbúnaðar) ekkert síður en til erlendrar stóriðju í landinu. Ekki er heldur ásættanlegt að bændur greiði fullt tryggingargjald miðað við þá möguleika sem þeir hafa nú til atvinnuleysisbóta.“ Reglugerð nr. 60/2000 um aðbúnað sauðfjár verði breytt „Aðalfundur Landssamtaka sauð- fjárbænda 2001 beinir því til stjóm- ar LS að aðbúnaðarreglugerð sauð- fjár nr. 60/2000, verði endurskoðuð. Greinargerð: Segja má með fullum rétti að við- auki við aðbúnaðarreglugerð sauð- fjár, nr. 60/2000, komi aftan að þeim bændum sem á undanfömum ámm hafa búið með fé í góðri trú um að þeir hefðu nægjanlegt hús- rými samkvæmt gildandi reglugerð. Telur fundurinn ekki raunhæft að ekki sé gerður greinarmunur á rúnu og órúnu fé í þessum efnum.“ Vandað verði til töku garna- og heilasýna „Aðalfundur Landssamtaka sauð- pR€VR 10/2001 - 21

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.