Bændablaðið - 27.03.2007, Blaðsíða 24
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. mars 200724
Erfðabreyttur maís
veldur lifrar- og
nýrnaskemmdum
Niðurstaða úr fyrstu óháðu rann-
sókninni á erfðabreytta maís-
stofninum Mon 863 liggur fyrir.
Niðurstaðan veldur áhyggjum,
segir Svenska Dagbladet.
Þegar leyfi fékkst til ræktunar á
erfðabreytta maísstofninum Mon
863 í ESB voru eingöngu lagðar
þar til grundvallar prófanir fram-
leiðandans, Monsanto. Nú hafa sér-
fræðingar franska vísindaráðsins
CRII-GEN gert áháða rannsókn á
stofninum. Niðurstaða hennar var
kynnt nýlega og hún er sú að þessi
stofn veldur alvarlegum lifrar- og
nýrnaskemmdum hjá rottum. Sér-
fræðingarnir krefjast þess í fram-
haldi þess að ræktun afbrigðisins
verði hætt.
Sænski landbúnaðarráðherrann,
Eskil Erlandson telur að hér hafi
eðlileg varnaðarsjónarmið verið
viðhöfð og að réttir aðilar innan
ESB hafi metið áhættuna, segir í
frétt Svenska Dagbladets.
LandbrugsAvisen
Utan úr heimi
Bretar taka frumkvæði í bar-
áttunni við loftslagsbreytingar
Lagt hefur verið fram frumvarp
til laga í breska þinginu um að
draga úr losun koltvísýrings í
andrúmsloftinu.
Frumvarpið mælir fyrir um það
að losun koltvísýrings í Stóra-Bret-
landi skuli minnka um 60% fyrir
2050, miðað við núverandi losun.
Með þessu frumvarpi taka Bretar for-
ystu um pólitískar ákvarðanir um að
stöðva hlýnun andrúmsloftsins.
Ríkisstjórnin leggur til að gerðar
verði fimmára áætlanir um niður-
skurðinn. Auk þess verði stofnað
óháð eftirlitsráð sem fylgist með
því að aðgerðum í umhverfismál-
um sé fylgt eftir.
Tony Blair, forsætisráðherra,
setti veðurfarsbreytingarnar efst á
verkefnalista þegar hann gegndi for-
mennsku í svonefndum G-8 hópi
ríkra landa í heiminum árið 2005.
Ef breska þingið (Parlamentið) sam-
þykkir lögin verður Bretland fyrsta
land í heiminum til að setja lög um
bindandi niðurskurð á losun gróður-
húsalofttegunda. Sem áfangamark-
mið gerir frumvarpið ráð fyrir að
niðurskurðurinn nemi 26-32% fyrir
árið 2020.
Bretland, ásamt Þýskalandi,
hefur verið í fararbroddi um metn-
aðarfullan veðurfarssáttmála þegar
Kyótó bókunin rennur út árið 2012.
Fyrir nokkru samþykkti leiðtoga-
ráð ESB, þar sem Þýskaland gegnir
nú formennsku, að draga úr losun
koltvísýrings um 20% í löndum
sambandsins fyrir 2020. Angela
Merkel sem situr þar í forsæti, fyrri-
hluta þessa árs, hefur tilkynnt leið-
togaráðinu að Þýskaland vilji auka
niðurskurðinn í 30% ef önnur lönd
heims taki einnig þátt í því.
Mest óvissa varðandi málið er
sú hver verði viðbrögð Bandaríkj-
anna sem og stórra þróunarlanda,
svo sem Brasilíu, Kína og Ind-
lands, þ.e. hvort þessi lönd vilja
skuldbinda sig til að draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Skuldbindingar Kyótó bókunar-
innar varða einungis iðnríki heims.
Bandaríkin, sem ein losa um fjórð-
ung af gróðurhúsalofttegundum í
heiminum, hafa ekki verið aðilar að
Kyótó bókuninni.
Ýmsir sérfræðingar telja að
mögulegt sé að Bush forseti breyti
að einhverju leyti um afstöðu í mál-
inu. Hins vegar er búist við því að
þróunarlöndin taki ekki á sig neinn
niðurskurð fyrr en ríku löndin hafa
ákveðið að draga úr losuninni. Þró-
unarlöndin krefjast þess einnig að
ríku löndin hjálpi hinum fátæku að
taka upp tækni sem draga úr losun
gróðurhúsalofttegunda.
Nationen
Danmörk, Slóvakía og að hluta
Austurríki eru einu lönd ESB
sem gera kröfu um að eigend-
ur búi á jörðum sínum. Fjöldi
landa leitast eftir sem áður,
með löggjöf, við að hafa áhrif á
búreksturinn og eignaraðild að
jörðum.
Þetta kemur fram í könnun
sem matvælanefnd danska þjóð-
þingsins (Folketinget) lét vinna
fyrir sig og byggist á upplýsing-
um sem sendiráð Danmerkur í
löndum ESB tóku saman.
Samkvæmt könnuninni
eru engin fyrirmæli um búsetu
eigenda á jörðum í 18 löndum
ESB. Þessi lönd eru: Búlgaría,
Kýpur, England, Eistland, Frakk-
land, Grikkland, Holland, Írland,
Lettland, Litháen, Lúxemborg,
Malta, Portúgal, Rúmenía, Sló-
venía, Spánn, Tékkland og Ung-
verjaland.
Í fimm löndum, Finnlandi,
Ítalíu, Þýskalandi, Póllandi og
Svíþjóð, eru þó í gildi „önnur
opinber fyrirmæli“ í þessum efn-
um. Þannig eru í Finnlandi, Ítalíu
og Þýskalandi í gildi reglugerðir
sem veita eigendum og leigulið-
um efnalegt hagræði af að búa á
eða í grennd við bújarðirnar.
Í Póllandi er gerð krafa um að
eigendur jarða sem ekki eru leigð-
ar út stundi sjálfir búskap á jörð-
um sínum og að yfirvöld á svæð-
inu skuli fylgjast með því hve oft
eigendur vitja jarða sinna.
Í Svíþjóð er almenna reglan
sú að það er ekki skylduábúð eig-
enda á jörðum en sérstakar regl-
ur gilda þar sem búseta er mjög
dreifð. Þar þarf sérstakt leyfi til
að kaupa jörð ef kaupandi hef-
ur ekki búið í sveitarfélaginu í
minnst eitt ár.
Búsetuskylda
Í Slóvakíu og Danmörku er bú-
setuskylda eigenda við kaup á
jörðum. Hið sama á við um leigu-
liða sem stunda búskap á jörðinni
í meira en fimm ár.
Í Austurríki er engin bein
skylda um búsetu en í fjölda hér-
aða er talið nauðsynlegt til að
tryggja anda laganna um góðan
rekstur að eigandi eða leiguliði
búi á jörðinni.
Í héraðinu Limburg í Belgíu
er sett skilyrði um búsetu í Belg-
íu fyrir því að fá að taka jörð á
leigu.
Nýlega fór Þjóðverji, sem á
bújörð í Danmörku, í mál við
danska ríkið og krafðist þess að
skylda hans til búsetu á jörðinni
yrði felld niður. Dómstóll ESB
hefur nú dæmt í málinu á þá leið
að skyldubúseta á jörðum sé ólög-
leg samkvæmt lögum ESB.
Danska ríkisstjórnin hefur að
svo komnu máli ekki tilkynnt
hvaða breytingar verði gerðar á
dönskum lögum í kjölfarið.
LandbrugsAvisen
Fá lönd ESB krefjast búsetu
eigenda á jörðum
Aðeins Danmörk og Slóvakía hafa slíka kröfu
lögbundna
Hinn eindregni stuðningur sem
notkun líforku fær nú um stund-
ir, sem ráð til að draga úr hlýn-
un andrúmsloftsins, hefur ekki
verið hugsaður í botn. Það er álit
Stefans Tangermans, yfirmanns
viðskipta- og landbúnaðardeild-
ar Efnahags- og framfarastofn-
unarinnar í París, OECD. Rök-
in eru þau að við ræktun gróð-
urs til líforkuframleiðslu þurfi
mikla orku úr jörðu; kol, olíu
og gas.
Að áliti Tangermans eru áhrif
líforkunnar á að draga úr hlýnun
verulega minni en almennt er tal-
ið og þar að auki er það dýrt að
framleiða orku úr gróðri. Skýring-
in á því er sú að mikið af orku úr
jörðu, olíu, fer í að rækta og nýta
gróður til orkuframleiðslu. Hlut-
fall orku úr jörðu við framleiðsl-
una er um 80% af líforkunni sem
framleidd er.
Að auki er ræktunarlandið tak-
markað. Ef stefnt væri að því að
draga úr olíu- og bensínnotkun
bíla í ESB um 10% þyrfti um þriðj-
ung af ökrum ESB undir fram-
leiðslu líforku.
Bændur eru nú hvattir til að
rækta gróður til orkuframleiðslu í
stað matar. Afleiðingin verður sú
að matvælaverð hækkar og fólki
í þróunarlöndunum, sem skortir
mat, mun fjölga.
Tangerman spurði sig einnig
hvort framleiðsla líforku gæti
orðið hagkvæm í Evrópu þar sem
áburðarverð og verð á gróðurvarn-
arefnum stígur samhliða verð-
hækkun á hráolíu. Hagnaðarvonin
er enn langt undan. Landbúnaður í
Evrópu á engra kosta völ gagnvart
heimsmarkaðsverði á olíu.
Orkuvinnsla úr úrgangsefnum,
þar með töldu gasi úr sorpi, er í
eðli sínu hagkvæm ef ekki er um
aðra notkunarmöguleika þess að
ræða. Þar með er einnig komist
fram hjá keppni milli orkuvinnslu
og matvælaframleiðslu. Hið sama
gildir um svokallaða annarrar kyn-
slóðar orkuvinnslu þar sem t.d.
er notað lífrænt afgangsefni úr
skógum, lauf og greinar. Þar eru
hins vegar enn óleyst tæknileg
vandamál sem nú er lagt kapp á að
leysa.
Bílaframleiðendur mótmæla
Evrópskir bílaframleiðendur eru
tortryggnir á hugmyndir ESB um
framleiðslu á lífdísilolíu á bifreið-
ar. Dísilbílar dagsins í dag ráða
ekki við 10% blöndun af lífdísil-
olíu.
Þar sem það tekur tíma að end-
urnýja bílaflotann verður að selja
lífdísilolíuna úr sérstökum olíu-
dælum, a.m.k. um nokkurt árabil.
ESB sér fram á langar og strangar
umræður um notkun lífdísilelds-
neytis.
Landsbygdens Folk
Ræktun gróðurs til líforkuframleiðslu
dregur lítið úr hlýnun andrúmsloftsins
Afplánun með
samfélagsþjón-
ustu fer vaxandi
í Noregi
Aldrei hafa jafn margir verið
dæmdir til að afplána dóm í
sakamáli með samfélagsþjón-
ustu í Noregi eins og í fyrra, eða
2.680. Slíkum dómum hefur fjölg-
að jafnt og þétt frá því að þetta
form afplánunar var tekið upp
fyrir fimm árum. Yfir 9 þúsund
manns hafa fengið þannig dóm
frá því þeir voru teknir upp, sam-
kvæmt upplýsingum frá Dóms-
málaráðuneytinu í Noregi.
Ragnar Kristoffersen, sem starf-
ar við menntamiðstöð stofnunar
sem annast endurhæfingu refsi-
fanga, Kriminalomsorgen, upplýs-
ir að samfélagsþjónusta sé afar
jákvæð, bæði fyrir þá sem þurfa á
endurhæfingu að halda, sem og fyr-
ir samfélagið. Nationen
Viðvörun við svínaskítslykt. Það
er nýjasta framlag Svínaræktar-
sambands Dana í því skyni að
bæta samskipti svínabúanna við
nágranna sina.
Svínabóndinn getur með hjálp
vefsíðunnar www.gyllesms.dk var-
að nágranna sína við því með nokk-
urra daga fyrirvara að hann ætli að
dreifa svínaskít á tún sín og akra.
Þetta dregur ekki úr lyktarmeng-
uninni en nágrannarnir geta skipulagt
tíma sinn m.a. þannig að bjóða ekki
til grillkvölds í garðinum hjá sér dag-
ana sem áburðardreifingin fer fram.
Auðvitað verður að aka út skítn-
um en hví ekki að búa nágrannana
undir það, segir í fréttatilkynningu
frá Svínaræktarsambandinu.
Landsbygdens Folk
Sms-skilaboð vara
nágrannana við svínalykt
Breska þingið fjallar nú um það hvort Bretar eigi að taka forystuna meðal iðnríkja í því að draga úr gróðurhúsa-
áhrifum.