blaðið - 13.12.2006, Qupperneq 50
Guðdómlegir í jólapakkann. Mikið úrval!
■atpfnnft »97-»
ntíu
tmuriz
KLAPPARSTÍG 40, SÍMI 552 7977
www.belladonna.is
Opið mán-fös 11-18, laugardaga 11-15
llbelladonnan
Skeifunni 11,108Rvk • S 517 6460
t
_ B
E *
3 «
B cn
□ 0
51 E
t 3
ID Q,
31 B.
,E S
■o ►
c c
QJ §
in í
= :7
■5 X
E (D
□ c
^ X
"31 3
C J3
28. desember
Jólaball Eflingar-stéttarfélags veröur haldið fimmtudaginn
28. desember, kl.16:30. í Lídó, Iðnaðarmannahúsinu við Hallveigarstíg 1
Húsið opnar kl.16:00.
Miðar eru seldir hjá Eflingu, Sætúni 1.
Upplýsingar í síma 510 7500.
Jólasveinar koma í heimsókn
Hljómsveit sér um dans og söng
Boðið verður upp á veitingar
Nammipokar fyrir börnin
Miðaverð: Börn 400 kr., Fullorðnir 600 kr.
Sjóklæðagerðin 66°Norður er 8o
ára um þessar mundir. Hönnun og
markaðssetning fyrirtækisins hefur
vakið athygli víða og verið verð-
launuð hérlendis sem erlendis. Rúm-
lega 300 manns starfa hjá 66°Norður
sem rekur verslanir og verksmiðjur í
nokkrum löndum.
Starfsemi Sjóklæðagerðar íslands
hf. hófst 1926 þegar Hans Krist-
jánsson frá Súgandafirði og fleiri
hófu framleiðslu á hlífðarfatnaði
fyrir sjómenn og fiskverkafólk á
norðurslóðum.
Starfsemin var á Skúlagötu 51
frá 1942 til 2000 en flutti þá í eigið
húsnæði í Garðabæ þar sem höfuð-
stöðvarnar eru. Árið 1966 keypti
verksmiðjan Maxhf. Sjóklæðagerð Is-
lands hf. og til varð Sjóklæðagerðin
hf. Rúmum áratug síðar skiptu eig-
endurnir fyrirtækinu upp. Mikil
samkeppni hófst og Sjóklæðagerðin
tók upp vörumerkið 66°Norður. Árið
1998 keypti svo Sjóldæðagerðin Max.
Breytt hráefni, aðferðir
og vöruúrval
Framleiðsluaðferðir og vöruúrval
hafa gjörbreyst á 80 ára ferli. Fatn-
aðurinn hefur verið saumaður úr
óolíubornum hessianstriga, vínyl-
húðuðum PVC-efnum og nú síðast
úr flís- og hátæknilegum öndun-
arefnum, t.d. Polartec og E-vent.
66°Norður hefur tekist vel að laga
sig að breytingunum og er leiðandi
á sínu sviði.
Þróunar-, hönnunar- og markaðs-
starf hefur verið öflugt og ný fram-
leiðslutækni og hráefni hafa aukið
fjölbreytnina. Vaxtarbroddurinn
hefur verið í hönnun og framleiðslu
alhliða útivistarfatnaðar jafnt innan-
lands sem víða erlendis. Vörumerkið
66°Norður er áberandi í íslensku þjóð-
lífi og sést á fatnaði björgunarsveita-
og heilbrigðisstarfsfólks, lögreglu og
slökkviliðs og margra annarra. Mark-
aðsstarfið hefur byggst á að fyrir-
tækið hafi haldið hita á íslendingum
í 80 ár og bjóði fötin sem fólk þarf til
að lifa af á íslandi. Hrjóstrugt land og
baráttan við náttúruöflin er grunnur-
inn að þekkingunni sem á þátt í að
framleiða gæðafatnað 66°Norður
og lögð er áhersla á sérstöðu íslands
og íslendinga í markaðssetningu er-
lendis sem leiðir af sér fatnað sem
hentar ólíkum aðstæðum.
Hönnunar- og þróunarstarf
66°Norður hefur vakið athygli enda
telur fyrirtækið samvinnu við not-
endur ákaflega mikilvæga og í raun
séu þeir hluti af rannsóknar- og
þróunarteyminu.
Hér eru tíu verslanir undir
merkjum 66°Norður og Ramma-
gerðarinnar. Einnig eru verslanir og
verksmiðjur í Lettlandi og föt seld í
búðum undir 66°Norður í Hollandi
og Litháen.
Heimasíða fyrirtækisins er
www.66north.is og www.66north.
com.
SS hangikjötið er birkireykt
Birkireykta hangikjötið frá SS færir
okkur jólailminn beint inn í stofu
á aðfangadagskvöld, hvort heldur
hangikjötið er aðalmáltíð jólanna
eða borið fram í jólaboðinu á jóla-
dag. Ástæðan er auðvitað sú að enginn
biður með að sjóða hangikjötið fram á
jóladag, enda vilja allir fá ilminn í húsið
sem allra fyrst og fá að njóta hans sem
lengst. Hangikjöt og jólahald fara saman
hjá flestum ef ekki öllum íslendingum.
SS vörumerkið er þekkt fyrir fyrsta
flokks vöru, gæði og gott bragð enda
leggur Sláturfélag Suðurlands mikinn
metnað í að framleiða gæðavöru nú sem
fyrr. Birkireykta hangikjötið frá SS er að-
eins framleitt úr fyrsta flokks hráefni. Það
er mjúkt, safaríkt, hæfilega bragðmikið
og algjörlega ómissandi jólaréttur á jóla-
borðum Islendinga.
SS hefur framleitt hangikjöt í hartnær
heila öld og byggir því framleiðslu
sína á gamalli hefð. Við reykingu
á birkireykta SS hangikjötinu er
eingöngu notað íslenskt birki.
Þótt við tengjum vissulega SS
hangikjötið við jólin má ekki
gleyma þeirri staðreynd að
birkireykta hangikjötið er
framleitt allan ársins hring.
Hins vegar er farið að fram-
leiða jólahangikjötið upp
úr miðjum nóvember og
þá leggja kjötiðnaðar-
meistarar SS nótt við
dag til að halda gæðum
í hámarki.