blaðið - 13.12.2006, Síða 6
Óbærileg spenna!
Einstök skemmtun!
Sem fyrr er honum
ekkert heilagt, engum
er hlíít og ekkert stenst
eitrað háðið.
Líklega besta bók Flosa
til þessa.
Skemmtilegasta
bók ársins!
SKRUDDA
Eyjarslóö 9 -101 R. - skrudda@akrudda.is
Bókin á erindi við nútímann, hún er um efni sem skiptir máii
og sem geta komið upp í náinni framtíð. Þýðing Ingunnar
Ásdísardóttur er til fyrirmyndar. Hörkugóð bók sem ég mæli
hiklaust með.
- Gunnar Hersveinn, Lesbók Mbl. 2. des.
Ný bók eftir Flosa
Ólafsson eru tíðindi fyrir
þá sem taka sjálfa sig og
aðra ekki of hátíðlega.
Á égaðgœta systur minnar? er virkilega áhrifarík saga...
Þýðingin er prýðisvel unnin... Bók sem erfitt er að leggja frá sér
eftir að lestur er einu sinni hafinn.
- Súsanna Svavarsdóttir, Fréttablaðið 26. nóv.
Glæsileg hestabók!
Stórkostleg ljósmyndabók um íslenska hestinn. Bókin hefur
fengið frábærar viðtökur og má enginn hestamaður láta hana
fram hjá sér fara. Fæst einnig á ensku og þýsku.
Hér er ekki vakin einföld spenna um
spurningu eins og hver framdi glæp, heldur
hvað sé glæpur ... Djúpskyggn átakasaga.
- Hörður Bergmann, kistan.is
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
UMFERÐARSLYS
Rannsóknir efldar
Efla á Rannsóknarnefnd umferðarslysa á næsta ári til að leggja aukna áherslu á rann-
sóknir alvarlegra slysa. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samgönguráðuneytinu.
Þegar hefur verið ráðinn nýr starfsmaður til nefndarinnar og mun hann hefja störf á
næsta ári. Hingað til hefur aðeins maður séð um rannsóknir á vegum nefndarinnar
en hlutverk hennar er að greina slys og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig.
Húsleit fyrr í sumar
Húsleit hefur áður verið
framkvæmd í félagshús-
næði Fáfnis en þá tók eig-
andi húsnæðisins myndir
af lögreglumönnunum.
Fáfnismaður segir leit í félagshúsnæði tengjast andláti Jóns:
Húsleit hjá Fáfni
■ Lögreglan í hnífheldum vestum ■ Besti vinur mannsins í klúbbnum
■ Lögregla segir leit fíkniefnatengda
Eftir Val Grettisson
valur@bladid.net
Lögreglan framkvæmdi húsleit í
félagshúsnæði vélhjólaklúbbsins
Fáfnis MC í miðbæ Reykjavíkur
annan desember. Samkvæmt með-
limi klúbbsins tengist leitin andláti
Jóns Helgasonar sem lést í höndum
lögreglu daginn áður. Meðlimur
Fáfnis, Jón Trausti Lúthersson, var
vinur Jóns. Hann var ekki í húsnæð-
inu þegar leitin átti sér stað. Fáfn-
ismaðurinn fullyrðir að lögreglan
hafi viljað vita hvort vinir Jóns
hygðu á hefndir gagnvart lögreglu.
Jón var handtekinn á hóteli í lok
nóvember en hann lést í kjölfar
átaka við lögregluna. Málið er í
rannsókn hjá ríkissaksóknara og
er beðið eftir niðurstöðum úr krufn-
ingu svo unnt verði að skera úr um
banamein hans.
Hörður Jóhannesson, yfirlögreglu-
þjónn í Reykjavík, segir Fáfnismann-
inn fara með fleipur og þvertekur
fyrir að húsleitin tengist andláti
Jóns. „ Ástæðan fyrir húsleitinni
var sú að lögreglan handtók mann
sem var með fíkniefni á sér og sagð-
ist hafa fengið það í þessu húsnæði.“
Hann segir aðgerðir sérsveitarinnar
ekki hafa verið frábrugðnar öðrum
né stærri í sniðum en hún stóð fyrir
húsleitinni. Einnig tekur hann fram
að hvorki hafi fíkniefni fundist í hús-
næðinu né tæki og tól til neyslu.
Lögreglunni hafa borist hótanir
undanfarið og hefur hún brugðist
við þeim með því að klæðast hníf-
heldum vestum, samkvæmt Karli
Steinari Valssyni aðstoðaryfirlög-
regluþjóni. Karl vill hvorki gefa upp
hvernig hótanirnar bárust lögregl-
unni né hvort einhver liggi undir
grun vegna málsins.
Sagt er að Fáfnir MC tengist vél-
hjólaklúbbnum Vítisenglunum sem
stendur fyrir skipulagðri glæpastarf-
semi á Norðurlöndum. DV sagði
árið 2004 frá handtöku manna sem
tengdust Fáfni er þeir ætluðu að
taka á móti meðlimum Vítisengl-
anna í Leifsstöð.
SamkvæmtFáfnismanninumsem
rætt var við er mikil sorg og reiði á
meðal vina mannsins. Aðspurður
hvort þeir hafi hótað lögreglu eða
hyggi á hefndir segist hann ekki
vita til þess.
Uppsagnir æðstu stjórnenda Reykjavíkurborgar:
Yfirmenn flýja frá borginni
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ef Vilhjálmur væri forstjóri hjá
fyrirtæki þar sem 5 af 13 æðstu
stjórnendum hefðu sagt upp á
innan við hálfu ári, fyndist fólki
það í lagi? Það er mikil blóðtaka
fyrir borgina að missa allt þetta
góða fólk sem sagt hefur upp
störfum," segir Steinunn Valdís
Óskarsdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar. Fyrir helgi
sagði Gerður G. Óskarsdóttir,
sviðsstjóri fræðslusviðs Reykja-
víkurborgar, upp starfi sínu og
er fimmti sviðsstjóri hjá Reykja-
víkurborg sem hættir eftir að nýr
meirihluti tók við.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
borgarstjóri segir þessar breyt-
ingar hjá borginni vera svipaðar
almennri þróun á vinnumark-
aði. „Þetta eru nokkrir einstak-
lingar sem hafa ákveðið að láta
af starfi að eigin ósk og taka sér
fyrir hendur ný viðfangsefni. Ég
tel það ósköp eðlilegt enda hefur
verið meiri hreyfing á vinnumark-
aði nú á seinni árum,“ segir Vil-
hjálmur. „Á seinni hluta síðasta
Fagmennskan
í stjórnsýslu
borgarinnará
undanhaldi
Steinunn V. Óskarsdóttir
borgarfulltrúi
Samfylklngar
kjörtímabils hættu líka nokkrir
af æðstu embættismönnum borg-
arinnar. Það má velta því fyrir
sér hvers vegna menn höfðu ekki
S/ samræmi
við hreyfingu
á almennum
vinnumarkaði
borgarstjóri '
áhyggjur af stöðunni þá.“ Allir
starfsmennirnir hafa sagt upp
störfum að eigin ósk. Hann segir
að búið sé að ráða fólk í staðinn.