Prentarinn - 01.01.1968, Page 42

Prentarinn - 01.01.1968, Page 42
Á aÖalfundi H.Í.P. fyrir tæpum tveim ár- um gerði ég nefndaskipulagið að umræðu- efni og þar benti ég á þá þörf að fjölga starf- andi fulltrúum fyrir félagið og breyta starf- sviðum þeirra. Það er mér ríkt í huga að leggja fram breyt- ingatillögur á aðalfundi til úrbóta í þessum efnum. Mér þykir rétt að kynna tillögur, sem ég hef samið við 5. gr. reglugerðar um Fast- eignasjóð H. I. P. 5. gr. HljóSar svo: a) Fimm manna nefnd, sem nefnist Hús- nefnd, skal hafa með höndum rekstur húss fé- lagsins í Rvík, sjá um viðhald og leigu, ef ein- hver er. Einnig skal Húsnefndin sjá um rekst- ur félagsheimilisins, lán og leigu á því og allt það skemmtanahald, sem þar fer fram á veg- um félagsins. Nefndin skal færa í sérstaka daghók allt er húsinu viðkemur og gera gjaldkera H.I.P. er annast reikningshald sjóðsins, skil mánaðar- lega. Húsnefndin er þannig skipuð: Aðalfundur H.Í.P. kýs 3 menn til tveggja ára og skal einn ganga úr nefndinni á hverju ári. Árlega skal stjórn H. í. P. og kvenfélagið Edda skipa sinn hvorn fulltrúann í nefndina. b) Fimm manna nefnd, sem nefnist Mið- dalsnefnd, skal hafa með höndum öll málefni er varða jörð og fasteignir félagsins í Mið- dal. Miðdalsnefnd skal sjá um rekstur orlofs- heimilisins, útleigu á búinu og hafa þau sam- skipti við Byggingafélagið Miðdal, sem nauð- synleg eru. Nefndin skal færa í sérstaka dagbók, allt er að búinu, orlofsheimilinu og sumarbústaða- svæðinu viðkemur og gera gjaldkera H.I.P., er annast reikningshald sjóðsins, skil mánaðar- lega. Miðdalsnefnd er þannig skipuð: Aðalfund- ur H.I.P. kýs 4 menn, 2 menn á ári til tveggja ára. Stjórn H.I.P. skipar fimmta manninn ár- lega. c) Þriggja manna nefnd skal sjá um rekstur Orlofsheimilis H. I. P. að Ulugastöðum í Fnjóskadal. Nefndin nefnist Illugastaðanefnd. Nefndin skal skipuð þannig: Tveir menn, bú- settir á Akureyri eða nágrenni, kosnir á aðal- fundi H. I. P., og einn skipaður af stjórn H. í. P. Nefndin skal halda dagbók og gera gjald- kera H. I. P., er annast reikningshald sjóðsins, skil árlega. d) Enginn félagsmaður H. I. P. má vera í fleiri en einni nefnd samtímis. Breytingar verði gerðar á 29. gr. laga H.I.P. og á 2., 3. og 10. gr. reglugerðar um lóðir og byggingar í sumarbústaðalandi H.I.P. í Mið- dal vegna nafnabreytinga nefndanna. Eins og sjá má af framangreindum tillög- um er gert ráð fyrir endurskipulagningu nefndanna og nafnabreytingar í samræmi við verkefni þeirra. Nöfnin Fasteignanefnd og Orlofsheimilis- nefnd hverfi burt. Sömuleiðis er gert ráð fyrir fjölgun nefndameðlima, þannig að í þessum 3 nefndum Fasteignasjóðs verði starfandi 13 menn í stað þeirra 5 sem nú eru. Félagsheimil- isnefnd verður óþörf, þar eð gert er ráð fyrir að Húsnefnd yfirtaki þau litlu verkefni, sem hún hefur. I sambandi við niðurlagningu Félagsheimil- isnefndar yrði raunverulega engin breyting, því að gert er ráð fyrir að fulltrúi Kvenfélags- ins Eddu verði í Húsnefnd og heldur hann því áfram sömu störfum fyrir félagsheimilið í hinni nýju nefnd. Lestur fundagerða hefur oft og tíðum tekið ærinn tíma á almennum fundum hjá okkur. Þessi lestur er efalaust ein orsökin fyrirdræmri fundasókn og sömuleiðis hin rnikla óstundvísi, þar sem líklegt má telja, að menn hugsi sem svo, að þeir sleppi við að hlusta á lesturinn með því að koma seint á fundina. Þær raddir hafa heyrzt, að sleppa beri lestri fundagerða. Mér finnst það heldur óráðlegt. Eg er hlynntur þeirri hugmynd, að fjölrita þær og senda út til allra félagsmanna. — Það fyrirkomulag hefur marga augljósa kosti. Helzti kosturinn er vissulega sá, að fundatími sparast. I öðru lagi gefst félögunum betra tækifæri að fylgjast með málum félagsins, þeg- ar þeir geta lesið þær í ró og næði, auk þess 40 PRENTARINN

x

Prentarinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.