Freyr - 01.09.2001, Blaðsíða 31
15,0: Verulega gölluð lærahold.
Lamb sem áreiðanlega getur
ekki flokkast nema í O flokk.
14,5: (eða lakara). Afleit lærahold.
Um er að ræða lömb sem lík-
ur eru á að gætu farið að
flokkast í P.
UIl
Fyrir þennan eiginleika skal
miða við að helst eigi ásetnings-
hrútar að ná 8 (nema mislitir eða
dökkir hrútar), lömb með 7,5 teljast
samt ásetningshæf, 7 verður hins
vegar falleinkunn fyrir þennan eig-
inleika.
10,0: Einstakir ullareiginleikar og
feikilegt ullarmagn, tæplega
notað. Um væri að ræða ein-
staklega mikla, hreinhvíta,
hrokkna, en um leið silki-
mjúka ull með mikinn gljáa.
9,5: Fádæma ullargæði. Gífur-
lega mikið ullarmagns, en
um leið að öllu leiti gallalaus
ull að gæðum og mjög fín og
tog mjúkt og liðað.
9,0: Frábær ull að magni og gæð-
um. Mjög mikið ullarmagn
en um leið frábær ullargæði,
alhvít kind með mjúka og
fína og glansandi ull.
8,5: Mjög góð ull. Ullarmagn
mikið og ullargæði góð. Um
er að ræða alhvítan einstakl-
ing með fremur fína ull.
8,0: Góð ull. Ullarmagn hið
minnsta í meðallagi. Yfirleitt
vel hvít kind, má finnast gult
á haus og fótum en vart finn-
ast gul hár á bol, ef til vill ör-
lítið í skæklum eða á mölum.
Svört og mórauð lömb með
hreinan, jafnan lit, mikið ull-
armagn og fína ull.
7,5: Greinilegir gallar. Ullarmagn
ef til vill í tæpu meðallagi.
Gul hár greinileg í ull en ull-
in samt ekki áberandi gróf,
ekki augljósir aðrir áberandi
gæðagallar á ull. Dökkar
kindur með hreina liti og
meðalull að magni og fín-
leika fá einnig þessa eink-
unn. Refsað er með þessari
einkunn fyrir áberandi dökk-
ar dropur á haus.
7,0: Verulega gölluð ull. Mjög
lítil ull að magni. Mjög áber-
andi gular illhærur í ull.
Mjög gróf og ójöfn ull.
Ohreinir dökkir litir. Tvflitar
kindur. (Þessi einkunn fellir
að sjálfsögðu ekki tvílitt
lamb sem ásetningslamb).
6,5: (eða lægra). Óhæf ull. Ullar-
snoðin, algul kind, hvítar ill-
hærur, úr hófi gróf ull, áber-
andi dökkir blettir á bol.
Slæmur dökkur litur eða
mislitur, einnig t.d. goltótt
sem er áberandi gult um leið
á bol.
Fætur
Hér er beitt sömu aðferð og við
stigun fyrir haus. Ekki er stigað
hærra en 8 fyrir þennan eiginleika
en 8 stig fá hins vegar öll lömb sem
eru í lagi, 7,5 er gallað og 7,0 er
orðin hrein falleinkunn.
8,0: Fótstaða í lagi þannig að
ekki er ástæða til að lækka
heildareinkunn vegna þessa
eiginleika.
7,5: Greinilegur galli. Náin fót-
staða, áberandi grannir og
veiklulegir fætur, linar kjúk-
ur, vottar fyrir snúningi í fót-
stöðu.
7,0: Verulega gallað, þannig að
ekki komi í ásetning. Greini-
lega snúin fótstaða. Mjög
slakar kjúkur. Fótstaða sem
greinilega háir hreyfingum
lambsins.
6,5: (eða lægra). Akaflega alvar-
legir gallar eða hrein van-
sköpun.
Samræmi
Þessi eiginleiki er samsafn
nokkurra atriða sem eðlilegt er að
horfa til þegar verið er að meta
væntanleg ásetningslömb, en eru
atriði sem koma ekki beint í mat á
öðrum eiginleikum. Þarna ber að
nota 8 fyrir það sem við erum vel
sátt við. Hærri einkunnir eru not-
aðar fyrir áberandi kosti, bollöng,
kviðlétt lömb með gott samræmi í
byggingu. 7,5 sett á galla, sem
eru samt ekki meiri en svo að við
getum fellt okkur við lambið sem
ásetningslamb. Einkunn 7 eða
lægra væri hins vegar túlkað
þannig að lambið sé, vegna aug-
ljósra galla, sem ekki koma í stig-
un á öðrum eiginleikum, ekki
tækt sem ásetningslamb. Við
þessa stigagjöf hlýtur fyrst og
fremst að verða að horfa á atriði
sem eru ekki með í annarri stigun
eða mælingum á lambinu. Rétt er
að geta hnikað heildareinkunn til
um hálft stig upp eða niður, hafi
lambið verið of stíft eða vægt
metið í heild með þessari eink-
unn.
Þættir sem eðlilegt er að valdi því
að lamb falli niður á 7 eða lægri
einkunn ættu að vera: Eineistungar,
ákaflega bolstutt lömb, áberandi
kviðmikil lömb, sérstaklega bagga-
kviðuð lömb, mjög háfætt lömb, og
áberandi siginn hryggur. Aðrir út-
litsgallar sem eru það áberandi að
lambið komi ekki til álita sem
ásetningslamb. Hér er hins vegar
rétt að athuga að alls ekki ber hér
að draga niður fyrir alvarlega galla
á haus eða fótum sem áður er búið
að refsa eða fella viðkomandi ein-
stakling fyrir.
Ætíð verður að hafa hugfast að
stigun sem þessi á búfé er mat. Þess
vegna verður ætíð einhver breyti-
leiki í áherslum og vægi hjá ein-
stökum dómurum. í eðli sínu er
ætíð talsverður munur á mati, eins
og hér er lýst, og hins vegar mæl-
ingum með stöðluðum mælitækj-
um.
Forsíðumynd
Á forsíðu er mynd af þremur
hrútum í Oddgeirshólum í
Hraungerðishreppi haustið 2001.
Þeir eru taldir frá vinstri: Trítill
Molason, Dreitill Læksson og
Stútur Bútsson.
FR€VR 10/2001 - 31