Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2001, Qupperneq 64

Freyr - 01.09.2001, Qupperneq 64
Um vægi eiginleika í afkvæmarannsókn á hrútum Frá haustinu 1998 hafa verið framkvæmdar umfangs- miklar afkvæmarannsóknir fyrir kjötgæðum á hrútum. Þama eru sameinaðar upplýsingar úr mati á lifandi lömbum undan hrútunum og upplýsingar úr kjöt- mati í sláturhúsi á afkvæmum þeirra. í hlutanum fyrir lifandi lömb eru eiginleikar, sem telja í einkunn, ómmælingarnar, bæði þykkt vöðva og þykkt fitu, og úr stigun lambanna stig fyrri læri og stig fyrri ull. í þessum hluta eru það ómmælingarnar og þá einkum þykkt bakvöðva sem hefur mest vægi, m.a. líka vegna þess að það er sá eiginleiki af þessum þar sem yfirleitt er mestur breytileiki fyrri hendi á milli afkvæmahópanna. Úr kjötmatshluta er unnið þannig að unnt er að velja vægi fyrir ann- ars vegar mat fyrir gerð og hins vegar mat fyrir fitu, þ.e. hlutfalls- lega skiptinu á vægi á þessa tvo þætti. Ymsir hafa skoðað niðurstöður fyrir sláturlömbin nánar. Með að- gang að töflureikni er mjög fljót- gert að reikna út verðmæti lamba undan einstökum hrútum. Þetta hafa margir gert og sumir fá þá stundum niðurstöður sem þeim þykja í litlu samræmi við niðurstöður afkvæmarannsóknar- innar. Hér á eftir vil ég aðeins bregða ljósi á hvers vegna svo er. Vona ég að eftir það verði lesend- um ljóst að við getum tæpast búist við miklum ræktunarlegum ávinn- ingi með því að byggja úrval á slík- um niðurstöðum. Verðmæti framleiðslunnar ráðast bæði af magni og gæðum hennar. Þetta birtist bóndanum í mismun- andi verðlagningu á mismunandi gæðaflokkun. Við skulum fyrst aðeins skoða Jón Viðar Jónmundsson, Bænda- samtökum íslands áhrifin af mismun í annars vegar gerð og hins vegar fitumati lamb- anna þegar þessir þættir eru metnir hjá lömbunum við mismunandi þunga. Það sem þarf að byrja á að gera sér grein fyrir er að í kjötmati er fyrir hendi ákveðið samband á milli fallþunga lambanna og flokkunar þeirra, bæði með tilliti til vöðva- fyllingar (gerðar) og fitusöfnunar. Létta lambið hefur ekki náð sama vöðvaþroska og það sem þyngra er og er því að öðru jöfnu með lægra mat fyrir vöðvafyllingu. Þyngra lambið hefur hins vegar að öðru jöfnu safnað meiri fitu en létta lambið og lendir því í hærri fitu- flokki (lakara mati). Þegar gera á samanburð á kjötmati lamba, sem eru misþung, verður því að taka til- lit til þessara áhrifa. Þessi áhrif fall- þungans á kjötmatið em vel þekkt og má því leiðrétta með tilliti til þeirra. Rétt er samt að leggja áherslu á að slíkt er ætíð meðaltals- leiðrétting og því verður ætíð að gæta varúðar ef um er að ræða mik- inn mun í fallþunga á milli hópa eins og ég kem síðar að. Áhrif gerðar og fitusöfnunar á verðmæti dilkafalla Til að sýna áhrif þess við hvaða þunga mat, sem fer fram, hefur á reiknuð verðmæti hef ég því sett upp tvö einföld dæmi. í öðm dæm- inu geri ég ráð fyrir að verið sé að bera saman afkvæmahópa undan þrem hrútum þar sem allur munur milli þeirra liggur í vöðvafyllingu afkvæmanna (mati fyrir gerð), en í hinu tilvikinu er munurinn allur á milli fitusöfnunar hjá afkvæmun- um. í fyrra dæminu geng ég út frá því að við höfum þrjá hrúta, A, B og C. Við emm með lömb undan þeim við 15 kg fallþunga þar sem lömb undan A flokkast í U fyrir gerð að jafnaði, undan B í R og undan C í O. Þá er gert ráð fyrir að við þenn- an fallþunga fari helmingur lamba í fituflokk 3 og hinn hlutinn í fitu- flokk 2. Ég nota verðtölur fyrir gæðaflokka eins og þær em sam- kvæmt verðskrá SS fyrir komandi haust. Síðan skoða ég niðurstöður fyrir afkvæmahópa undan þessum sömu hrútum þar sem ég geri ráð fyrir annars vegar að lömbin séu mun vænni eða 19 kg að meðaltali eða mun rýrari eða aðeins 12 kg að meðaltali. Hliðrun verður þá um leið á flokkun lamba undan hrútun- um, bæði í fitumati og mati fyrir Tafla 1. Innleggsverð dilka af mismunandi vöðvafyllingu við breytilegan fallþunga (sjá texta um frekari skýringar). Hrútur A B C Fallþungi Raunt. Hlutf. Raunt. Hlutf. Raunt. Hlutf. 19 kg 5571 104 5311 100 5137 96 15 kg 4470 105 4245 100 4192 99 12 kg 3540 107 3323 100 3233 97 64- FR6VR 10/2001
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.