Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 30
Original Heidelberg
Aratugum saman hafa Original Heidelberg
verið vinsælustu og mestseldu prentvélar í
heimi. Á hverjum mánuði eru um það bil 1000
slíkar vélar framleiddar í verksmiðjunum.
Vaxtarhraði þessara verksmiðja hefur verið
mjög mikill. Starfsliðið var árið 1920 200
manns, en er nú orðið yfir 6000. Á hverjum
degi eru um það bil 650 Original Heidelberg-
vélar á leið til kaupenda með vöruflutninga-
bifreiðum og járnbrautum, eða á leið yfir
höfin með flutningaskipum.
Mér er ekki kunnugt um að nokkur annar
framleiðandi slíkra tækja geti státað af eftir-
farandi tölum:
Til ársins 1925 höfðu verið framleiddar og
seldar 3000 vélar, 1940 27.000, 1950 35.000,
1959 100.000, 1963 140.000, 1967 180.000.
Fjölmargar prentsmiðjur hafa í notkun 5,
10, 20 og jafnvel 30 eða fleiri Heidelberg-
vélar, og prentsmiðjur sem nota digul- og
cylinder-vélar frá verksmiðjunni skipta þús-
undum. Meira en 80% af framleiðslunni fer
til útflutnings.
Aðalstöðvarnar og verksmiðjan í Heidelberg
I aðalstöðvum fyrirtækisins er sölustjórnin,
skóli fyrir prentara, prentsmiðja til sýningar
og auglýsinga- og sýningarprentunar, sam-
setningarverksmiðju fyrir Heidelberg Rota-
speed-vélar, og skóli fyrir starfsmenn.
Fyrirtækið leggur mikla áherzlu á þjálfun
uppvaxandi kynslóðar tæknimanna og annarra
starfsmanna. Það veitir samtímis 300 manns
sérstaka þjálfun, sem stendur í þrjú ár, áður
en þeir hefja fullkomin störf við framleiðsl-
una. Einnig cr í aðalstöðvunum rannsóknar-
og þróunardcild til þess að leggja sitt af mörk-
um til aukinnar tækni í prentiðnaðinum, og
árið 1966 voru reistar miklar byggingar í
Heidelberg, sem hýsa þessa starfsemi. Enn-
Frá Wieslock-verksmiSjunum. Samsetning á cylinder-
vclum. A myndinni sést aðeins hluti samsetningar-
deildarinnar.
28
PRENTARINN