Bændablaðið - 27.03.2007, Síða 7
Örn Arnarson
Að mínum dómi er Örn Arnarson
í hópi okkar allra bestu ljóðskálda
en hefur því miður alltaf ver-
ið vanmetinn eins og svo mörg
ólangskólagengin skáld. Það er
ekki það sama að vera góður hag-
yrðingur og gott ljóðskáld. Örn
var hvort tveggja, eftir hann liggja
margar snjallar stökur og skulum
við nú skoða nokkrar þeirra. Þess
má geta að hann skýrði aldrei frá
tilurð vísnanna:
Bros og grátur eru í
ísamáti freðin.
Kuldahlátri hlæ ég því
hún er fátíð gleðin.
Úlfurinn étur sauðinn
Hræsni vex af hjálp og náð.
Hrælund þrífst við auðinn.
Örbirg stétt er auðvaldsbráð.
Úlfurinn étur sauðinn.
Dýrt er landið
Þetta er ein af kunnustu vísum
Arnar:
Dýrt er landið Drottinn minn
dugi ekki minna
en vera allan aldur sinn
fyrir einni gröf af vinna.
Aulabárði er alltaf mál
Hrekkvís kyndir heiftarbál.
Hræsnin veður elginn.
Aulabárði er alltaf mál
orð að leggja í belginn.
Oft var svalt í förum
Mér varð allt að ís og snjó.
Oft var svalt í förum.
Ekki skaltu undrast þó
andi kalt úr svörum.
Legg ég upp á Leggjabrjót
Ei mun hraun og eggjagrjót
iljum sárum vægja.
Legg ég upp á Leggjabrjót.
Langt er nú til bæja.
Sá er ekkert skilur
Hávært tal er heimskra rök.
Hæst í tómu bylur.
Oft er viss í sinni sök
sá er ekkert skilur.
Vökina leggur bráðum
Herðir frost og byljablök.
Ber mig vetur ráðum.
Ævi mín er vörn í vök.
Vökina leggur bráðum.
Norðanbitra
Norðanbitran bleikir völl
blöðin titra á greinum,
hljóðnar sytra, hvítna fjöll
hrímkorn glitra á steinum.
Syngur klóin
Syngur klóin, kveður röng,
kyngisjóar heyja þing,
klingir glóhærð kólguþröng
kringum mjóan súðbyrðing.
Dvínar glóð
Djöflar hljóða deyjandi.
Dvínar glóð í helvíti.
Blæs í hlóðir bölvandi
bræðimóður andskoti.
Aðra setti hljóða
Prédikaði presturinn
píslir vítisglóða.
Amen sagði andskotinn.
Aðra setti hljóða.
Þangað sækir refur ráð
Lýðurinn virðir lögin skráð
ljóst þó dæmin gjöri,
að þangað sækir refur ráð
sem rænir lambið fjöri.
Sýður á keipum
Það er við hæfi að ljúka þessum
vísnapistli um Örn Arnarson
með loka erindinu úr ljóðinu um
Stjána bláa.
Horfi ég út á himin blána.
Hugur eygir glæsimynd.
Mér er sem ég sjái Stjána
sigla hvassan beitivind,
austur af sól og suður af mána
sýður á keipum himinlind.
Umsjón:
Sigurdór Sigurdórsson
ss@bondi.is
Í umræðunni
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 20077
MÆLT AF
MUNNI FRAM
Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar ehf.
Verðum að mæta erlendri samkeppni
Nú standa yfir miklar hrókering-
ar innan mjólkuriðnaðarins en
eins og kunnugt er var ákveðið á
síðastliðnu hausti að sameina þau
fyrirtæki sem bændur starfrækja
í eina rekstrarheild. Sú ákvörðun
hefur verið að fá á sig formlega
mynd á aðalfundum félaganna
sem að sameiningunni standa. Á
einum þeirra, aðalfundi MS/Auð-
humlu á Flúðum, hélt Guðbrand-
ur Sigurðsson forstjóri ræðu sem
hefur endurómað nokkuð í fjöl-
miðlum.
Það sem sætti tíðindum í ræðu
Guðbrands var að hann lagði til að
opinber afskipti af verðlagsmálum
mjólkuriðnaðarins yrðu aflögð. Það
sem hann vísar til er sú aðferð að
ákveða verð á mjólk og nokkrum
mjólkurafurðum í nefnd sem ríkið
skipar. Samkvæmt ákvörðun henn-
ar er verð á neyslumjólk lægra en
það þyrfti að vera. Á móti eru ýms-
ar unnar mjólkurvörur, rjómi, ost-
ar, jógúrt og skyr, á hærra verði en
framleiðslukostnaður þeirra gefur
tilefni til. Þetta þýðir í raun verðtil-
færslu á milli þessara afurðaflokka.
Guðbrandur segir að vinnslugrein-
arnar séu að greiða á áttunda hundr-
að milljóna króna á ári í verðtil-
færslu frá hátt verðlögðum vinnslu-
afurðum til ýmissa afurða sem eru
lágt verðlagðar.
Verðtilfærslan er tímaskekkja
En hvers vegna leggur Guðbrandur
þetta til núna?
„Ástæðan er fyrst og fremst sú
að í framtíðinni má gera ráð fyrir
mun meiri samkeppni erlendis frá.
Ég tel rétt að mjólkuriðnaðurinn
fái tækifæri til að leiðrétta þessa
skekkju sem er á markaðnum áður
en til hennar kemur og gera okkur
þannig hæfari um að mæta sam-
keppninni.“
Ólafur Magnússonframkvæmda-
stjóri Mjólku og leiðarahöfundur
Morgunblaðsins hafa lagt þetta
þannig út að með þessari yfirlýs-
ingu séu Guðbrandur og MS að
leggja til atlögu við innlenda sam-
keppni og voru stóryrðin hvergi
spöruð í forystugrein Morgunblaðs-
ins í síðustu viku. Hverju svarar
Guðbrandur þessu?
„Ég svara þessu á þann veg að
með þessari tillögu séum við að
auka frjálsræði í þessari grein og
teljum það vera lið í að auka neyslu
á þessum hollu afurðum sem við
framleiðum. Við höfum verið boðn-
ir og búnir að rétta Ólafi og Mjólku
hjálparhönd en hann hefur kosið að
fara sínar eigin leiðir og við því er
ekkert að segja.
Ég vil hins vegar taka þetta til
umræðu því ég held að við séum
eina atvinnugreinin sem þarf að
sætta sig við opinber afskipti af
verðlagningu. Ég tel víst að þegar
opnað verður muni samkeppnin að
utan fyrst og fremst verða í dýrari
vörum með lengra geymsluþol og
ef við eigum að hafa tök á að mæta
henni verðum við að þróa okkur
yfir í gagnsærri verðmyndun og
hætta þessari verðtilfærslu.“
Mjólkursamsalan er
fjöldahreyfing
Guðbrandur bætir því við að vissu-
lega sé staða MS sterk og hafi enn
styrkst með sameiningunni. Þess
vegna þurfi fyrirtækið að stíga var-
lega til jarðar og forðast að haga sér
þannig að engin samkeppni þrífist
við hlið þess. „Það teljum við okk-
ur hafa gert. Við höfum sýnt fulla
ábyrgð í störfum okkar sem meðal
annars birtist í þeirri ákvörðun fyr-
irtækisins að taka þátt í viðleitni rík-
isstjórnarinnar til lækkunar matar-
verðs með því að lýsa yfir tveggja
ára verðstöðvun á mjólkurafurð-
um,“ segir hann.
Eins og fram kemur hér í opn-
unni er verið að gera miklar breyt-
ingar á skipulagi mjólkuriðnaðar-
ins. Hvernig finnst Guðbrandi hafa
tekist til?
„Þetta hefur gengið afar vel.
Mjólkursamsalan er fjöldahreyf-
ing því að baki hennar standa 700
mjólkurframleiðendur og fjölskyld-
ur þeirra. Það er mikil samstaða
meðal bænda um þessa samein-
ingu, ég hef ekki heyrt einn bónda
mótmæla á þessum fundum sem
haldnir hafa verið.
Við eigum hins vegar margt eftir
í þeirri viðleitni að auka hagkvæmni
í rekstrinum og ná niður verði á
mjólk til neytenda á sama tíma og
við reynum að halda kjörum bænda
óbreyttum. Það tekur sinn tíma að
ná félögunum saman, koma á nýju
skipulagi og færa til starfsmenn og
stjórnendur. Þetta mun standa yfir
til ársloka 2008.“
Margt jákvætt að gerast
Í lokin var Guðbrandur spurður um
það hvort fyrirtækið geti tekið við
allri þeirri mjólk sem framleidd er
í landinu. Að þessu er spurt í ljósi
þess að greiðslumarkið hefur aukist
töluvert á undanförnum árum og nú
stefnir í að framleiðslan aukist um
allt að 10% á milli verðlagsára.
„Þessi aukning sem hefur verið
var nauðsynleg vegna þess að eftir-
spurn hefur aukist og birgðir voru
orðnar litlar. Ég held að við getum
alveg tekið við rúmum 120 milljón-
um lítra á þessu verðlagsári en ég
sé ekki fram á að við ráðum við
áframhaldandi aukningu í þeim dúr
sem hún hefur verið. Það ræðst þó
af ýmsu, svo sem hvernig útflutn-
ingsmarkaðir þróast. Þar eru í gangi
þróunarverkefni sem lofa góðu. Við
vonumst til þess að Ameríkumark-
aður geti í lok þessa árs tekið við
allt að tveimur milljónum lítra á
ársgrunni og erum að þreifa fyrir
okkur í Færeyjum. Til Evrópu opn-
ast leið fyrir 380 tonn af skyri, auk
smjörs, þegar nýir tollkvótar taka
gildi 1. júní. Í þetta magn af skyri
færi rúm milljón lítra af mjólk. Það
er því margt jákvætt að gerast.“
Hér í blaðinu er á tveimur stöð-
um rætt um nauðsyn þess að mjólk-
uriðnaðurinn gefi bændum vísbend-
ingu um það hversu mikla mjólk
hann þurfi, segjum næstu þrjú ár.
Væri það mögulegt?
„Já, ég sé því í raun ekkert til
fyrirstöðu að við gætum gefið slík-
ar vísbendingar, með fyrirvara um
breytingar. Hins vegar er sú tíð
endanlega liðin að við getum gefið
einhver loforð mörg ár fram í tím-
ann, það heyrir fortíðinni til, líkt og
fimm ára áætlanir Stalíns,“ sagði
Guðbrandur Sigurðsson forstjóri
Mjólkursamsölunnar ehf. –ÞH
Breytt skipulag
Með sameiningunni sem nú hefur orðið
í mjólkuriðnaði hefur verið búið til nýtt
rekstrarfélag sem nefnist Mjólkursamsalan
ehf. Það er í eigu KS á Sauðárkróki, MS og
Auðhumlu sem áður var mjólkursamlagið á
Akureyri. Tvö síðarnefndu félögin eru raun-
ar orðin að einu þannig að eigendur Mjólk-
ursamsölunnar ehf. eru tvö félög sem aftur
eru í eigu um 800 kúabænda. Hlutdeild félag-
anna er þannig að fyrrum MS á 73% hluta-
fjár í nýja félaginu, Auðhumla 12% og KS
15%
Miðað við tölur um veltu og starfsmanna-
fjölda árið 2005 voru starfsmenn í fyrirtækinu
579, að viðbættum 14 hjá KS. Samanlögð velta
fyrirtækjanna var liðlega 13 milljarðar króna.
Virkir viðskiptavinir fyrirtækisins töldust þá
vera um 3.500 en í þeim hópi eru bæði smásölu-
verslanir og fyrirtæki sem kaupa beint af MS.
Mjólkursamsalan ehf. sér um alla markaðs-
færslu og dreifingu, mjólkursöfnun og dreif-
ingu á mestöllu landinu, en KS annast mjólkur-
söfnun og úrvinnslu á sínu svæði.
Mjólkursamsalan tók í haust við öllum
eignum og rekstri Mjólkursamlagsins á Ísa-
firði. Mjólkursamlag KS verður rekið í nánum
tengslum við Mjólkursamsöluna og gengst und-
ir framleiðslustjórnun hennar, auk þess sem
sölumálin verða einnig hjá MS. Hjá Osta- og
smjörsölunni verða miklar breytingar því rekst-
ur hennar fellur undir MS nema hvað
tiltekt og dreifing osta og smjörs verður
að Bitruhálsi 2 um sinn. Loks má nefna
að töluverðar breytingar verða á starf-
semi Samtaka afurðastöðva í mjólkur-
iðnaði. Hlutverk þeirra samtaka var að
vinna að sameiginlegum hagsmunum
mjólkuriðnaðarins en þess gerist varla
þörf þegar hann er allur kominn undir
eina stjórn.
Samkvæmt nýju skipuriti fer fimm
manna framkvæmdaráð með daglega
stjórn Mjólkursamsölunnar ehf. For-
stjóri er Guðbrandur Sigurðsson og
undir hann falla einnig fjármál. Magn-
ús Ólafsson er aðstoðarforstjóri, Pálmi
Vilhjálmsson stjórnar framleiðslu, Jón
Axel Pétursson sölu- og markaðsmál-
um og Einar Matthíasson viðskipta- og
þróunarsviði.
Starfsstöðvar Mjólkursamsölunnar
ehf. verða sjö: í Reykjavík, Búðardal,
á Ísafirði, Blönduósi, Akureyri, Egils-
stöðum og Selfossi. Við þetta má bæta
Mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki.
Stefnt er að því að flytja alla pökkun frá
Bitruhálsi til Selfoss. Þegar því verður
lokið hefur stefnan verið tekin á að selja núver-
andi hús við Bitruhálsinn og byggja nýjar höf-
uðstöðvar og dreifingarstöð á lóð sem sótt hef-
ur verið um á Hólmsheiði. –ÞH
Guðbrandur Sigurðsson forstjóri Mjólkursamsölunnar ehf.
Aðalfundur MS á Flúðum tókst vel enda gengur rekstur
fyrirtækisins vel. Hátt á fimmta hundrað manns vinna
hjá Mjólkursamsölunni en eigendur fyrirtækisins eru
760 bændur og fjölskyldur þeirra. Heildarsala á mjólkur-
vörum, öðrum en smjöri og ostum, hjá MS á árinu 2006
var 45,2 milljónir lítra að verðmæti 6,5 milljarðar króna.
Ljósm. MHH