Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 35
Ég fékk þetta leyfi aðeins vegna þess, að ég
var útlendingur; annars eru Bretar manna
formfastastir, og hafi maður á annað borð
verið innritaður á námskeið í meðferð setjara-
véla, verður hann möglunarlaust að vera á því,
og engu öðru, — ef hann er Breti.
Ég var settur þarna á verkstæði með við-
gerðarmanni, sem fór milli fyrirtækja til við-
gerða, þegar þörf var. Hann vann þarna við
viðgerðir á „tape-unitum“, og ég var látinn
njóta leiðbeininga hans í því. Þegar hann var
svo kallaður út í viðgerðarferðir, setti hann
mér fyrir verkefni að vinna að, meðan hann
var í burtu. Þetta hjálpaði mér mikið til að
komast inn í tæknimálið og enskuna almennt.
— Þarna var ég síðustu tíu dagana."
„Hvernig var með frítímann, — ferðaðist
þú ekkert um?“
„Jú, nokkuð. Annar Englendingurinn hafði
bíl og bauð mér oft út í sveitirnar um helgar.
Það voru mjög skemmtilegar ferðir.“
Nú var Olafur farinn að verða fljótmæltur
og byrjaður að gjóta augunum á úrið. Og þar
sem ég vissi að óðum nálgaðist heimsóknar-
tíma á Fæðingardeildinni, og að jjar beið hans
nýfædd dóttir, spurði ég þessarar sígildu
spurningar:
„Er það eitthvað, sem þú vildir segja að
lokum, Ólafur?“
„Já, ég vildi gjarnan koma því á framfæri,
sem kennarinn minn úti sagði. Hann taldi jjað
sannaða staðreynd, að langflest hilanatilfelli
setjaravéla stöfuðu einfaldlega af vanhirðu og
vankunnáttu þeirra, sem þær nota. Lágmarks-
skilyrði fyrir réttum og snurðulausum gangi
setjaravéla er, að hreinsa þær vel, smyrja rétt
og reglulega, og yfirleitt fara ekki með vélina
eingöngu sem hlut, sem nóg er að skrönglist
áfram daginn. Þetta er viðkvæmt tæki, sem
nauðsynlegt er að hugsa um af umhyggju.
Að síðustu vil ég koma á framfæri þökkum
mínum til Guðmundar Benediktssonar og
stjórnar H.I.P., sem svaraði beiðni minni um
1500 kr. styrk úr Framasjóði með því að
veita mér 3000 kr. ferðastyrk, samkvæmt sam-
þykkt stjórnarfundar. Það finnst mér þakkar-
vert.“
Hér á myndinni sést cin
nýjasta Ijóssetningarvélin
jrá Intertype, sem nejnist
Fototronic. Setningarvélin
getur Ijósmyndað 20 stafi
á sekúndu. A leturskífunni
sem setjarinn heldur á ern
240 stajir.
PRENTARINN
33