blaðið - 13.12.2006, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006
blaöiö
Franskir
hælaskór
Hvað langar þig í jólagjöf?
Jólasveinninn
notar mitt
debetkort
Sígraenajólatréð
— eoa/fae aw eul^ aw
Sígrænt eðaltré í haesta gæóaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila.
10 ára ábyrgð
12 staerðir, 90 - 500 cm
**• Stálfótur fylgir
Ekkert barr að ryksuga
*• Truflar ekki stofublómin
t'*- Eldtraust
ts*. Þarf ekki að vökva
<•*• íslenskar leiðbeiningar
t* Traustur söluaðili
t* Skynsamleg flárfesting
iká1f@iiniQ8©§i}®©B!3i] [HliraiyDíita
Bandalag íslenskra skáta
Andrea Róbertsdóttir
Qölmiðlakona
„Það er ekki strikamerki
eða skiptimiði á gjöfinni og
henni er ekki haegt að pakka
inn í jólapappír. Eg girnist óá-
þreifanlegar gjafir og ánægju-
leg samverustund með gull-
molunum mínum er efst á
óskalistanum. Síðan er ég
alltaf sjúk í að láta hamingj-
una elta mig á röndum. Eg
verð þó að játa að ég hef suðað
síðustu daga í jólasveininum
um utanlandsferð. Þessi jóla-
sveinn notar debetkortið
mitt og í gjöfinni sameinast
jólagjöfin og afmælisgjöfin
en ég á afmæli snemma á
næsta ári.”
m
no:1
„Mig langar í æðruleysi, frið,
kærleika og fleiri góða daga.
Þetta get ég allt saman gefið
sjálfum mér og ég er fullkom-
lega ábyrgur fyrir þessum
gjöfum sjálfur. Ég reyni að gefa
sjálfum mér þetta á hverju ári
og að draga andann rólega. Það
besta sem ég gaf sjálfum mér á
þessu ári var tveggja vikna frí á
tveggja mánaða fresti. Það bjarg-
aði geðheilsu minni á árinu því
þessar tvær vikur nota ég til að
gera eitthvað fyrir sjálfan mig,
skúra gólfið heima hjá mér eða
gera allt þetta sem maður lætur
alltaf ógert. Þetta er algjörlega
búið að bjarga árinu hjá mér og
ég ætla svo sannarlega að halda
þessu áfram.“
„Mig langar í góða íþróttaskó
til að nota í ræktinni. Auk þess
langar mig í íþróttagalla en
merkin skipta ekki öllu máli. Ég
er græjufíkill en ég á eiginlega
allar græjur. Konan mín er svo
góð og í hittifyrra gaf hún mér
iPod sem dugar ennþá. Svo langar
mig í eitthvert dót í sumarbústað-
inn sem ég er að byggja, dót inn
í bústaðinn en hann verður von-
andi tilbúinn í vor.“
„Ég hef ekki hugmynd hvað mig
langar 1. Ég er svo rétt skriðin
upp úr prófunum í háskólanum
að ég er ekki komin svo langt.
Mér gekk bara vel í prófunum,
ótrúlegt en satt. Ég er búin að
vera svo upptekin undanfarið
að ég var hrædd um að þetta
myndi ekki ganga upp en ég er
bara ánægð hvernig fór. En þess
vegna hef ég ekki haft tíma til að
hugsa um jólagjafir og það er svo
sem ekkert sérstakt sem ég man
eftir sem mig langar í.“
Landsmenn eyða ansi mörgum
klukkutímum í verslunarmið-
stöðvum og leita að hinni einu
réttu gjöf handa ástvinum sinum.
Sú leit getur oft verið erfið og
lýjandi en verður þess virði á að-
fangadagskvöld þegar sjá má gleði
og aðdáun í augum viðtakandans.
Sumar gjafir verða ekki metnar
til fjár á meðan aðrar kosta fúlgur
fjár. Ekki að það skipti máli þvi
gamli málshátturinn að það sé
sælla að gefa en þiggja er svo sann-
arlega lífseigur. Blaðið leitaði til
fjögurra þjóðþekktra einstaklinga
sem deila því hverjar þeirra lang-
anir og óskir eru þessi jól.
www.xena.is
GLÆSIBÆ S: 553 7060
GJAFABREF
• HEILSUGJAFAVÖRUR • JAFNVÆGI FYRIR LÍKAMA OG SÁL