Bændablaðið - 27.03.2007, Síða 21
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200721
Sveitarstjórn Borgarbyggðar
hefur samþykkt að kanna vilja
hreppsnefndar Skorradalshrepps
til sameiningar sveitarfélaganna
þótt íbúar Skorradals hafi ítrek-
að hafnað sameiningu við önnur
sveitarfélög í Borgarfirði, síðast
fyrir tveimur árum.
Eftir sveitarstjórnarkosningar
í fyrravor varð til nýtt sameinað
sveitarfélag Borgarbyggðar, Borg-
arfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps
og Kolbeinsstaðahrepps. Við það
stækkaði Borgarfjarðar- og Mýra-
sýsla nokkuð þar sem Kolbeins-
staðahreppur tilheyrir Snæfellsnesi
og færðist við sameininguna úr
Snæfellsness- og Hnappadalssýslu
í stjórnsýslulegum skilningi. Nýtt
sameinað sveitarfélag hlaut nafn-
ið Borgarbyggð að undangenginni
skoðanakönnun. Íbúar Skorradals-
hrepps höfnuðu hins vegar samein-
ingu og eru því eina sveitarfélagið
í Borgarfirði norðan Skarðsheiðar
sem stendur stakt eftir.
Á síðasta fundi sveitarstjórn-
ar Borgarbyggðar var tekin fyrir
beiðni hreppsnefndar Skorradals-
hrepps um kaup á ákveðinni þjón-
ustu. Forseti sveitarstjórnar lagði
fram þá tillögu að erindinu yrði
frestað en að sveitarstjóra yrði fal-
ið að kanna áhuga Skorrdælinga
á að hefja nú þegar undirbúning
að sameiningu sveitarfélaganna í
ljósi þess að Borgarbyggð sinnti
nú þegar ýmiss konar þjónustu við
íbúa Skorradalshrepps. Tillagan var
samþykkt með átta atkvæðum gegn
einu.
Finnbogi Leifsson, einn þriggja
bæjarfulltrúa Framsóknarflokks
sem er í minnihluta sveitarstjórnar,
lagðist gegn tillögunni og lét bóka
að sveitarstjórn Borgarbyggðar ætti
ekki á þessu stigi að hlutast til um
sameiningu við Skorradalshrepp
að fyrra bragði. Íbúar Skorradals-
hrepps hefðu tvívegis hafnað síð-
ustu sameiningu í Borgarfirði í
kosningum og auk þess væru í Borg-
arbyggð næg verkefni í jaðarbyggð-
um áður en lengra væri haldið.
Bjóða upp á sameiningu enn á nýFlóamenn stofna
ferðamálafélag
Ferðamálafélag Flóamanna
hefur nýlega verið stofnað.
Það mun vinna að framgangi
ferða- og menningarmála og
verður starfssvæðið fyrst í
stað Flóahreppur. Félagið tek-
ur við þeim verkefnum sem
Ferðamálanefnd Austur-Flóa
vann að.
Af helstu verkefnum félags-
ins má nefna endurskoðun ferða-
málastefnu, útgáfu svæðiskorts,
umsjón vefsíðunnar floi.is,
rekstur Upplýsingamiðstöðvar
Flóa og undirbúning að stofnun
Tæknisafns Íslands í Flóanum.
Það síðastnefnda er reyndar
stærsta verkefnið um þessar
mundir enda ekki síður unnið í
þjóðarþágu en hagsmuna heima-
fólks. Auk þess mun félagið
vinna að merkingum á göngu-
leiðum, gerð fræðsluskilta, úr-
bótum á áningarstöðum ferða-
manna og kynningu á svæðinu.
Augu manna eru að opnast
fyrir þeim mörgu skoðunar-
verðu perlum sem svæðið býr
yfir. Vaxandi fjöldi leitar nú í
víðsýni og náttúrufegurð Flóa-
sveita, bæði sem ferðafólk en
einnig hefur verið stóraukin
aðsókn í frístundabúsetu. Félag-
ið mun einnig beita sér fyrir
verndun náttúru- og menning-
arverðmæta, eflingu menning-
arstarfs, úrbótum í samgöngum
og fleira sem tengist starfssvið-
inu. FF hefur þegar leitað eftir
samstarfssamningi við sveitar-
stjórn Flóahrepps. Auk þess
mun það taka þátt í samstarfi
út á við, t.d. í Ferðamálasamtök-
um Suðurlands.
Fleira má sjá um félagið og
samþykktir þess á vefsíðunni
www.floi.is.
Royal Highland Show landbúnaðarsýningin
Flug til Glasgow. Haldið sem leið liggur til Edinborgar, þar sem farið er í
skoðunarferð um borgina og gist í 2 nætur. Daginn eftir er síðan farið á
Royal Highland Show landbúnaðarsýninguna, sem er sérlega
áhugaverð fyrir alla þá sem áhuga hafa á landbúnaði. Þar má sjá öll
skosku búfjárkynin, vélar, handverk, heimaframleiðslu og margt
fleira. Farið verður síðan í skoðunarferð um Mið-Skotland, Stirling
kastali skoðaður, farið í viskísmökkun og á markað. Gist í 2 nætur í
Glasgow og frjáls dagur þar áður en haldið er heim á leið. Rétt er að
benda á að ferðin er opin öllum áhugamönnum um landbúnað.
Fararstjóri: Árni Snæbjörnsson
Verð: 78.500 kr.
Skotlands20. - 24. júní
Sp
ör
-
R
ag
nh
ei
ðu
r
In
gu
nn
Á
gú
st
sd
ót
tir
Landbúnaðarferð til
s: 570 2790 www.baendaferdir.is
A L L I R G E T A B Ó K A Ð S I G Í B Æ N D A F E R Ð I R
Sveitarstjórn Strandabyggðar
barst nýverið erindi frá grenja-
skyttum í Strandabyggð vegna
vetrarveiði á ref þar sem krafist
er að greitt verði fyrir vetrarveiði
veturinn 2005-2006 og því mót-
mælt að sett hafi verið 10 skotta
„þak“ vegna vetrarveiði 2006-
2007. Þetta telja grenjaskytturn-
ar síst hvetjandi til að stunda
veiðarnar eins sem skyldi.
Í erindinu var einnig dregin í
efa heimild sveitarstjórnar að hafa
hætt greiðslu fyrir vetrarveiði á
sínum tíma, en þá ákvörðun telja
skytturnar með miklum ólíkindum.
Samkvæmt fundargerðum fyrrum
hreppsnefndar Hólmavíkurhrepps
er samþykkt samhljóða þann 24.
febrúar 2004 að hætta greiðslu skot-
verðlauna fyrir ref og mink að svo
stöddu svo ekki fer á milli mála að
heimild hefur verið fyrir ákvörðun
fyrrum hreppsnefndar.
Á fundi sveitarstjórnar þann 6.
mars síðastliðinn var samþykkt
samhljóða að halda óbreyttum regl-
um um vetrarveiði þar til nefnd á
vegum Fjórðungssambands Vest-
fjarða hefur skilað áliti og tillögum
fyrir Vestfirði í heild. Einnig var
sveitarstjóra falið að skrifa erindi
til Umhverfisráðuneytis þar sem
farið verði fram á hærri greiðslur
til sveitarfélagsins vegna nálægðar
þess við friðlandið á Hornströnd-
um.
kse
Grenjaskyttur ósáttar við
reglur um vetrarveiði