Freyr - 01.02.2004, Qupperneq 24
Þegar selskinn er skafið meá háþrýstidælu verður fiturönd eftir á jaðri skinn-
anna. Hér er sýnt hvernig hún er skorin af áður en skinnið er losað af flek-
anum. Ljósm. ÁS.
er þá skorin af áður en naglamir,
sem halda skinninu, eru teknir úr.
Eftir að fitan hefur verið blásin
úr með þessum hætti vilja tægjur
og himnur, sem lágu um fituvef-
inn, vera nokkuð áberandi. Þetta
má ijarlægja með léttri yfírferð
með beittum hníf, en yfirleitt er
þess ekki þörf því að við þurrk-
un/spýtingu hverfur þetta að
mestu og hefiir ekki áhrif á verk-
un skinnsins að öðru leyti en því
að það er dálítið þykkara heldur
en skinn sem skafin eru með eldri
aðferðum. Kaupendur skinna hafa
ekki fundið að þessu þegar skinn-
in eru metin.
Ekki skiptir miklu máli hversu
mikið spik fylgir skinninu, þegar
skafið er með þessum hætti, þótt
e.t.v. sé eitthvað fljótlegra að beita
dælunni ef nett er flegið.
Fita og spikræmur skolast sjálf-
krafa út af brettinu sem unnið er á
og gæta þarf þess að þær lendi
ekki undir skinninu. Velja þarf
þannig stað fyrir þessa vinnu að
hreinsa megi spikið upp eða láta
það hverfa ofan í jarðveginn eða í
burtu með rennandi vatn. Tæpast
verður hjá því komist að fljótandi
fita lendi í hárum skinnsins. Til
þess að auðvelda þvott á skinninu
þá hefúr það reynst vel að skola
fitu úr hárahliðinni í lokin með
því að beita vatnsdælunni á þá
hlið en gæta þess þá að halda úð-
aranum talsvert lengra frá heldur
en þegar skafið er og beita honum
ekki á móti legu háranna.
Samkvæmt tímamælingu hefúr
það tekið 5-10 mínútur að skafa
hvert skinn.
Skinn sem á að spýta
ÞARF AÐ ÞVO
Öll skinn, sem á að spýta/þur-
rka, þarf að þvo sem fyrst. Þvottur
þeirra er afar mikilvægur til þess
að losna við grút sem spillir þeim
á síðari stigum. Vel reynist að nota
heimilisþvottavélar.
* Blóðug skinn eru fyrst skoluð
úr köldu vatni.
* Skinnin eru þvegin í volgu
sápuvatni, hiti þvottavatns má
þó aldrei fara yfir 35 °C.
* Nota má grænsápu eða venju-
legt þvottaduft (með talsverð-
um þvottasóda i).
* Hæfilegt er að blanda 300-400
gr. af þvottadufti í 20-30 lítra af
vatni.
* I fyrsta þvott er gott að nota
100 gr. af þvottasóda ásamt
þvottaefninu.
* Ein blanda nægir fyrir u.þ.b. 10
skinn.
* Skinnið skal þvo upp úr þrem
slíkum þvottablöndum.
* Skinnið er síðan skolað ræki-
lega, fyrst í volgu vatni síðan í
köldu rennandi vatni. Halda
þarf í skinnið aftanvert og gæta
þess að skolvatnið ýfi hárin vel.
* Aldrei má nota bensín, klór eða
olíu til þvotta.
* Skinnin má þvo í venjulegum
þvottavélum.
* I þvottavél er hæfilegt að þvo
tvö í hverri umferð og nota 60
- 100 gr. af þvottaefni.
Spýting/þurrkun selskinna
Þegar búið er að þvo skinnin er
mesta vatnið látið síga úr þeim
með því að hengja þau á slá með
hárin út. Síðan hefst spýtingin
sem felst í því að skinnið er
strengt á fleka eða sléttan timbur-
vegg.
* Æskilegt er að vel lofti í gegn-
um flekann/vegginn.
* Skinnið er fyrst hengt upp með
einum nagla á jaðar skinnsins
mitt á milli hlustagata.
* Þamæst em settir naglar í hom-
in að ofan og síðan strengt á
milli hreifagata.
* Síðan er neðri kantur skinnsins
festur með nagla í gegnum
dindilinn og lengd skinnsins
ákveðin um leið.
* Avallt skal þess gætt að ná
beinni hrygglínu.
* Að lokum er bætt í nöglum
með um 4-5 cm millibili og
þeir settir í hægri eða vinstri
jaðar til skiptis.
* Sumir nota fleka eða spóna-
plötur til að spýta skinnin á og
hafa strikað/merkt mót á plöt-
unni til að strekkja skinnin eft-
ir.
* Flekana eða plötumar má síðan
hafa í hjalli eða útihúsi þar sem
120 - Freyr 1/2004