Freyr

Volume

Freyr - 01.03.2004, Page 34

Freyr - 01.03.2004, Page 34
Alyktanir búnaðarþings Hér á eftir fylgja ályktan- ir búnaðarþings 2004 að undanskilinni fjár- hagsáætlun Allsherjamefnd Stefnumótun í landbúnaði í LJÓSI BREYTTRA AÐSTÆÐNA Fyrir liggur að landbúnaðarráð- herra mun á komandi mánuðum beita sér fyrir umræðu og stefnu- mótunarvinnu varðandi mögu- leika landbúnaðar í nútíð og fram- tíð. Búnaðarþing 2004 fagnar þeim áformum og telur eðlilegt og tímabært að fram fari víðtæk og opin umræða um stöðu og mögu- leika íslensks landbúnaðar í víð- asta skilningi. Markmið þeirrar umræðu er tvíþætt, annars vegar að ræða hvemig efla megi og styrkja þann landbúnað, sem íyrir er í landinu, og hins vegar að leita leiða til að skjóta fleiri stoðum undir landbúnaðinn og búsetu á landsbyggðinni. Ætla má að starfíð verði um- fangsmikið og tímafrekt og því ljúki með ítarlegum tillögum um hvemig framtíð landbúnaðar og byggðar verði best tryggð. 1 ljósi fyrirsjáanlegra breytinga á mörgum þáttum í umhverfi landbúnaðarins virðist full þörf á að endurmeta stöðu flestra ef ekki allra greina landbúnaðarins og greina jafnt styrkleika þeirra sem veikleika í breyttu umhverfí. Búnaðarþing leggur áherslu á að Bændasamtök Islands og bú- greinasamböndin verði frá upphafi þátttakendur í starfinu og bjóði fram til starfsins þá þekkingu, sem fyrir liggur hjá Bændasamtökun- um, jafnt af innlendum sem er- lendum vettvangi landbúnaðar. Samþykkt samhljóða Þrífösun rafmagns Búnaðarþing 2004 beinir því til stjómvalda að brýnum úrbótum á aðgengi landbúnaðarsvæða að þriggja fasa rafmagni, i stað ein- fasa, verði flýtt sem frekast má vera. Verkefhið telst afar brýnt í ljósi þróunar í tæknivæðingu og stærð búa, auk þess sem önnur at- vinnuuppbygging í dreifbýli kall- ar á aðgerðir. Skýringar: Á vordögum 2000 skipaði iðnaðarráðherra nefnd til að gera úttekt á því hve mikið vanti á raflagnir fyrir þriggja fasa rafmagn í landinu. Helstu niður- stöður í skýrslu nefndarinnar em eftirfarandi: 1. Einfasa dreifilínur RARIK og Orkubús Vestíjarða em í dag um 5.000 km að lengd og þríf- asa línur em um 2.880 km. Tal- ið er að kostnaður við að brey- ta núverandi einfasa kerfi að fullu yfir í þriggja fasa kerfí kosti um 9.600 mkr. 2. Heildarkostnaður við allar nauðsynlegar aðgerðir, sem leiðir af forgangsröðun sam- kvæmt óskum sveitastjóma, er áætlaðar að nemi samtals um 1.940 mkr. Ef haft er i huga að þrífösun alls landsins muni kosta um 9.620 mkr eins og fram kemur hér að ofan er þessi sértilgreindi kostnaður um 20% af þeirri upphæð. Ef reynt er að meta þörfina hjá sveitar- félögum, sem hafa ekki svarað, hækkar þetta hlutfall upp í 22- 23%. Því er ljóst að unnt er að forgangsraða nauðsynlegustu aðgerðum við þrífösun miðað við þarfir notanda. 3. Ef litið er á flokkun aðgerða eftir forgangsröðun sveitar- stjóma kemur í ljós að afar brýnar aðgerðir nema um 230-250 mkr. Sjá töflu 3 hér á eftir. 4. Brýnir forgangsflokkar eftir röðun sveitarstjórna munu kosta um 1.200 mkr. í ijárfest- ingum eða um 13% heildar- kostnaðar við þrifösun lands- ins. Lausleg forgangsröðun framkvæmda samkvæmt ósk- um sveitarstjóma eftir kostnaði leiðir í ljós að heildarfjárhæð við þrífösun umfram þessa upphæð skilar nánast engum auknum ávinningi fyrir not- endur miðað við fram komn- ar óskir þeirra. 5. Með þvi að gera átak á 5 ára tímabili við þrífösun dreifikerf- is vegna þessara notenda, sem kosta myndi um 1.200 mkr, væri nánast unnt að fullnægja þörf allra notenda er brýna þörf hafa fýrir þriggja fasa rafmagn. Vanda þeirra notenda, er utan slíkra svæða búa og brýna þörf hafa fyrir þriggja fasa raf- magni, er æskilegt að leysa tímabundið og styrkja á ein- hvem hátt með uppsetningu á tíðnibreytum og/eða rafhrút- um, sem gera þeim kleift að njóta þriggja fasa rafmagns til jafns við aðra notendur. Þessar aðgerðir em mun hagkvæmari en frekari flýting á uppbygg- ingu dreifikerfisins þegar á heildina er litið, eins og ffam kemur hér að aftan. 6. Ef ákveðið verður að verja sér- stöku fjármagni til þrífösunar á næstu ámm er lagt til að RA- RIK verði falið að vinna áætl- un um endurbætur dreifíkerfís- ins fyrir þrifösun miðað við of- angreindar niðurstöður könn- unarnefndarinnar. Verði svo gert er nauðsynlegt að endur- skoða gjaldskrá fyrirtækisins | 34 - Freyr 2/2004

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.