Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Síða 48

Freyr - 01.09.2001, Síða 48
farandi: Við 12-13 kg fallþunga er fituþykktin gjarnan 5-7 mm og fara þá flest lömbin í fituflokk 2. Við um 15 kg fallþunga eru enn ívið meiri líkur á að lömb lendi í fitu- flokk 2 heldur en 3, þar sem líkleg fituþykkt á síðu er þá að meðaltali 6-8 mm. Við 17-19 kg fallþunga eru líkur á að meginhluti lambanna fari í fituflokk 3, eitthvað þó í fitu- flokk 2 og einnig eitthvað í 3+ og ofar. Við 20 kg fallþunga eru líkur á að fituþykktin á síðu sé að meðal- tali 10-11 cm, og þar með líkur á að nokkur hluti lambanna geti fallið í fituflokk 3+ eða ofar. Hér erum við að tala um meðaltöl sem hver og einn verður að aðlaga reynslu sinni. Byggt á þessu má taka nokkur mis- munandi dæmi um hagkvæmni böt- unar. Gert er ráð fyrir að grænfóð- urbeitin kosti um 100 kr./kg kjöts, sjá nánar um það hér að framan. Dœmi 1: Lamb er 10 kg (fall) um réttir og líklegt til að flokkast í Pl, sem gefur um 230 kr/kg þegar búið er að leiðrétta fyrir útflutn- ingsskyldu. Verðmæti fallsins er þá 2.300 kr. Grænfóðurbeit í 5 vik- ur (þar til 20.-25. okt.) gerir það að verkum að lambið er orðið 13,5 kg og fer í 02 (leiðrétt verð um 260 kr./kg). Verðmæti fallsins er þá um 3.500 kr., sem er 1.200 kr. meira en um réttir. Kostnaðurinn við bötun- ina er 350 kr., þannig að hagnaður- inn er 850 kr. fyrir þetta lamb. Dœmi 2: Lamb er 13,5 kg (fall) um réttir og líklegt til að fara í 02. Verðmæti fallsins er þá, (sbr. dæmi 1) um 3.500 kr. Grænfóðurbeit í 5 vikur (þar til 20.-25. okt.) gerir það að verkum að lambið er orðið 17 kg og fer í R3 (leiðrétt verð um 252 kr./kg). Verðmæti fallsins er þá um 4.300 kr„ sem er 800 kr. meira en um réttir. Kostnaðurinn við bötun- ina er 350 kr„ þannig að hagnaður- inn er 450 kr. fyrir þetta lamb. Dœmi 3: Lamb er 17 kg (fall) um réttir og líklegt til að fara í R3. Verðmæti fallsins er þá, (sbr. dæmi 2) um 4.300 kr. Grænfóðurbeit í 5 vikur (þar til 20.-25. okt.) gerir það að verkum að lambið er orðið 20,5 kg og fer í R3+ (leiðrétt verð um 230 kr./kg). Verðmæti fallsins er þá um 4.700 kr„ sem er 400 kr. meira en um réttir. Kostnaðurinn við bötunina er 350 kr„ þannig að hagnaðurinn er aðeins 50 kr. fyrir þetta lamb, svo að segja má að nán- ast ekkert hafi fengist fyrir fyrir- höfnina. Áhrif kynbóta á möguleika grænfóðurbeitar Þegar horft er á niðurstöður bestu sauðfjárbúa landsins (Jón Viðar Jónmundsson, 2001) virðist sem margir af þeim sem bestum árangri hafa náð hvað varðar frjósemi og fallþunga séu einnig mjög framar- lega í flokki hvað varðar kynbætur gagnvart gerð og fitusöfnun. Þetta ágæta fólk hefur áttað sig á að eitt af því sem er líklegast til að auka nettótekjur þeirra í framtíðinni er að rækta fjárstofn sem getur náð miklum fallþunga og góðri gerð án þess að fitna óhóflega. Þónokkur bú þar sem meðalfallþungi er á bil- inu 16-18 kg hafa fituflokkun á bil- inu 5-7 á tölulegum skala, sem svarar til þess að stór hluti lamb- anna fari í fituflokk 2 við þennan háa fallþunga. Líklegt er að obbinn af lömbunum á þessum búum þyldi að fara nokkuð yfir 20 kg fallþunga án þess að fara í fituflokka 3+ og yfir. Slíkar kynbætur víkka auðvit- að út möguleika grænfóðurræktar til að bæta hag búanna. A tilrauna- búinu á Hesti hefur verið unnið markvisst að ræktun fjár með mik- inn vöðva og litla fitu og margir bændur, sem náð hafa góðum ár- angri, hafa nýtt sér árangur þessa kynbótastarfs. Innifóðrun Ljóst er að ekki er hægt að treysta á það að beit geti að jafnaði varað fram yfir mánaðamótin októ- ber-nóvember þar sem á þeim tíma er allra veðra von. Þar sem inni- fóðrun sláturlamba er líkleg til að vera dýrari og vinnufrekari en grænfóðurbeit, er fyrst og fremst hægt að réttlæta hana með því að hún lengi sláturtímann. Avinning- ur bænda af slíku eldi ræðst því einkum af því hvort og þá hve miklu hærra verð fæst fyrir kjötið eftir hefðbundna sláturtíð, svo og af því að lömbin haldi áfram að vaxa eftir að þau koma á hús og að hlutfall vöðva og fitu versni ekki. Þegar þetta er ritað er enn nokkur óvissa um greiðslufyrirkomulag hjá sumum sláturleyfishöfum, en sé tekið tillit til breytilegrar útflutn- ingsskyldu og og greiðslu á vaxta- og geymslugjaldi til bænda, þá má a.m.k. gera ráð fyrir að meðalverð á kg kjöts hækki um ca. 10% 1. nóv- ember frá því sem það er í hefð- bundinni sláturtíð, og um 5% til viðbótar eftir 25. nóvember. Sumir sláturleyfishafar greiða svo til við- bótar álag á ákveðna gæðaflokka dilkakjöts, sem er stighækkandi eftir því sem líður nær jólum. Ef menn vilja nýta sér þann ávinning sem felst í hærra meðal- verði í nóvember og síðar verða menn að hafa aðstöðu, tíma og fóð- ur til að halda eldinu áfram á húsi. í flestum tilvikum væri þar um að ræða gimbrar þar sem hrútlömb eru verðfelld eftir lok október. Taki menn þann kostinn að láta gelda hrútlömb til frekara eldis virðist það álit flestra, sem reynt hafa, að betra sé að gera það sem fyrst að haustinu, til að draga úr þeim aftur- kipp sem vill verða fyrstu dagana eftir geldingu. Lykilatriði þess að lömbin leggi ekki af á húsi og helst bæti við sig er að þau fái hey af toppgæðum og próteinríkt kjam- fóður með. Sömuleiðis þarf að gæta að því að fylgjast vel með hníslasmiti sem gjarnan vill magn- ast upp þegar lömb koma á hús. Hreinlæti er þar lykilatriði og rétt er að taka strax frá þau lömb sem greinast með hníslasmit og með- höndla þau. Lömb þessi verða að bíða slátrunar þar til síðar, sam- kvæmt reglum um útskolunartíma þess lyfs sem gefið er við hnísla- 48 - FR6VR 10/2001

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.