Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.2001, Side 55

Freyr - 01.09.2001, Side 55
Lækur 97-843 er með mjög gott kynbótamat eins og fjölmargir af sonum Garps 92-808. ingar sem finnast í gögnunum. Langsamlega mikilvægustu teng- ingamar, sem myndast á milli búa, verða með afkvæmum hrúta á sæð- ingarstöðvunum. Þar við bætast gripir sem seldir eru á milli búa en hafa upplýsingar um ætterni. I þeim efnum hefur samt því miður feikilega mikill upplýsingagrunnur farið forgörðum á síðustu árum vegna þess að menn, sem staðið hafa í fjárskiptum, hafa mjög marg- ir ekki hirt um að koma til skila upplýsingum um ættemi þessa fjár. Hið sama má raunar einnig segja um alltof mikið af þeirri hrútaversl- un sem átt hefur sér stað í landinu á milli landshluta á síðustu árum. Rétt er því að nota tækifærið til að brýna þá aðila sem hugsanlega eiga slíkar upplýsingar í fórum sínum að koma þeim á framfæri. Með ættartengingunum nýtast einnig allar upplýsingar um skylda gripi innan búsins. í hinum hefð- bundnu afkvæmarannsóknum, sem hafa verið miklar að umfangi síð- ustu ár, eru það aðeins upplýsingar um afkvæmi hrútsins sem notaðar eru. í þessum útreikningum koma til viðbótar upplýsingar frá ýmsum skyldum gripum. Hrúturinn á t.d. oft stóran hóp hálfsystra á búinu og ef um er að ræða fullorðinn hrút getur hann einnig vera kominn með stóran hóp dætra. Auk þessa, ef um er að ræða hrúta undan stöðvarhrút- um, þá geta þeir átt hálfsystkini dreifð vítt um landið. Upplýsingar um alla þessu skyldu gripi eru í þessum útreikningum vegnar á rétt- an hátt inn í matið til viðbótar upp- lýsingunum um lömbin undan hrútnum. Með því að taka á þennan hátt til- lit til ættemis er einnig tekið tillit til þess ef verið er að velja á ákveðinn hátt ær undir ákveðna hrúta og þann- ig gerð leiðrétting vegna slíkra áhrifa í þessum útreikningum. Með því að nú em einnig unnið með gögn frá fleiri ámm verða leiðréttingar vegna slíks vals undir hrútana, sem víða er mikið, mun betri en hægt er að fá úr gögnum fyrir aðeins eitt ár. Með útreikningum eftir þessari aðferð eiga að fást niðurstöður sem gera mögulegan samanburð á milli gripa um allt land. Tvímælalaust er það stærsti ávinningurinn sem þannig fæst. Umfangsmikil gögn Gögnin em orðin feikilega um- fangsmikil og í þessum útreikning- um vom upplýsingar úr kjötmati frá þessum þremur árum fyrir rúm- lega 731 þúsund lömb, en kynbóta- mat reiknað fyrir rúmlega 1.113 þúsund einstaklinga. Hér á eftir verður brugðið upp örfáum niður- stöðum útreikninganna. í töflu 1 er birt yfirlit um þá hrúta landsins, sem efst raðast í heildar- einkunn, þegar heildareinkunn er mynduð með því að gefa mati fyrir fitu og gerð jafnt vægi. Þeir hrútar, sem þama koma í sviðsljósið, em margir vel þekktir úr afkvæma- Kóngur 97-847 er með afburða kynbótamat, bæði um gerð og fitu falla. FR€YR 10/2001 - 55

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.