Freyr - 01.02.2004, Page 21
Ný aðferð við að skafa
selskinn
Inngangur
Selveiðar hafa verið stundaðar
hér við land frá upphafi byggðar.
Fyrr á tímun voru allir hlutar sels-
ins gjömýttir, þ.e. skinn, kjöt og
spik. A síðari ámm hefur síðan
einn þáttur bæst við, þ.e. sela-
skoðun. A tímum aukinnar ferða-
þjónustu og áhuga fólks á útitvist
og náttúmskoðun, er full ástæða
til þess að leggja rækt við þennan
þátt enda þurfa hefðbundnar nytj-
ar og selaskoðun alls ekki að vera
andstæður. Hér verður þó ekki
fjallað um sel og ferðaþjónustu.
Landselur og útselur eru einu
tegundimar sem em staðbundnar
hér við land. Skinnið af lands-
elskópnum hefur algjöra sérstöðu
og hefur lengst af verið eftirsótt
verslunarvara.
Landselurinn kæpir á vorin og
er aðal kæpingartíminn síðast í
maí og byrjun júní. Kæpingin
hefst nokkm fyrr við Suðurlandi
en við norðurströndina. A Suður-
landi kæpir landselurinn á sönd-
um og uppi í jökulánum, en á lág-
um sjávarskerjum fyrir vestan og
norðan. Vegna kæpingartímans er
landselurinn oft nefndur vorselur.
Kópamir eru veiddir nokkurra
vikna gamlir eða u.þ.b. þegar
kæpan hættir að mjólka og fer að
venja þá undan.
A síðari ámm hefur eftirspum
eftir selskinnum aukist á erlendum
mörkuðum, eftir hmn selskinna-
markaðarins á ámnum 1980 -
1990. Þá em selskinn einnig nýtt í
flíkur og muni hér innanlands.
Þótt verð á vorkópaskinnum
hafi á engan hátt náð því sem áð-
ur var þá ríkir nokkur bjartsýni
um að það geti hækkað. Spýtt vor-
kópaskinn hafa verið flutt út síð-
ustu 15 ár.
Hér á eftir verður í örfáum orð-
um minnst á helstu aðferðir við að
verka og skafa selskinn, en síðan
verður nýrri aðferð lýst eins og
kostur er, þ.e. notkun háþrýsti-
dælu. Aðferð þessi er auðveldari
og fljótlegri í framkvæmd heldur
en eldri aðferðir og hefúr reynst
vel eftir nokkurra ára reynslu.
Fyrstu skrefin og undirbún-
INGUR GÓÐRAR VERKUNAR
* Þegar selur er blóðgaður skal
gera langskurð eftir hálsi, en
ekki þverskurð.
* Blóð má ekki komast í skinnið.
* Ef blóð kemst í skinn skal þvo
það úr eins fljótt og kostur er.
* Gæta skal þess að skinn á óf-
legnu dýri nái aldrei að þoma.
* Nauðsynlegt er að halda skinn-
eftir
Árna Snæbjörnsson,
hlunninda-
ráðunaut BI
inu blautu fram yfir fláningu
því að annars er hætta á að fíta
festist í hárinu. Fitu, sem kemst
í þurrt hár, er mjög erfitt að ná
úr.
* Best er að geyma kópinn í
rennandi vatni eða sjó.
* Ef ekki er um slíkt að ræða má
komast af með að setja kópinn
í plastpoka og hafa pokann vel
rakann að innan.
Nýveiddir landselskópar. Á myndinni má sjá að skinni kópanna er haldið
blautu fram að fláningu með því að breiða plastdúk yfir. Ljósm. ÁS.
Freyr 1/2004- 17 |