blaðið

Ulloq

blaðið - 13.12.2006, Qupperneq 54

blaðið - 13.12.2006, Qupperneq 54
Hvernig er best - Hugsaðu vel um gersemarnar Silfur verður ávallt matt og missir gljáa sé það ekki hreinsað reglulega. Það fellur á silfur þegar það kemst í snertingu við súrefni og önnur efni. Ef vel er um silfrið hugsað endist það kynslóða á milli. Margir kvíða því að taka upp silfrið því það getur verið tímafrekt að hlúa að því svo vel megi vera. Nokkur einföld ráð má þó nota til að lágmarka þann tíma sem fer í að fægja silfrið en ná samt hámarksárangri. Aldrei láta silfur komast í snert- ingu við gúmmí: diskamottur, teygjuefni og þvíumlíkt. I gúmmíi eru súlfurefni sem hafa þau áhrif á silfur að á það fellur. Ekki láta ryðfrítt stál komast í snertingu við fínna silfur, kerta- stjaka eða silfurhúðuð föt og ílát. Silfur skemmist við einfalda snert- ingu og lætur á sjá. Ekki láta mat liggja lengi á silfur- fati og þá sérstaklega ekki egg, maj- ónes eða sinnep þar sem þessar mat- artegundir innihalda súlfur. Ekki spara silfrið! Því meira sem þú notar silfrið því minna fellur á það. Engin ástæða er til að liggja á silfrinu svo það megi varðveitast. Að fægja silfur: Silfrið þarf að þvo vel eftir notkun. Best er að þrífa það í höndunum. 1. Fyllið vaskinn með soðnu, köldu vatni og mildum uppþvottalegi. 2. Þvoið hvern hlut varlega í höndum. 3. Notið mjúkan klút til að þurrka silfrið. Þurrkið það vandlega. 4. Matt silfur skal nudda varlega þangað til gljái fæst. 1. Berið silfurfægilög varlega á. Notið lítið magn. 2. Notið beinar, mjúkar og var- legar strokur með mjúkum klúti. Ekki nota hringlaga strokur. 3. Notið mjúkan hreinan klút til að taka efnið af. Þú gætir þurft nokkra klúta til verksins. að fægja silfrið? UR&GULL Plrdi • Mlðba* Hafnarf ja/ðar • Slmi: WS 4«M Ilmurinn af lifandi jólatré er hluti af jólunum og fallega skreytt jóla- tré ber höfuð og herðar yfir annað skraut á heimilinu. Þó að gervijóla- trén séu falleg og skemmtileg þá vilja margir hafa ekta tré og finnst það ómissandi liður í jólahaldinu. Það er ýmislegt sem gott er að hafa i huga þegar kemur að meðferð jóla- trjáa og hér koma nokkur góð ráð. í.Ef ekki á að setja tréð upp í stof- unni strax er gott ráð að vefja stofn- inn inn í rakt handklæði og geyma tréð á köldum stað en þó ekki úti ef það er mikið frost. 2.Áður en farið er með tréð inn er best að saga neðst af stofninum til að losna við uppþornaða trjákvoðu. Og því næst að setja það í stand með vatni. 3-Best er að nota jólatrésstand sem festir tréð úr fjórum áttum. Þessir standar eru bestir þar sem þeir passa nær öllum trjám. 4. Það er tilvalið að setja stofninn í stóran plastpoka sem er brotinn saman við standinn og falinn með jólatrésdúk. Þegar kemur að því að fara með tréð út eftir jólin er pokinn einfaldlega togaður upp yfir tréð og þannig verður íbúðin ekki öll í barr- nálum við ferðalagið út á stétt. 5. Það er fallegt að setja jólatrés- standinn í stóran pott þar sem stand- arnir eru oft á tíðum ekki fagrir ásýndum. 6. Það er nauðsynlegt að hafa alltaf nóg af vatni í standinum fyrir jólatréð. Nýhöggvin tré drekka nær 3 lítra af vatni á dag. Jólaljósin Það er gott að hafa það í huga þegar ljósaserían er fest á trén að greiða fyrst úr allri flækju. Síðan er best að finna miðjuna á seríunni og byrja efst á trénu og vinna sig niður. Það er gott að setja ljósin fyrst laus- lega á tréð og síðan þegar búið að vefja tréð með seríunni er hægt að festa ljósin endanlega. Þó að ljósin eigi að loga alla jólanótt er mikil- vægt að muna að taka ljósin úr sam- bandi þegar farið er í háttinn til að forðast slysahættu. Pottþétt jolagjof RALPH LAUREN Laugavegi 40 - Sími 561 1690
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.