Bændablaðið - 27.03.2007, Side 23
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200723
Hjarðarholti, 371 Búðardal, símar 860 0249 - 860 0246
Styrkir til bættrar einangrunar
– tilraunaverkefni 2007
Orkusetur mun á árinu 2007 verja hluta þeirra fjármuna sem veitt verður til orkusparandi
verkefna til styrkveitinga til húseigenda sem ráðast vilja í endurbætur á einangrun húsnæðis í
þeim tilgangi að draga úr orkunotkun og þar með kostnaði við upphitun þess.
Tilraunaverkefninu er ætlað:
• Að ná fram og efla áhuga húseigenda á verkefnum af þessu tagi
• Að safna upplýsingum um árangur verkefnanna og miðla þeim
• Að stuðla að umræðu um orkusparnað með þessum hætti
• Að afla reynslu vegna fyrirhugaðra frekari styrkveitinga
Auglýst er eftir umsóknum um styrki til:
• Endurglerjunar húsnæðis – skipta í betur einangrandi gler
• Einangrunar húsnæðis að utan og/eða klæðningar
• Annarra verkefna í sama tilgangi
Um styrk getur sótt hver sá eigandi húsnæðis sem fær húshitunarkostnað sinn niðurgreiddan
úr ríkissjóði.
Við mat á umsóknum verður horft til orkunotkunar húsnæðis. Forgang hafa verkefni til
endurbóta þar sem orkunotkun hefur reynst verulega mikil í samanburði við viðmiðunargildi fyrir
sambærilegt húsnæði.
Upphæð styrks til einstakra verkefna getur numið allt að kr. 500.000 en þó aldrei hærri upphæð
en 50% af raunkostnaði verkefnis.
Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Orkuseturs www.orkusetur.is og heimasíðu
Orkustofnunar, www.os.is. Nánari upplýsingar fást í síma 569 6085. Einnig er hægt að hafa
samband við Orkusetur á netfanginu sif@os.is
Umsóknarfrestur er til 25. apríl 2007
heimsmarkaði. Við erum þó í sum-
um tilfellum að keppa við fram-
leiðslu sem er ríkisstyrkt í sínu
heimalandi, á einhvern hátt og slíkt
getur náttúrulega ekki gengið til
lengdar.“
Skinnaverð í heiminum hefur ver-
ið á uppleið að undanförnu – er
ekki bjart framundan að ykkar
mati?
„Afkoman hefur auðvitað verið
mjög góð síðustu misseri. Hún kem-
ur hins vegar alltaf til með að sveifl-
ast eitthvað. Í slíku umhverfi þarf
maður bara að vera góður í sínu
fagi, helst bestur. Þá er manni alltaf
borgið. Við íslenskir loðdýrabænd-
ur erum svo lánsamir að hafa verið
í mikilli framför síðustu ár. Auð-
vitað þurfum við að halda áfram á
þeirri braut en á meðan svo er þá er
framtíðin björt.“
Þó áhugi ykkar fyrir starfinu sé
mikill, hlýtur fleira að hafa ofan
af fyrir athafnasömu fólki eins og
ykkur?
Bjarni og Veronika: „Ja, áhuga-
mál! við erun nú svo heppin að
vera að fást við aðaláhugamálin frá
degi til dags þ.e.a.s. búskapur, dýr,
gróður og náttúra. Við meira að
segja teljum það forréttindi að vera
í starfi sem gefur lífsfyllingu, vegna
þess að það eru engan veginn allir
sem eru svo heppnir. Marga langar
t.d. í búskap en treysta sér ekki til
að byrja og lenda svo í „einhverju“
öðru starfi sem var kannski ekki
óskastarfið. Áhugi minn (Bjarni)
kviknaði á loðdýraræktinni á sín-
um tíma vegna þess að erfitt var að
hefja hefðbundinn búskap. Það var
mín leið inn í búskap vegna þess að
hægt er að byrja smátt í henni og
byggja sig hægt og rólega upp. En
þetta var nú útúrdúr frá áhugamál-
unum. Þó að starfið sé áhugavert
og gefi lífsfyllingu þá er öllum
nauðsynlegt að kúpla sig frá dag-
legu viðfangsefni af og til. Við ferð-
umst svolítið bæði innanlands og
utan. Veronika hefur áhuga á mynd-
list og Bjarni hefur verið virkur í
leiklist, í seinni tíð hjá Leikfélagi
Selfoss.“
Stefán og Katrín: „Við erum
bæði tónlistarmenntuð og störfuð-
um við tónlistarkennslu og söng á
árum áður. Að sjálfsögðu höfum
við áhuga á því sem fyrr en tíminn
er allt of lítill til að geta sinnt því
að nokkru ráði. Búskapnum fylgir
líka ákveðið félagsstarf svo sem í
loðdýraræktarfélögunum. Faglegt
starf hefur verið veigamikill þáttur
í loðdýraræktinni undanfarin ár og
það hefur skilað sér. Fyrir utan það
hvað það er skemmtilegt.“ EÞ
Katrín raðar skinnum inn á lagerinn.
Styrkveitingar á
vegum erfðanefndar
landbúnaðarins
Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna
að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í
landbúnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja
fjármunum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla
að þessu hlutverki. Lögð er áhersla á að styrkja verkefni á
eftirfarandi sviðum:
• rannsóknir er lúta að varðveislu og viðhaldi á
erfðaauðlindum í landbúnaði.
• lokaverkefni til prófs á háskólastigi er tengjast varðveislu
og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði.
• aðgerðir sem stuðla að sjálfbærri varðveislu og/eða
nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði.
• kynning og fræðsla fyrir almenning um erfðaauðlindir í
landbúnaði og gildi þeirra.
Um styrki þessa geta sótt bæði einstaklingar eða
félagasamtök sem hafa það að markmiði að stuðla að
verndun og sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í
íslenskum landbúnaði.
Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200-700 þús.
Umsóknum skal skilað til formanns erfðanefndar, Áslaugar
Helgadóttur Landbúnaðarháskóla Íslands, Keldnaholti,
112 Reykjavík (aslaug@lbhi.is) fyrir 30. apríl n.k.