Prentarinn - 01.01.1968, Síða 4
Rlað Hins íslenzka prentarafélags
46. árgangur
1.—12. tölublað 1968
Ritstjórar:
GuSmundur K. Eiríksson
Guðjón Sveinbjörnsson
Prentsmiðjan Hólar hj.
Efnisyfírlít
1 skriftastóli lijá prentmeistaranum
frá Mainz á 500. ártíð hans . 2
Iðnskólinn . 6
A slóðtim Vestur-Islendinga . 8
Winnipeg Icelander . 19
Ráðstefna norrænna prentarasamtaka . 20
Athugasemd við athugasemd . 25
Heidelberg . 26
I skóla hjá Intertype . 31
7. alþjóðaþing bókagerðarmanna . 34
Ilugleiðingar um starf og skipulag II. t. P. . 39
Látnir félagar kvaddir . 41
Lífeyrissjóður prentara . 44
Tvímenningskeppni í bridge . 48
Hraðskákmeistaramót H. f. P. 1967 . 48
Forsíðumynd er hin elzta
sem þekkt er af Jóhanni Gutenberg.
Hún mun upphaflega skorin í trétöflu.
Hinn 3. febrúar s.l. mun Jóhanns Gutenbergs,
er nefndur hefur verið faðir prentlistarinnar,
hafa verið minnzt viða um heim, því sá dagur
er talinn dánardagur hans fyrir 500 árum, þá
örsnauður og sjálfsagt flestum gleymdur. Finn-
bogi Guðmundsson landsbókavörður og Olaf-
ur Pálmason bókavörður birtu að þessu til-
efni t. d. ágætar greinar í Morgunblaðinu og
Lesbók þess og má telja víst að flestir sem
prentverk stunda hafi lesið.
Því mun ég í þessu stutta rabbi ekki rekja
þá sögu er í heimildum finnast um líf hans og
starf er hann eftirlét heiminum. Saga hans
eins og hún er sögð mun kunn flestum er kæra
sig um að vita deili á frumheimildum um
prentlistina, en svo var prentverkið nefnt í
árdaga og er gert enn í dag, jafnvel þótt vafa-
samt sé hvort um eiginlega list getur verið að
ræða eða aöeins almennt handverk. Prentar-
inn hefur oft getið helztu atriða úrævi Jóhanns
Gutenbergs, en sérstaklega tel ég að Hallbjörn
heitinn Halldórsson hafi gert ævi Gutenbergs
góð skil í útvarpserindi, er hann flutti á Jóns-
rnessu 1940 og síðan birtist sem fylgirit með
Prentaranum það ár. Prentarar hafa ávallt haft
dálæti á sögu þessarar persónu er svo afdrifa-
rík áhrif hefur haft á líf manna á okkar jörð.
Eg vil hvetja þá prentara er ekki hafa kynnt
sér grein þessa að lesa hana.
Það er erfitt fyrir okkur tuttugustu aldar
menn að setja okkur inn í líf og lífsviðhorf lið-
inna kynslóða, jafnvel þótt ekki séu 500 ár
í milli. Getur þrátt fyrir það ekki verið lær-
dómur fyrir okkur prentara að gera til-
raun til þess að framkalla sjónarmið, at-
2
PRENTARINN