blaðið - 13.12.2006, Side 71
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 2006 71
Vigdís skáti lagði
Bó að velli í Tekinn
Vigdís Perla Maack, 13 ára nem-
andi í 8. bekk í Austurbæjarskóla
og meðlimur í skátahreyfingunni,
er þekkt fyrir að vera bæði ljúf og
kurteis og langt því frá fyrir að vera
pirrandi. I síðasta þætti af Tekinn
leggur hún sjálfan Björgvin Hall-
dórsson að velli sem einkar pirr-
andi unglingur sem getur ekki séð
hann í friði þar sem hann situr að
verki við að gefa eiginhandaráritan-
ir í Kringlunni. Vigdís vakti mikla
athygli fyrir frammistöðu sína og
Bó brást illur við enda sýndi Vigdís
frábæra takta og lét hann einfald-
lega ekki í friði.
Var þetta erfitt?
Já, þetta var svolítið erfitt, en ég
vissi á endanum að hann myndi
vita að þetta væri allt í góðu gamni
gert þannig að þetta bjargaðist. Erf-
iðast var að koma aftur og aftur inn,
hann móðgaði mig alls ekki, en
Björgvin bað mig afsökunar eftir á
og fannst þetta bara fyndið.
Ætlarðu að leggja
leiklist fyrir þig?
Ég veit það nú ekki. Ég hef áhuga
á leiklist og tók þátt í hæfileika-
keppni grunnskólanna, Skrekk, í ár.
Við vorum með ýkt atriði, svona svo-
lítið furðulegt. Ég lék prest. Af öðr-
um áhugamálum þá er ég að hugsa
um að fara að læra á gítar eftir jól. I
framtíðinni langar mig til að verða
ljósmóðir en ég hef ótrúlega gaman
af því að umgangast lítil börn.
Tók Bó Vigdís Perla Maack
sýndi sniiidartakta og þóttist
illa haldin af unglingaveiki í
síðasta þætti af Tekinn.
Kl. 22.40 - RUV
Hugrenningar
kynskiptings
100% manneskja (100% menn-
eske) er norsk heimildarmynd
frá 2005 um strákinn Morten
sem lét breyta sér í stelpuna
Monicu þegar hann var 22 ára.
Flestir kannast við að hafa
reynt að finna sjálfa sig eins og
það er kallað en fæstir þurfa
að fara í skurðaðgerð til þess.
Mánuðina fyrir og eftir aðgerð-
ina sagði Monica kvik-
myndatökuvélinni
frá hugrenningum
sínum og heið-
arleiki hennar,
húmor og hrein-
skilni ættu að
verða til þess
að draga úr for-
dómum
gagn-
vart
fólki í
hennar
stöðu.
21.00 - Sirkus
Hvað er að ger-
ast í Reykjavík?
Ásgeir Kolbeinsson er snúinn
aftur með nýjan og betri þátt
ásamt nýjum þáttastjórnendum.
Ásgeir og félagar eru að fylgj-
ast með því sem er að gerast
í menningarllfi Reykjavíkúr.
Áhersla er lögð á nýja staði,
spennandi uppákomur, opnanir
og frumsýningar; það nýjasta í
tískunni, tónlist,
kvikmyndum og
almennt í afþrey-
ingarlífinu. Það
er Ásgeirsem er
umsjónarmaður
þáttarins en núna
hefur hann
fengið til
liðs við
sig þrjár
konur
20.35 - Stöð 2
Flottustu
brækurnar
Hin árlega tískuhátíð Victoria's
Secret er fyrir löngu orðinn
heimfræg. Þar eru ekki aðeins
lagðar línurnar í
því allra nýjasta
og heitasta í
eggjandi undir-
fatnaði heldur
leika nokkrar
afvinsælustu
hljómsveitum
í heimi undir
sýningunni
við mikinn
fögnuð við-
staddra.
RAFIÐNAÐARSAMBAND
ÍSLANDS
Láttu fagmenn skoða hjá þér raflögnina fyrir jólin.
Gleðilega hátíð!