Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2001, Síða 50

Freyr - 01.09.2001, Síða 50
10. Innieldi á húsi að lokinni grænfóðurbeit getur aukið hagnað eldisins vegna hærra meðalverðs eftir 1. nóvember. Slíkt eldi er þó ekki síður vandasamt en grænfóðurbeitin og nauðsynlegt að afla frekari reynslu um það hvernig er best að taka lömb af grænfóðrinu yfir á innieldi. Lykilatriði í öllu þessu ferli er að lömbin skorti aldrei prótein í fóðrinu þar sem slíkt leiðir til vöðva- rýrnunar. 11. Beit lamba á tún og grænfóður að sumri með sumarslátrun að markmiði hefur lítið verið reynd hérlendis en ýmsar beit- arplöntur eru til sem gætu skil- að árangri á þessu sviði. Slíkt framleiðslukerfi þarf að meta nánar m.t.t. hagkvæmni. Heimildir Guðjón Þorkelsson, Stefán Aðal- steinsson, Jón Óttar Ragnarsson og Hannes Hafsteinsson, 1979. Áhrif haustbeitar á gæði dilkafalla. Ráðu- nautafundur 1979:158-166. Halldór Pálsson og Ólafur R. Dýr- mundsson, 1979. Beit lamba á græn- fóður. Handbók bænda 29:174-180. Halldór Pálsson, Ólafur Guðmunds- son og Stefán Sch. Thorsteinssn, 1981. Haustbeit sauðfjár. Ráðunautafundur 1981:106-120. Halldór Pálsson og Pétur Gunnars- son, 1961. Bötun sláturlamba á rækt- uðu landi. Rit landbúnaðardeildar At- vinnudeildar háskólans, B flokkur nr. 15. Hólmgeir Bjömsson, 2000. Fjölært rýgresi. Ráðunautafundur 2000: 298- 314. Jóhannes Sveinbjömsson & Bragi L. Ólafsson, 1999. Orkuþarfir sauðfjár og nautgripa í vexti með hliðsjón af mjólkurfóðureiningakerfi. Ráðunauta- fundur 1999: 204-217. Jón Viðar Jónmundsson, 2001. Ur kjötmati fjárræktarfélaganna haustið 1999. Freyr 97 (6-7): 62-68. Ólafur R. Dýrmundsson og Ólafur Guðmundsson, 1987. Vor- og haust- beit sauðfjár. Ráðunautafundur 1987:205-213. Ólafur Guðmundsson og Ólafur R. Dýrmundsson, 1983. Haustbeit sauð- fjár. Búnaðarrit, 96:424-435. Ólafur Guðmundsson og Ólafur R. Dýrmundsson, 1989. Beit og vöxtur lamba. í: Frjósemi, vöxtur og fóðmn sauðfjár. Rit til minningar um dr. Hall- dór Pálsson: 147-168. Sigurður H. Richter, Matthías Eydal og Baldur Símonarson, 1983. Sníkju- dýr og haustbeit lamba á há. íslenskar landbúnaðarrannsóknir 15:29-40. Sigurgeir Þorgeirsson, Stefán Sch. Thorsteinsson og Guðjón Þorkelsson, 1990. The influence of pre-slaughter grazing management on carcass com- position and meat quality in lambs. Búvísindi 3:29-55. Sigurjón Jónsson Bláfeld, 1976. Fóðurkál og áhrif þess á sláturlömb. íslenskar landbúnaðarrannsóknir, 8:66- 85. Stefán Aðalsteinsson, Jón Tr. Stein- grímsson, Þór Þorbergsson og Páll Sig- bjömsson, 1978. Haustfóðrun slátur- lamba. Ráðunautafundur 1978:299- 307. Stefán Aðalsteinsson og Jón Tr. Steingrímsson, 1979. Innifóðmn slát- urlamba. Ráðunautafundur 1979:144- 152. Þóroddur Sveinsson og Gunnar Rík- harðsson, 1991. Nýting og arðsemi grænfóðurræktar. Ráðunautafundur 1991: 26-43. Molar Harðari reglur í ESB til að draga úr salmónellusmiti Reglur sem koma eiga í veg fyrir salmónellusmit og smit af öðrum sjúkdómum, sem berast frá dýrum til manna, á að herða í löndum ESB. Embættismannaráð ESB hefur ákveðið að setja nýjar reglur sem gera kröfur til aðildar- landa þess um strangara eftirlits- kerfi. Að frumkvæði David Byme, sem stjómar málefnum heilsu- og neytendavemdar, mun embættis- mannaráðið einnig setja sér ný og metnaðarfyllri markmið um að fækka sjúkdómstilfellum í búfé innan ESB-landa. Reglurnar munu snerta eldi á öllu fiðurfé, þ.e. kjúklingum, varphænum, og kalkúnum, sem og svínum. Salmónella, kamphylobakter og listeria em allt sjúkdómar sem berast frá búfé til manna. Al- gengastur þessara sjúkdóma er salmónella en árið 1999 var tilkynnt um 166 þúsund tilfelli af salmónella og 127 þúsund tilfelli af camphylobakter í löndum ESB. (Landsbygdens Folk, nr. 31/2001). Lífrænn landbún- aður í sókn í ESB Lífræn ræktun í löndum ESB hefur vaxið um 25% á ári að með- altali frá árinu 1995. í lok ársins 2000 vom ræktaðir 3,7 milljón ha lífrænt, og fjöldi býla með lífræna ræktun var þá 130 þúsund á sam- bandssvæðinu. Það samsvarar 2,9% af ræktuðu landi þar og 1,9% af fjölda býla. Þriðjungur býla þar sem stund- aður er lífrænn búskapur er á Italíu og fjórðungur af lífrænt ræktuðu landi sem nemur um 7% af öllu ræktuðu landi á Italíu. Hæst hlutfall af lífrænt ræktuðu landi í ESB er hins vegar í Aust- urríki eða 8%. í þriðja sæti er Finnland með 6,8%. Þar á eftir koma Svíþjóð og Danmörk. Tvö síðustu ár hefur aukning í lífræn- um landbúnaði í ESB verið hægari en áður en þess er vænst að kúariða og gin- og klaufaveiki í Evrópu, ásamt umræðu um framtíðar stefnumörkun í málefn- um landbúnaðarins muni hvetja til aukins lífræns landbúnaðar. (Landsbygdens Folk nr. 33/2001). 50 - FR6YR 10/2001

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.