Prentarinn


Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 49

Prentarinn - 01.01.1968, Qupperneq 49
Bcmdarískir bókagerðarmenn undirbúa stofnun heildar- sambands Með miklum meirihluta atkvæða á- kvað 109. þing bandaríska setjara- sambandsins, lnternational Typo- graphical Union, að taka þýðingar- mikið spor í átt að sameiningu allra bókagerðarfélaganna í Bandaríkj- unum. Þingið, sem var haldið í byrjun september s.l., ákvað að ná sam- komulagi innan eins árs við sam- band pressumanna, International Printing Pressmen’s Union, um sameiningu. Þessi tvö sambönd hafa nú 250.000 félagsmenn innan sinna vébanda. Bókbindarar hafa lýst yfir áhuga á að ganga í þetta nýja samband. Þeir eru um 70.000. I New York hefur sameiningin enn víðtækari þýðingu, því 10.000 offsetprentarar þar í borg hafa einn- ig ákveðið að vera aðilar að nýja sambandinu. I International Typographical Union eru 122.400 félagsmenn. A undanförnum tíu árum hafa meðal- laun þeirra aukizt úr 119 dollurum á viku í 146 dollara. Fyrir tíu árum höfðu prentarar í Bandaríkjunum aðeins einnar viku orlof og sum- staðar alls ekki neitt. Nú er þriggja og fjögurra vikna orlof algengt og jafnvel fimm vikur. Þrátt fyrir margs konar sjálf- virkni og tæknilegar breytingar hef- ur félagaaukningin á þessum tíu árum orðið 11.964. Verknámsskól- um og hvers konar undirbúningi undir frekari tækniþróun hafa þeir treyst á þessum tíu árum. Blökkumenn í Bandaríkjunum mynda eigin verkalýðsfélög Mörg amerísk verkalýðsfélög hafa neitað að semja fyrir hönd svartra félagsmanna sinna, þrátt fyrir það, að dómstólar hafi dæmt í slíkum málum blökkumönnum í vil. Leið- togar blökkumanna hafa því ákveð- ið að stofna eigin verkalýðsfélög í nokkrum greinum og krefjast nú samningsréttar. Fyrsta félagið fyrir svarta og „aðra minnihlutahópa" verður stofnað meðal starfsfólks hótela í San Francisco. Svíar lesa mikið dagblöðin Ef dæma skal eftir skýrslum frá Sameinuðu þjóðunum virðast Svíar vera manna sólgnastir í að lesa dag- hlöðin. í Svíþjóð eru prentuð 505 dagblöð á hverja 1000 íbúa. Næstir koma Bretar með 479 eintök, Jap- anir með 451, fjórðu eru svo Islend- ingar með 435 eintök á hverja 1000 íbúa, þá Lúxemhorgarar með 425, Nýsjálendingar 399 og Noregur 384. Kanada er langstærsti framleið- andinn á dagblaðapappír með 42% af heimsframleiðslunni. Bandaríkin framleiða 13%. Finnland og Japan 7% hvort um sig, Bretland 5% og Sovétríkin og Svíþjóð 4%. I Bandaríkjunum eru notuð sem svarar 39 kg af dagblaðapappír á hvern íbúa. í Ástralíu 33 kg, Sví- þjóð og Hollandi 32, og í Danmörku og Kanada 26 kg. 296 offsetprentuð dagblöð í Bandaríkjunum I skýrslu sem birt var í júní s.l. segir að af rúmlega 1700 dagblöð- um sem komu þá út í Bandaríkjun- um séu 296 offsetprentuð. 135 þeirra voru prentuð í mjög litlum upplögum — 5000 og þaðan af minni -— en 103 í 5—10 þúsund. Aðeins 58 af offsetprentuðu blöð- unum voru gefin út í meira en 10.000 eintökum á dag. Stærsta off- setblaðið, Oklahoma City, var prent- að í 74.000 eintökum. Nú er verið að smíða offsetpressur fyrir dag- blöð, sem eru með talsvert stærri upplög, eða allt að 150.000. Þessi tcikning er tekin úr tímaritinu „Composition In- formation Services og grínið er heldur napurt. A skiltinu stendur: Notist í neyðartilfellum. PRENTARINN 47

x

Prentarinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.