Bændablaðið - 27.03.2007, Qupperneq 15
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200715
Nýverið var fyrirtækið NOVA
kynnt til leiks á íslenskum fjar-
skiptamarkaði sem er í eigu fjár-
festingarfélagsins Novator. Fyr-
irtækið mun bjóða nýja tegund
farsímaþjónustu hérlendis sem
kallast þriðja kynslóð farsíma
(3G).
Með nýju tækninni munu farsím-
ar breytast í litlar tölvur þar sem
fólk getur tengst Netinu hvar sem
er þar sem samband er fyrir þriðju
kynslóðar farsíma. Nú þegar eru
farsímar fyrir kerfið komnir í versl-
anir.
„Það sem við erum að keppa
við á þessu ári er að koma kerfinu
vel upp á höfuðborgarsvæðinu og
á Reykjanesi en á næsta ári förum
við víðar út á land. Þar eru helstu
þéttbýlissvæðin í sigtinu og fjöl-
mennustu frístundabyggðasvæðin.
Þegar við tölum um bændur þá eru
þeir sem eru í næsta nágrenni við
áðurnefnda staði sem hafa mögu-
leika á að njóta þessarar þjónustu
fyrst um sinn,“ segir Jóakim Reynis-
son, framkvæmdastjóri tæknimála
hjá NOVA.
Meiri gagnaflutningar og hraði
„Kostirnir við þetta kerfi eru að
það leyfir meiri gagnaflutninga og
meiri hraða en gsm-kerfið. Það nýj-
asta við þetta er nettengingin sem
fólk tengist í gegnum 3G farsíma-
kerfið. Í kerfinu má búast við að
ná hraða upp í allt að 1-2 megabit
á sekúndu og jafnvel meira. Þetta
er staðlaðra kerfi en við þekkjum í
dag og er allsstaðar eins. Þú getur
tekið fartölvuna með þér og þarft
jafnvel ekki tölvuna með, heldur lít-
ið módem eða minniskubb sem þú
tengir við tölvu þar sem samband
er fyrir þriðju kynslóð farsíma. Í
framtíðinni áttu að geta tekið minn-
iskubbinn með þér hvert sem er,“
útskýrir Jóakim og segir jafnframt:
„Af því að þetta er svo staðlað
kerfi og hluti af farsímatækninni
tryggir þetta meiri gæði og öryggi
sem tekur mið af þeim gæðum sem
menn hafa leitast eftir í farsímakerf-
inu.“
HVAÐ ER 3G?
Skammstöfunin 3G stendur fyr-
ir Third Generation. Á íslensku
kallast þessi tækni þriðja kyn-
slóð farsímakerfa en fyrsta
kynslóðin var NMT kerfið og
GSM var önnur kynslóð. 3G er
miklu afkastameira en GSM,
fyrir bæði talsambönd og gagna-
flutninga og býður þannig upp
á meiri möguleika í gagnaflutn-
ingi en GSM-staðallinn. 3G má
líta á sem næstu uppfærslu og
frekari þróun á GSM-tækninni.
3G mun valda byltingu í því
með hvaða hætti fólk á í sam-
skiptum líkt og GSM gerði á
sínum tíma. GSM-símar munu
breytast í litlar fartölvur sem
við munum nota til samskipta,
til að miðla upplýsingum og
afþreyingu. Heimild: NOVA
Farsímar breytast í litlar tölvur
Fyrirtækið NOVA haslar sér völl á sviði þriðju kynslóðar farsíma
Bilanir yfirleitt
vegna veðurs
Hákon Óli Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri eMax ehf., segir
fyrirtækið kappkosta við að
þjóna viðskiptavini sína og svar-
ar hér þeirri gagnrýni sem nokkr-
ir notendur hafa komið með á
háa bilanatíðni og þjónustu fyrir-
tækisins.
„Vandamálið er að oftast verða
bilanir í vondum veðrum ýmist
vegna þess að búnaður okkar
skemmist vegna ísingar og vind-
álags. Í vondum veðrum eru líka
gjarnan truflanir á rafmagni sem
geta skemmt búnað. Það tefur oft
viðgerðir að ekki er hægt að komst
upp í möstur fyrr en veður er orð-
ið skaplegt. Bilanir í sendakerfinu
hafa allaf forgang og þá er brugð-
ist við eins fljótt og hægt er, enda
eru þá yfirleitt margir netlausir í
einu. Bilunum hjá einstökum not-
endum er reynt að sinna fljótt og
vel en það er í öðrum forgangi
en sendakerfið. Við kappkostum
að bilanir séu í lágmarki en aldr-
ei verður hægt að gera kerfi sem
stenst öll veður,“ segir Hákon Óli
og bætir við:
„Núna erum við að vinna í því
að endurbæta kerfið á þeim stöð-
um á landinu þar sem notendum
hefur fjölgað mikið undanfarið.
Með hækkandi sól verður aukinn
kraftur settur í þá vinnu.“ ehg
Síldin kemur og
fer í Hörgárdal
Leikfélag Hörgdæla frum-
sýndi á Melum nú fyrir helgi,
leikritið Síldin kemur og síld-
in fer eftir systurnar Iðunni
og Kristínu Steinsdætur.
Þetta er gamanleikur með
söngvum og lifandi tónlist og
fjallar um farandverkafólk á
síldarárunum, sorgir þeirra
og gleði, ástir, afbrýði og sam-
skipti við heimafólk.
Rauði þráðurinn er togstreit-
an milli síldarspekúlantsins og
erfingja landsins sem planið
stendur á en sá er ekki hrifinn
af lýðnum og ólifnaðinum sem
síldarævintýrinu fylgir. Um er
að ræða viðamikið verkefni hjá
Leikfélaginu, t.d. koma að því
milli 50 og 60 manns, þar af 19
leikarar. Sunna Borg leikstýrir
en hljóðfæraleikur er í höndum
þeirra Snorra Guðvarðssonar
og Jóns Hrólfssonar. Leikmynd
gerir Hallmundur Kristins-
son og ljósameistari er Ingvar
Björnsson.
Sýnt verður að jafnaði á
föstudögum og laugardögum
kl. 20:30.
Miðapantanir eru í símum
864 7686 og 862 6821 milli kl.
17:00 og 19:00.
Hugsaðu um heilsuna!
Svalandi, próteinrík
og fitulaus máltíð
Frískandi, hollur
og léttur drykkur í dós
Gamla góða
Óskajógúrtin
– bara léttari
Silkimjúkt,
próteinríkt
og fitulaust Fitusnauðar
og mildar ab-vörur
– dagleg neysla stuðlar að bættri
heilsu og vellíðan